Morgunblaðið - 29.05.2014, Qupperneq 40
40 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
sem hafi þurft að rifa seglin vegna veiðigjalds-
ins segir Sigmundur það ljóst að veiðigjöldin
séu ennþá mjög há á Íslandi fyrir sum fyr-
irtæki, en önnur fyrirtæki ráði betur við þau.
„Þess vegna höfum við talað fyrir og munum
sjá í nýju fiskveiðistjórnunarkerfi aukna teng-
ingu milli hagnaðar og gjaldtöku. Við munum
líta á afkomu fyrirtækjanna, sem eðlilegt er í
gjaldtökunni, frekar en að leggja hana flatt yf-
ir línuna. Með því er vonandi hægt að styrkja
frekar stöðu minni og meðalstóru fyrirtækj-
anna og viðhalda fjölbreytni í greininni, því að
það sem annars myndi augljóslega gerast, er
að sú hagræðingarkrafa sem fylgir háum veiði-
gjalda felur í sér aukna samþjöppun, aflaheim-
ildir færast þá á hendur færri fyrirtækja og
færri byggðarlaga.“ Sigmundur segir að kerfið
verði að vera til þess fallið að viðhalda fjöl-
breytileika í greininni og að jafnframt sé þörf á
ákveðnum byggðatengingum. „Það er ekki
hægt að heilu byggðalögin búi við óvissu um
aðgang að þeirri auðlind sem þau hafa byggst
upp á.“
Sigmundur segir að lokum um sjávarútveg-
inn að það sé ótrúlegt hversu neikvæð umræð-
an sé oft um íslenskan sjávarútveg. „Sér-
staklega í ljósi þess að hér hefur tekist, sem er
afar sjaldgæft í veröldinni, að vera með um-
hverfisvænt, sjálfbært kerfi í sátt við náttúr-
una, sem jafnframt er hagkvæmt, á meðan í
Evrópu horfa menn upp á ríkisstyrkta rán-
yrkju, ofveiði sem þarf stuðning stjórnvalda til
þess að geta gengið,“ segir Sigmundur. „Það,
hversu illa hefur verið talað um þessa undir-
stöðuatvinnugrein, sem er einhver mesta ný-
sköpunargrein landsins og hefur náð árangri á
heimsmælikvarða þrátt fyrir erfiðar aðstæður,
er að mínu mati afskaplega óbilgjarnt.“
Reynt að gera alla óánægða
Sigmundur bendir á að svipuðum brögðum
hafi verið beitt á stærsta mál ríkisstjórnar
sinnar, skuldaleiðréttinguna, þar sem farin
hafi verið sú leið að reyna að gera sem flesta
óánægða með aðgerðirnar, með því að ala á tali
um að sumir myndu fá en aðrir ekki. Slíkt væri
vísasta leiðin til að enginn fengi neitt. „Að-
gerðin átti, eðli málsins samkvæmt, að koma
til móts við ákveðinn hóp, sem hafði verið van-
ræktur. Þar með var ekki sagt að það ætti ekki
að koma til móts við leigjendur, eða náms-
menn, eða einhverja aðra,“ segir Sigmundur
og bendir á að enginn sé skilinn útundan,
reynt sé að koma til móts við alla. Til dæmis sé
komið til móts við leigjendur og fólk með bú-
seturétt í tillögum ríkisstjórnarinnar um
breytingar á húsnæðismálum. Engu að síður
séu viðbrögð stjórnarandstöðunnar þau að tína
til hópa sem eiga að vera óánægðir með að-
gerðirnar í stað þess að taka höndum saman
um þær úrbætur sem verið sé að gera. „Þetta
finnst mér slæm nálgun á pólitík, og raunar al-
veg með ólíkindum að þau hafi leyft sér að
greiða atkvæði gegn þessum tillögum.“
Eitt af því sem mikið var rætt um varðandi
skuldaleiðréttingarnar er munurinn á þeim
leiðum sem lagðar voru til í kosningabarátt-
unni og þeirri útfærslu sem farin var. Að-
spurður segir Sigmundur að hann sé afar sátt-
ur við þá blönduðu leið sem farin var í
skuldamálunum. „Það er frábært hvernig
þessar tvær leiðir vinna saman, vega upp galla
hvorrar um sig og ýta undir jákvæðu hlið-
arnar. Ég er líka augljóslega ánægður með að
þarna eru málin kláruð á þann hátt, að það er
ekki hægt með nokkru móti að segja að við
höfum ekki staðið við okkar fyrirheit, sem voru
þau að bæta fólki það, sem í daglegu tali er
kallað forsendubresturinn, en eins og ég út-
skýrði í kosningabaráttunni er sú viðbót sem
kom á lánin vegna ófyrirsjáanlegrar verð-
bólgu.“ Sigmundur bætir við að í ljósi þess að
þegar menn ná að nýta þessar leiðir, munu
þeir ná að taka af láninu allar verðbætur í
kringum hrun umfram 2-3% verðbólgu, sé ekki
hægt að segja annað en að leiðrétt hafi verið
fyrir allri óvæntri verðbólgu á þessum árum.
Tökum náð á efnahagnum
Af öðrum málum ríkisstjórnarinnar sem
gengið hafa í gegn á árinu segir Sigmundur að
hann sé mjög ánægður með það hvernig tekist
hafi að ná tökum á efnahagsmálunum. „Fjár-
málaráðherra á heiður skilinn fyrir að hafa náð
í samvinnu við þingið að skila hallalausum fjár-
lögum, þrátt fyrir mjög aukin útgjöld til ým-
issa málaflokka sem hafa verið sveltir und-
anfarin ár,“ segir Sigmundur og bætir við að
Árangurinn byggðist
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ársafmæli ríkisstjórnarinnar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, er mjög ánægður með þann árangur sem ríkisstjórnin hefur
náð á árinu, og vonast til þess að 70 ára afmæli lýðveldisins verði til þess að blása mönnum í brjóst framfara- og bjartsýnisanda á ný.
VIÐTAL
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Auðvitað er mjög margt ógert ennþá, en mað-
ur hlakkar bara til að takast á við það, þegar
maður horfir yfir árangurinn af fyrsta árinu,“
segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, for-
sætisráðherra, en í síðustu viku var liðið ár frá
því að ríkisstjórn hans tók til starfa. „Það hef-
ur mjög margt breyst mikið til hins betra, sem
gerir okkur betur í stakk búin til að takast á
við komandi verkefni.“
Það vakti athygli þegar ríkisstjórnin var
mynduð að enginn í henni hafði verið ráðherra
áður, og var það í fyrsta sinn á lýðveldistím-
anum. Sigmundur Davíð segir að þrátt fyrir
það hafi fátt komið á óvart við starfið. „Ég var
reyndar búinn að fylgjast með þessu utan frá
lengi, bæði eitt kjörtímabil sem þingmaður og
svo hef ég haft áhuga á stjórnmálum frá því að
ég man eftir mér, þó ég hafi ekki ætlað að fara
út í þau sjálfur. Að flestu leyti er þetta svipað
og maður átti von á,“ segir Sigmundur. Hann
bætir við að hann sé ánægður með það til
dæmis hvað embættismennirnir í forsætis-
ráðuneytinu séu góðir samstarfsmenn og til-
búnir til að leggja sér lið. „Ég átti nú ekki von
á neinni mótspyrnu, en það er þekkt í stjórn-
málum víða um lönd að það sé fyrirstaða við
breytingar hjá embættismannakerfinu, en ég
hef ekki fundið fyrir því hér, og það kom mér
skemmtilega á óvart.“
Furðulítil breyting
Þegar ríkisstjórn Sigmundar Davíðs var
mánaðargömul ritaði forsætisráðherra nokkuð
áhugaverða grein um samskipti fjölmiðla við
stjórnarflokkana, þar sem hann talaði um
„loftárásir“ ýmissa fjölmiðla á mál ríkisstjórn-
arinnar. Hvernig upplifði Sigmundur breyt-
inguna frá því að vera í stjórnarandstöðu til
þess að vera í stjórn? „Reyndar varð furðulítil
breyting á samskiptum okkar við fjölmiðla eft-
ir því hvort við vorum í stjórn eða stjórnarand-
stöðu,“ segir forsætisráðherra.
Hann bætir við að hann vilji síður alhæfa, en
ljóst sé að sumir fjölmiðlamenn séu í andstöðu
við þá flokka sem nú myndi ríkisstjórn. „Það
sem ég vakti athygli á í þessari grein, var ein-
mitt það að hjá þessum aðilum hefði þetta
haldist óbreytt við stjórnarskiptin. Það var því
ekki hægt að halda því fram að þetta væri
spurning um hvort flokkarnir væru í stjórn
eða stjórnarandstöðu, heldur snerist það um
þessa tilteknu flokka. Ég er svo sem enn þeirr-
ar skoðunar, svo ég orði það kurteislega, að
ríkisstjórn þessara flokka sé haldið meira við
efnið heldur en ríkisstjórn vinstri flokkanna,“
segir Sigmundur.
Hann bætir við að vissulega sé aðhald af
hinu góðu, en það verði að gæta einhvers jafn-
ræðis svo að skilaboðin brenglist ekki. „Það
verður til dæmis að segja frá því góða líka, og
gæta sanngirni í framsetningu.“ Sigmundur
nefnir sem dæmi það hvernig talað er um sjáv-
arútveginn, þar sem fullyrðingar um að ríkis-
stjórnin gefi sægreifum pening en skeri niður í
velferð á móti hafi átt fullgreiða leið í fjölmiðla.
„Þannig er dregin röng mynd af stöðunni, sem
er sú að þessi ríkisstjórn er búin að auka fram-
lög til velferðarmála, hvort sem litið er til fé-
lagsmála, heilbrigðismála, eldri borgara, ör-
yrkja; allir þessir málaflokkar hafa fengið
verulega aukið fjármagn í tíð þessarar rík-
isstjórnar. Á sama tíma hefur sjávarútvegur-
inn skilað meiri tekjum til samfélagsins en
nokkurn tímann áður.“
Stefnan færð í skynsemisátt
Talið berst að sérstaka auðlindagjaldinu, og
þeim breytingum sem gerðar voru á því frá því
sem vinstri stjórnin ætlaði sér. „Þau áform
voru í fyrsta lagi óframkvæmanleg og jafn-
framt stórhættuleg. Hefðu þau náð fram að
ganga, þá væri staðan sem nú er komin upp á
Djúpavogi, Þingeyri og Húsavík ekki und-
antekningar, heldur regla í smærri sjávar-
útvegsbyggðum um landið. Minni og með-
alstór sjávarútvegsfyrirtæki hefðu ekki lifað
af, um það þarf ekki einu sinni að deila,“ segir
Sigmundur og bætir við að það hefði sett
byggðarlög um allt land í uppnám og valdið
gríðarlegu tjóni samfélagsins. „Í staðinn erum
við með kerfi sem skilar samfélaginu meiri
tekjum en nokkru sinni fyrr og við munum
halda áfram að laga það til þess að treysta
byggðastöðuna í þessum þorpum og bæjum.“
Spurður um nýlegar fréttir af útgerðum
Sigmundur segir að ríkisstjórnarsamstarfið
hafi gengið mjög vel. „Auðvitað eru áhersl-
urnar ólíkar eins og flokkarnir, en það hefur
tekist að leysa úr öllum álitamálum, og sam-
starf mitt og fjármálaráðherra er ákaflega
gott. Það er mjög gott að vinna með honum.
Hann er fyrst og fremst traustur maður og
góður maður, og það skiptir miklu máli í
samstarfi að maður hafi álit á persónunni, og
þá er auðveldara að leysa úr þeim vanda-
málum sem koma upp,“ segir Sigmundur.
Sigmundur segir aðspurður það vera til-
finningu sína að heldur hafi dregið úr því á
síðustu árum að stjórnmálamenn séu vinir
yfir ganginn á milli stjórnar og stjórnarand-
stöðu. „Það er þá afleiðing af því að stjórn-
málaumræðan og baráttan hefur harðnað
eftir bankahrunið. Það var oft þannig að
menn áttu ekki síst vini í öðrum flokkum. Þá
gátu menn orðið vinir á grundvelli annarra
mála en stjórnmála.
Það eru alveg ennþá dæmi um slíkt, en ég
hugsa að það sé rétt tilfinning að það sé
heldur minna en áður var. „Hins vegar er
núna eins og áður, mynd fólks af sam-
skiptum stjórnmálamanna mjög villandi. Það
kemur fólki oft á óvart þegar það kemur í
þingið að sjá þingmenn ólíkra flokka, sem
jafnvel hafa verið í hávaðarifrildi sitja saman
og spjalla í mötuneytinu yfir kaffi. Það er
ekki mikið um beinlínis óvild á milli manna.
Þetta er ekki nýtt, ég hugsa að alla tíð hafi
menn talið að það væri verra á milli fólks en
raunin er, því að stjórnmálamenn birtast yf-
irleitt í átökum. Það er oftast bara hluti af
vinnunni, og oftast er það innan eðlilegra
marka. Það eru undantekningartilvik, og
kannski er ekki mikill samgangur, en það er
ekki hægt að tala um að það sé óvild sem
leiðir af sér að menn talist ekki við.“
Byggist á trausti og vináttu
SAMSTARFIÐ VIÐ SJÁLFSTÆÐISFLOKKINN