Morgunblaðið - 29.05.2014, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
þjóðlegt gómsætt og gott
alla daga
www.flatkaka.is
Gríptu með úr næstu verslun k
ÖkugerÐ hp
kom til landsins árið 1947. Hún var
til að byrja með gerð út frá Reykja-
vík og hafði einkennisstafina RE 95,
en varð AK 77 þegar Bæjarútgerð
Akraness eignaðist skipið.
Umfangsmiklar breytingar
og fjárhagserfiðleikar
Fyrir um 50 árum þótti skipið of
gamalt og Færeyingar keyptu það,
en fengu ekki innflutningsleyfi fyrir
togaranum á þeim tíma. Skipinu var
því skilað aftur til Íslands og lagt í
Hvalfirði, að því er fram kom á
vefnum togarar.123.is í fyrra. Skipið
var síðar selt til Noregs og fór það-
an vestur um haf. Það hefur meðal
annars borið nöfnin Petrel V, Cape
Harrison og nú Caledonia og gegnt
ýmsum verkefnum sem fiskiskip,
rannsóknaskip og seglskúta, en fer-
ill þess liggur ekki nákvæmlega fyr-
ir.
Í byrjun árs 2008 lauk umfangs-
miklum breytingum á skipinu og er
það vart þekkjanlegt frá því að það
kom til Íslands á sínum tíma. Breyt-
ingunum fylgdu fjárhagserfiðleikar
útgerðar og minna varð úr sigl-
ingum en ráð var fyrir gert. Skipið
hefur um skeið verið til sölu.
Á sumrin átti að gera út á ferðir
frá austurströnd Kanada, en á vet-
urna í Karíbahafinu. Þess vegna um
öll heimsins höf. Skipið er 75 metra
langt og er gert ráð fyrir 70 farþeg-
um og 21 í áhöfn. Ekki þarf að taka
fram að allur aðbúnaður um borð er
hinn glæsilegasti.
„Það væri ekki amalegt að sigla á
henni um Karíbahafið,“ segir Magn-
ús Örn og lætur sig dreyma. „Skipið
hefur víða farið og saga þess er
ótrúlegt ævintýri. Hún ber sig vel
undir fullum seglum, hámöstruð og
falleg. Ég er viss um að hún fer vel
í sjó því seglin róa svona skip og svo
er gott stál í skipinu og góð ballest.
Það hefur verið mikið lagt í það og
núna er talsverður lúxus um borð.“
Of kulvís til að vera á dekki
Hverfum tæp sextíu ár til baka,
en í september 1954 var Magnús
Örn fyrst skráður á Akurey AK, þá
16 ára gamall, og var á skipinu í tvö
ár. Síðar leysti hann nokkrum sinn-
um af um borð, en þar með lauk
sögu hans á síðutogurum. Hann
lauk vélstjóranámi og skiptist
starfsferillinn nokkurn veginn í 30
ár á sjó, mest á flutningskipum, og
30 ár í vélsmiðjum í landi. Auk þess
rak hann í nokkur ár reiðhjólaverk-
stæðið Borgarhjól við Hverfisgötu.
„Í fyrsta túrnum á Akureynni
fórum við á Jónsmið við Austur-
Grænland, en svo vorum við bara á
þessum hefðbundnu togaramiðum
allt í kringum landið, mest út af
Vestfjörðum,“ segir Magnús Örn.
„Við vorum á karfa við Vestur--
Grænland og ég komst í afleysingu
á karfa við Nýfundnaland, en þá var
ég að læra til vélstjóra og vann í
smiðju í landi. Ég var alltaf í vél-
inni, fyrst sem kyndari eða spíssari
og við sáum um ketilinn og að halda
dampi á gufuvélinni. Á dekki var ég
aldrei, því ég er alltof kulvís til
þess.“
Margar kempur á togurunum
„Á þessum árum fóru togararnir
mikið í salttúra á miðin við
Vestur-Grænland og voru upp í 90
daga í túrnum, en ég fór aldrei í
saltið. Það var alls ekki alltaf mok-
veiði eins og gjarnan er sagt frá í
sögum af sjónum. Stundum var þó
alveg ótrúlegt hvað fiskaðist og það
er lygilegt að menn fylltu skipin
stundum á 2-3 sólarhringum, 320-
330 tonn. Það voru margar kempur
á þessum skipum sem lentu í ýmsu,
en sjálfur kynntist ég aldrei ísingu
Gleyma aldrei bátunum sínum
Var kyndari á síðutogaranum Akurey fyrir 60 árum Rak í rogastans þegar hann sá mynd af
skipinu sem nú er glæsiskúta í Kanada „Væri ekki amalegt að sigla á henni um Karíbahafið“
Ljósmynd/Shipfax/Mac Mackay
Caledonia Seglum þöndum siglir gamli skrokkurinn undir kanadísku flaggi.
Ljósmynd/Ólafur Árnason
Akurey AK 77 Komið með fullfermi af karfa af Grænlandsmiðum til Akraness fyrir tæplega 60 árum.
SVIÐSLJÓS
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Sjómenn gleyma aldrei bátunum
sínum, það er klárt mál,“ segir
Magnús Örn Óskarsson, vélstjóri til
sjós og lands í 60 ár. Árið 1954 réðst
hann sem kyndari eða spíssari á
síðutogarann Akurey frá Akranesi
og allar götur síðan hefur hann
fylgst með skipinu og staldrað við
þegar hann hefur séð myndir eða
fréttir af því. Ekki er ofsögum sagt
að hann hafi rekið í rogastans þegar
hann fyrir nokkrum árum sá að
gamla Akureyin, smíðuð árið 1947,
var enn á floti, nú gerð út frá Kan-
ada sem skemmtiferðaskúta. Skipið
ber nú nafnið Caledonia og er
sennilega elsti síðutogari Íslendinga
sem enn er á floti.
Akurey var smíðuð í Englandi og
Andri Karl
andri@mbl.is
Sérstakur saksóknari krafðist þess
við aðalmeðferð BK-44-málsins fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að
Símon Sigvaldason, dómari málsins,
dæmi þá Birki Kristinsson, Elmar
Svavarsson og Jóhannes Baldursson
í fimm ára fangelsi. Þá krafðist hann
þess að Magnús Arnar Arngrímsson
verði dæmdur í fjögurra ára fangelsi.
Ástæðan er viðskipti á milli eign-
arhaldsfélagsins BK-44 og Glitnis
banka en þar störfuðu þeir allir.
Ákæruatriðin snúa að 3,8 millj-
arða lánveitingu Glitnis banka til
BK-44 í nóvember 2007 en pening-
arnir voru notaðir til kaupa 150 millj-
ón hluta í bankanum. Bréfin lækk-
uðu en lánið hækkaði vegna vaxta,
engu að síður voru bréfin seld þann-
ig að félagið kom skaðlaust út úr við-
skiptunum en Glitnir tapaði tveimur
milljörðum.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari, sagði ljóst að þessir fjór-
ir menn hefðu staðið að lánveiting-
unni og uppgjörinu. Það byggir hann
á fyrirliggjandi gögnum, sem eru þó
frekar rýr, enda eru engin gögn um
að lánabeiðni hafi verið útbúin, að
fjallað hafi verið um málið í áhættu-
nefnd, samið um lánakjör eða trygg-
ingar. Er það enda helsta vörn
tveggja sakborninga, að þeir tengist
málinu eiginlega bara ekkert.
Fór framhjá öllum
Að aðalmeðferðinni lokinni stend-
ur upp úr að hægt hafi verið að
kaupa um eitt prósent hluta í Glitni
banka í nóvember 2007 (BK-44 varð
sextándi stærsti hluthafi í bank-
anum) án þess að nokkur veitti því
sérstaka athygli. Grunnt er á gögn-
um og enginn fyrrverandi starfs-
manna bankans, eða núverandi Ís-
landsbanka, virðist vilja kannast við
að hafa heyrt af þessum viðskiptum.
Burtséð frá ákærðu í málinu þá
var til dæmis tekin skýrsla af þáver-
andi ritara áhættunefndar. Hann
fékk tölvupóst um lánveitinguna
sama dag og hún var samþykkt en
veitti honum ekki athygli. Sjálfur
viðurkenndi hann að hafa haft ákveð-
ið eftirlitshlutverk í áhættunefnd.
Hann var spurður að því hvort sala á
1% hlut í bankanum hefði getað farið
framhjá honum. „Það getur vel ver-
ið,“ sagði hann.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari, fór um víðan völl í ræðu
Vill Glitnismenn í
áralangt fangelsi
Verjendur segja kröfuna fráleita