Morgunblaðið - 29.05.2014, Síða 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
Skeifunni 8 | Kringlunni | sími 588 0640 | casa.is
Fallegar útskriftargjafir
Ritzenhoff bjórglös og krúsir
Verð frá 2.490,- stk.
Ritzenhoff snafsaglös
Verð 1.990,- stk.
KARTELL Take borðlampar
Hönnun: Ferruccio Laviani Verð 17.500.- stk
KARTELL BOURGIE borðlampar
Hönnun: Ferruccio Laviani
Verð frá 49.000,-
Ritzenhoff kaffimál og bollar
Verð frá 2.990,- stk.
Ritzenhoff
kampavínsglös,
Verð 2.890,- stk
Ritzenhoff vínglös,
Verð 2.990,- stk
Ritzenhoff vínglös,
verð 3.250- stk
„Aðsóknin í nám í hestamennsku
hefur farið fram úr okkar björtustu
vonum,“ sagði Guðbjörg Aðalbergs-
dóttir, skólameistari Framhalds-
skólans í Mosfellsbæ, sem býður upp
á nám í hestamennsku frá og með
næsta hausti.
Hægt er að ljúka námi á einu til
tveimur árum og útskrifast sem
hestasveinn á þremur eða þremur
og hálfu ári með stúdentspróf af
hestakjörsviði. Þetta er eini fram-
haldsskólinn sem býður upp á slíkt
nám til stúdentsprófs. Skólinn hefur
verið í nánu samstarfi við hesta-
mannafélagið Hörð í Mosfellsbæ við
undirbúning á brautinni sem hefur
tekið um tvö ár.
Kostnaðurinn fyrir hverja önn er
60 þúsund krónur og að auki þurfa
nemendur að hafa hest til umráða.
Um tuttugu nemendur verða teknir
inn á fyrstu önnina.
„Kostnaðurinn við brautina er þó-
nokkur því nemendur þurfa að
greiða hærri kostnað en á bóknáms-
braut. Ástæðan fyrir gjaldinu er sú
að nauðsynlegt er að hafa litla hópa
en sex eru í hóp. Til samanburðar
eru 25 manna hópar í bóklegri
kennslu,“ sagði Guðbjörg.
Á námsbrautinni eru almennir
bóklegir áfangar, verklegt nám og
vinnustaðanám. Samningur er gerð-
ur við hestabúgarða um vinnustaða-
námið.
Námið er í samræmi við nýja aðal-
námsskrá fyrir framhaldsskóla sem
gefin var út af menntamálaráðuneyti
árið 2011 og byggist á lögum um
framhaldsskóla frá 2008.
Skólinn flutti í nýtt húsnæði í
byrjun árs að Háholti 35 og er því í
stakk búinn til að taka á móti nem-
endum á nýrri námsbraut. Reiknað
er með að samtals verði nemendur í
skólanum tæplega 400 í haust.
thorunn@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hestabraut Mikil aðsókn er í nám í
hestamennsku í FMOS.
Stúdentspróf af
hestakjörsviði
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fosshótel Austfirðir verður opnað
fyrir gestum í franska spítalanum og
öðrum uppgerðum húsum á Fá-
skrúðsfirði í lok mánaðar, opið hús
verður í þyrpingunni fyrir gesti og
gangandi 14. júní og sýning um sjó-
sókn Frakka verður síðan formlega
opnuð á Frönskum dögum 26. júlí í
sumar.
Franski spít-
alinn er í hópi
sögufrægari húsa
á Austfjörðum.
Minjavernd hefur
unnið að upp-
byggingu frönsku
húsanna á Fá-
skrúðsfirði und-
anfarin ár og
margir komið að
verkinu. Minja-
vernd á húsin sem um ræðir, fimm
að tölu, og leigir þau til Íslandshót-
ela og að hluta til til Fjarðabyggðar.
Hótel og sýning
Sá hluti bygginganna sem sveitar-
félagið leigir verður nýttur fyrir
sýningu um sjósókn Frakka við
Austfirði í um 400 ár en þó mest um
tímabilið frá 1820 fram að fyrri
heimsstyrjöld. Sýningin verður fyrst
og fremst í spítalanum, í göngum á
milli spítalans og læknishússins og á
jarðhæð læknishússins. Þorsteinn
Bergsson, framkvæmdastjóri Minja-
verndar, segir að í raun verði sýn-
ingin um öll húsin, bæði innandyra
og utan, í formi mynda og upplýs-
andi efnis af ýmsum toga.
Hótelið verður í öllum húsunum
að einhverju leyti nema kapellunni,
sem verður blessuð að kaþólskum
sið á Frönskum dögum í sumar. Í
fyrsta áfanga eru 28 hótelherbergi,
en stefnt er að því að hefja vinnu við
2. áfanga með haustinu og í honum
verða um 20 herbergi. Gert er ráð
fyrir því að framkvæmdum ljúki fyr-
ir sumarbyrjun 2016. Heildarkostn-
aður er áætlaður um milljarður
króna, að sögn Þorsteins.
Franskt hverfi á Fáskrúðsfirði
Fosshótel Austfirðir verður opnað fyrir gestum í franska spítalanum og öðrum uppgerðum húsum
28 hótelherbergi í fyrsta áfanga og stefnt að því að tæplega 50 herbergi verði tilbúin árið 2016
Franski spítalinn Minjavernd hefur tekið til hendi og verður ekki annað sagt en að vel hafi tekist til um endurgerðina.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Bærinn Franski kjarninn er áberandi í hjarta Fáskrúðsfjarðar og franski andinn svífur áfram yfir vötnunum.
Þorsteinn
Bergsson Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði
var einn þriggja spítala sem
byggðir voru af franska ríkinu
hér á landi vegna þess fjölda
franskra sjómanna sem stund-
uðu veiðar við landið. Hinir voru
í Vestmannaeyjum og Reykja-
vík.
1939 var byggingin flutt á
Hafnarnes, sem nú er eyðibyggð
austarlega á suðurströnd Fá-
skrúðsfjarðar. Þar var húsið
notað bæði til íbúðar og skóla-
halds. Minjavernd lét flytja það
aftur inn í þéttbýliskjarnann á
Fáskrúðsfirði 2009. Þorsteinn
Bergsson, framkvæmdastjóri
Minjaverndar, segir að Lækn-
ishúsið sem Georg Georgsson,
læknir Frakka á svæðinu, hafi
haft fyrir sig hafi verið endur-
byggt og tengt við spítalann
með göngum undir Hafnargötu.
Franska sjúkraskýlið, fyrsta
húsið sem Frakkar reistu þarna
1896, hafi verið endurgert.
Minjavernd hafi einnig keypt
kapellu sem Frakkar hafi reist
við hlið sjúkraskýlisins og kom-
ið henni á fyrri stað. Líkhús við
hlið spítalans hafi ennfremur
verið endurgert.
Sögufræg
hús fá upp-
lyftingu
MIKLAR BREYTINGAR
Morgunblaðið/Albert Kemp
Áður Spítalinn var að grotna niður á
Hafnarnesi. Nú er öldin önnur.