Morgunblaðið - 29.05.2014, Page 76
76
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
N 28
2014
Listahátíð
í Reykjavík
www.listahatid.is
Khatia Buniatishvili
Einleikstónleikar
Harpa, Eldborg
29. maí, kl. 20:00
kr. 5.200—9.200
Listahátíð í Reykjavík 2014
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það má segja að við stöldrum við
og lítum til baka á þessari sýningu
samtímis því sem við leikum okkur
með fortíðina,“ segir Unnar Örn
Auðarsson, annar tveggja sýning-
arstjóra sýningarinnar S7 – Suð-
urgata >> Árbær (ekki á leið) sem
opnuð verður í Árbæjarsafni á
morgun kl 17. Samsýningarstjóri
hans er Heiðar Kári Rannversson.
Spurður um tilurð sýningarinnar
rifjar Unnar Örn upp að árið 2010
hafi Nýlistasafnið ráðist í það risa-
vaxna verkefni að gefa út sögu
þeirra óteljandi sýninga sem runnið
hafi í gegnum sanfið á 30 ára starfs-
afmæli þess. „Í framhaldinu af út-
gáfu á sýningarsögu safnsins var
formlega stofnað innan Nýlista-
safnsins Arkíf um listamannarekin
sýningarrými, þar sem haldið er til
haga frumheimildum um gallerí og
annan sýningarvettvang sem lista-
menn hafa staðið að,“ segir Unnar
Örn og rifjar upp að á árunum 1977
til 1982 hafi hópur ungra listamanna
staðið fyrir afkastamikilli sýning-
arstarfsemi sem og útgáfu tímarits-
ins Svarts á hvítu í húsinu að Suð-
urgötu 7 sem í dag gengur undir
nafninu Hjaltestedhúsið á Árbæj-
arsafninu, en húsið er eitt af elstu
húsum borgarinnar, byggt árið
1833.
Nýtt hlutverk sem safngripur
„Sýningin er unnin í samstarfi við
Minjasafn Reykjavíkur sem árið
1983 flutti húsið í heilu lagi á Árbæj-
arsafn,“ segir Unnar Örn og tekur
fram að eðlilega hafi öll merki um
fyrri gallerístarfsemi verið þurrkuð
út þegar húsið fékk nýtt hlutverk
sem safngripur, en í Hjaltested-
húsinu er í dag sviðsett heimili efna-
fólks frá því um aldamótin 1900.
Aðspurður segir Unnar Örn að
fjórum ungum listamönnum verið
boðið að vinna ný verk fyrir sýn-
inguna S7 - Suðurgata. „Listamenn-
irnir Erla Silfá Þorgrímsdóttir,
Hrafnhildur Helgadóttir, Sæmund-
ur Þór Helgason og Styrmir Örn
Guðmundsson vinna verk sín inn í
marglaga sögu hússins, arkitektúr
þess og safnafræðilegt samhengi.
Einnig hafa verið valin verk sem
kallast á við þá sögulegu sviðsetn-
ingu sem sett hefur verið upp í hús-
inu. Þau eru eftir listamennina
Önnu Hrund Másdóttur, Örnu Ótt-
arsdóttur, Arnar Ásgeirsson og Leif
Ými Eyjólfsson,“ segir Unnar Örn
og bendir á að allir séu listamenn-
irnir fæddir 1982 eða seinna. „Með
sýningunni okkar nú verða gallerí-
starfseminni að Suðurgötu 7 í fyrsta
sinn gerð skil,“ segir Unnar Örn og
bendir á að samhliða sýningunni
komi út vegleg sýningarskrá þar
sem fjallað er ítarlega um sýning-
arsögu Gallerís Suðurgötu 7, sögu
hússins og listamannarekinna rýma.
Samfelld saga sem aldrei lýkur
„Saga listamannarekinna rýma er
í raun samfelld saga sem aldrei lýk-
ur. Þannig tekur eitt við af öðru.
Ungt og orkumikið listafólk sem vill
sýna sitt finnur sér alltaf rými til
þess. Orkan sem ríkti í kringum
Gallerí Suðurgötu 7 dó ekki þegar
starfsemin þar lagðist af og húsið
var flutt, heldur fann orkan sér nýj-
an vettvang,“ segir Unnar Örn og
bendir á að ótal rými séu út um all-
an bæ í dag þar sem ungir lista-
menn eru að vinna og sýna. „Þessi
orka finnur sér síðan leið inn í stóru
söfnin og allt listkerfið.“
Þess skal að lokum getið að sýn-
ingin stendur til 31. ágúst og er opin
alla daga milli kl. 10 og 17.
Morgunblaðið/Ómar
Við Suðurgötu 7 Í fremri röð f.v. eru Hrafnhildur Helgadóttir og Heiðar Kári Rannversson, en í aftari röð f.v. Leif-
ur Ýmir Eyjólfsson, Sæmundur Þór Helgason, Styrmir Örn Guðmundsson, Erla Silfá Þorgrímsdóttir og Unnar Örn.
Orkan finnur sér rými
Morgunblaðið/Ómar
Safngripur Sett hafa verið upp valin verk í herbergjum Suðurgötu 7 sem
kallast á við þá sögulegu sviðsetningu sem sett hefur verið upp í húsinu.
„Pure mobile vs. Dolce vita“ nefn-
ist gjörningur og listamannaspjall
Moniku Frycová sem
Myndhöggvarafélagið býður upp á
í húsakynnum sínum að Nýlendu-
götu 15 í dag, fimmtudag, kl.
13.00. Viðburðurinn er hluti af
Listahátíð í Reykjavík.
„Í september 2013 lagði Monika
Frycová af stað frá Seyðisfirði
með ferjunni Smyrli. Með í för var
mótorhjól og tíu kíló af saltfiski.
Ferðinni var heitið til Lissabon í
Portúgal þar sem verkið var sýnt í
Triangle Xerem. Nú er Monika á
leið til Íslands aftur, með portú-
galska afurð í farteskinu sem hún
sýnir og segir frá á Listahátíð,“
segir í tilkynningu.
Með saltfisk
í farteskinu
Ljósmynd/Andrea Riboni
Mótorfákur Monika Frycová er tékkneskur myndlistarmaður sem býr og
starfar að hluta til á Íslandi. Hún segir frá nýjasta verki sínu á Listahátíð.
Örmyndirnar Ég er Ísland - Suður-
land í mannsmynd verða frumsýndar
í Listasafni Árnesinga í Hveragerði í
dag kl. 18. „Um er að ræða fimm ör-
myndir sem innihalda stutta persónu-
lega frásögn nokkurra Sunnlend-
inga. Þær festa á filmu áhrifaríka
staði, stórbrotna náttúru, upplifun af
Suðurlandi, menningu, sögur, raunir,
tilfinningar og fegurð; - Suðurland í
mannsmynd,“ segir í tilkynningu.
Fyrir er til sýnis í safninu Hringiða
sem er hluti af Listahátíð í Reykjavík.
Meðal þeirra sem þátt taka í Hring-
iðu er Katrín Elvarsdóttir og mun
hún ræða við gesti um sýninguna 1.
júní kl. 15.
Örmyndir og
listamannaspjall
Röð Úr myndaröðinni Hringiðu eftir Katr-
ínu Elvarsdóttur í Listasafni Árnesinga.