Morgunblaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 22
VIÐTAL
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Ísland er það land í heiminum sem
breytist örast,“ sagði Oddur Sigurðs-
son, jarðfræðingur og sérfræðingur á
sviði jöklafræði hjá Veðurstofu Ís-
lands. „Ísland er öðruvísi en flest
önnur lönd. Það er að miklu leyti
vegna þess að landið er hluti af sjáv-
arbotni en ekki meginlandi. Það eru
afar fá lönd í heiminum, og ekkert
jafn stórt og Ísland, sem eru sjáv-
arbotn. Ísland er stærsta úthafseyja
heims í þeim skilningi.“
Oddur hefur lagt sig fram um að
skrá síbreytilega ásýnd landsins sem
enn er í mótun. Hann hefur tekið
marga tugi þúsunda ljósmynda á
löngu árabili sem sýna hopandi jökla,
eldgos, flóð og skriðuföll. Myndirnar
eru einstök heimild um ólífræna nátt-
úru Ísland.
Grundvöllur að gagnsemi
Nýlega undirrituðu Oddur og Árni
Snorrason, forstjóri Veðurstofunnar,
samning um varðveislu, skráningu og
notkun á náttúrumyndasafni Odds.
Veðurstofan mun varðveita safnið og
veita aðgang að því að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum. Áætlað er að
safnið sem afhent verður geymi um
55 þúsund ljósmyndir. Auk þess hef-
ur Oddur tekið tugi þúsunda mynda
af öðrum myndefnum.
Elstu skráðu myndirnar í safni
Odds eru frá árunum 1966-1967. Þá
var hann háskólanemi í Uppsölum í
Svíþjóð og hafði keypt notaða mynda-
vél af frænda sínum. Upphafið að
ljósmyndun Odds tengdist því að
hann fór að sýna myndir frá Íslandi
úti í Svíþjóð. Því framtaki var mjög
vel tekið.
„Ég tek ekki myndir sem ljós-
myndari heldur sem uppfræðari. Ég
tek eiginlega aldrei mynd nema með
það í huga að sýna hana einhverjum
og segja frá einhverju,“ sagði Oddur.
Hann heldur marga fyrirlestra og
eru þeir ævinlega byggðir í kringum
ljósmyndir.
„Þetta var fremur sundurlaust og
myndirnar heldur lélegar framan af,“
sagði Oddur. Hann fór að skrá mynd-
irnar á árunum 1976-1977. Þá voru
innan við 3.000 myndir í safninu.
Skráningin er grundvöllurinn að
gagnsemi safnsins, að mati Odds.
Hún geymir dagsetningu, staðsetn-
ingu, myndefni og tæknileg atriði
hverrar myndar. Skipulag safnsins er
þannig að það tekur Odd innan við
mínútu að finna mynd sem hann
vantar. Til að byrja með var skráin á
spjöldum. Seinna var hún skráð í
stafrænan gagnagrunn. Oddur færði
skrána í gagnagrunninn og naut m.a.
aðstoðar dætra sinna við þá miklu
vinnu.
Þrívíddarmyndir úr flugvél
Oddur kom alkominn heim úr námi
1971 og fór þá að vinna hjá Orku-
stofnun við virkjanarannsóknir.
Hann tók talsvert af myndum í
tengslum við starfið. „Ég komst upp
á lag með að taka þrívíddarmyndir,
aðallega úr lofti. Ég á tugi þúsunda
þrívíddarmynda af landinu,“ sagði
Oddur. Hann var ekki með sérstaka
myndavél til að taka þrívíddarmynd-
irnar. Kanadískur prófessor benti
Oddi á að ef tvær myndir eru teknar
með sekúndu millibili út um hlið-
arglugga á flugvél myndi þær þrí-
vídd. Færslan var miklu meiri en
milli mannsaugnanna sem olli því að
þrívíddarskynið fór upp í um 100 kíló-
metra en með berum augum skynjum
við aðeins um 10 metra dýpt.
„Það er afar lærdómsríkt fyrir
jarðfræðinga að skoða landið í þrí-
vídd,“ sagði Oddur. Hann notar ein-
falda víðsjá (stereoscope) frá Zeiss til
að skoða myndirnar. Oddur sagði að
þrívíðar ljósmyndir úr venjulegum
myndavélum væru orðnar hluti af nú-
tíma landmælingum.
En hvað er merkilegast við mynda-
safnið, að mati Odds?
„Ætli það sé ekki skráningin, ef
eitthvað er,“ sagði Oddur. „Í sjálfu
sér er ég enginn snillingur í ljós-
myndun. Ég hef iðulega lent á for-
vitnilegum stöðum. Einnig hef ég lagt
mig eftir því að fljúga í myndatökur
og lent í slagtogi með ljósmyndurum
eins og Ragnari Axelssyni, Páli Stef-
ánssyni og Ragnari Th. Sigurðssyni
og fleiri góðum mönnum.“
Ekkert land í heiminum breytist ör-
ar en Ísland Oddur Sigurðsson, jarð-
fræðingur, hefur tekið tugþúsundir
mynda af síbreytilegri ásýnd landsins
Ljósmyndir/Oddur Sigurðsson
Dynjandisvogur Hvassbrýndar eggjar Urðarfjalls gnæfa yfir Dynjandisvogi í Arnarfirði. Fyrir botni hans er fossinn
Dynjandi sem einnig hefur verið kallaður Fjallfoss. Fossinn heitir Dynjandi og er það dregið af hljóðinu í fossinum.
Grímsvötn Þar gýs oftar en í öðrum eldstöðvum Íslands. Myndin er af eldgosi sem hófst á jólaföstu 1998.
Land örra
breytinga
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
Brynjólfur Þorkelsson
Framkvæmdastjóri
binni@remax.is
Sylvía GWalthersdóttir
Löggiltur fasteignasali
sylvia@remax.is
„...veittu mér framúrskarandi
þjónustu í alla staði“
„Katrín heiti ég. Þau hjónin Binni og Sylvía sáu um
að selja húsið mitt sumarið 2013 og veittu mér
framúrskarandi þjónustu í alla staði. Haldið var
opið hús þar sem þau sáu um að bjóða fólkið
velkomið og fylgdu opna húsinu svo eftir
en það leiddi til sölu sem allir voru sáttir við.
Ég mæli hiklaust með þessum sætu hjónum“
820 8080 Hringdu núna ogpantaðu frítt söluverðmat