Morgunblaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 24
Kolgrafafjörður á Snæfellsnesi Hjarðarbólsoddi og Kolgrafaoddi kölluðust á yfir Kolgrafafjörð. Nú er búið að tengja saman þessa fallegu náttúrusmíð
með brú. Þekkilegur svipurinn verður aldrei samur. Sem kunnugt er hefur brúin verið mikið í fréttum í tengslum við síldardauða í firðinum.
Mosi Gróbaukar dýjahnappsins, eða dýjamosans, eru sem
perlum stráðir eftir næturþoku á Grímsstöðum á Fjöllum.
Dúnurt Dúnurtin treystir vindinum fyrir afkvæmum sínum og
hann bregst ekki traustinu og ber fræin á vængjum sínum.
Birkikreklar Björkin er tvíkynja. Karlreklarnir hanga en
kvenreklar standa sperrtir og bíða eftir frjókornunum.
Rýrnun jöklanna á undanförnum ára-
tugum er afskaplega áberandi í ásýnd
landsins. Oddur hefur farið reglulega
á nokkra tiltekna staði og tekið jökla-
myndir. Á að minnsta kosti einum
stað, við Sólheimajökul, sést ekki
lengur jökull þaðan sem Oddur var
vanur að taka myndirnar. Jökullinn
hopaði úr myndinni! Oddur hefur
einnig tekið myndir af mörgum eld-
gosum, allt frá Heklugosinu 1970 og
þeim sem síðar hafa orðið. Sjón-
arhorn Odds er oft annað en annarra
ljósmyndara.
„Ég hef bæði reynt að komast nær
myndefninu og eins fjær því heldur
en þorri annarra,“ sagði Oddur. „Ég
flýg gjarnan mjög hátt til þess að fá
yfirsýn. Ég er forvitinn um stóru
myndina. Þetta er unnt vegna þess að
loftið yfir Íslandi er oftast svo tært.“
Oddur sagði merkilegt að menn
hefðu ekki fundið út eðli Bárð-
arbungu í Vatnajökli fyrr en gervi-
hnattamyndir sáust af landinu. „Þeg-
ar menn sáu fyrstu myndirnar úr
gervihnetti áttuðu þeir sig á því að
það var svona feiknaleg askja undir
jöklinum. Hún blasti við úr geimn-
um.“
Af minnisstæðum vatnsflóðum
nefndi Oddur flóð sem urðu fyrir jólin
2006 austur á Skeiðum og víðar í Ár-
nessýslu og eins á Norðurlandi og í
Borgarfirði. Hann vann mikið við að
kortleggja þessi flóð. Af skriðuföllum
nefndi hann skriðu sem féll 1979 ná-
lægt bænum Víðivöllum í Fljótsdal og
olli miklu tjóni. Einnig á hann mikið
af myndum af berghlaupum, fornum
skriðuföllum, víða um land.
„Svo tel ég mig eiga myndir af nán-
ast öllum jöklum landsins,“ sagði
Oddur. „Ég gerði mér far um að telja
þá og kortleggja. Þeir reyndust vera
um það bil 300.“ Oddur tók m.a.
myndir af öllum jöklunum á Trölla-
skaga en þeir eru um 160.
Oddur tók fyrst myndir á 35 mm
filmur. Svo fékk hann sér Mamya 645
myndavél sem tók myndir á 60x45
mm filmur og síðar Fuji 6x9 mynda-
vél. Oddur hefur tekið myndir á filmu
fram á þennan dag. Hann fékk sér
stafræna myndavél fyrst í vetur sem
leið. Það er Canon 6D sem er „hóg-
vær vél“, að mati Odds, en orðin það
góð að skerpan í myndunum jafnast á
við 35 mm filmu.
„Ég kemst ekki í andlegt samband
við stafrænu vélina. Ljósmyndaáhug-
inn hefur talsvert dalað við það að
fara í stafrænu tæknina. Ég á þó von
á að hann glæðist aftur,“ sagði Odd-
ur. Hann sagði snúnara að skoða þrí-
víddarmyndir úr stafrænni vél en
filmuvél. Það þarf nokkur handtök
áður en hægt er að setja stafrænu
myndirnar í víðsjána.
Ekki er búið að skanna filmusafn
Odds nema að litlum hluta á stafrænt
snið. Hann kvaðst hafa geymt marg-
ar filmur vegna heimildagildis þeirra,
þar á meðal myndir sem ekki þykja
sérstaklega góðar sem ljósmyndir.
Þess vegna hefur hann geymt miklu
fleiri myndir en aðrir hefðu gert.
Oddur sagði að svo virðist sem film-
urnar varðveitist mun betur en staf-
ræn gögn því stafræn gögn tapist
með einu eða öðru móti.
Grasygla á engjarós Grasyglukarlinn er með fjaðraða fálmara sem hann
skynjar með boðefni kvendýrsins. Hjá yglunni eru örsmáar kögurvængjur.
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
SPORTÍS
MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS
NÝ SENDING - SUMAR 2014