Morgunblaðið - 29.05.2014, Síða 79
MENNING 79
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
Japanska stórskrímslið God-zilla hefur ratað nokkrumsinnum á hvíta tjaldið fráþví að fyrsta myndin um það
var gerð árið 1954, og er grunn-
þemað í þeim alltaf hið sama:
Skrímsli vaknar úr dvala eða verður
til vegna afskipta mannsins af nátt-
úru og/eða kjarnorku, og heldur
rakleitt að næstu stórborg og leggur
hana í rúst. Þetta er einungis í ann-
að sinn sem mynd um skrímslið er
gerð alfarið í Bandaríkjunum, en
fyrri myndin, sem gerð var árið
1998, var vægast sagt skelfileg í
flestalla staði. Það er því mikill léttir
að geta greint frá því að myndin
sem nú hefur verið tekin til sýninga
er miklu betri.
Árið er 1999 og Joe Brody (Bryan
Cranston) og kona hans, Sandra
(Juliette Binoche) eru verkfræð-
ingar sem vinna við Janjira-
kjarnorkuverið í Japan. Allt í einu
verður uppi fótur og fit þegar
óþekkt bilun verður í kjarn-
orkuverinu sem leggur það í rúst.
Fimmtán árum síðar er Joe bug-
aður maður, og sannfærður um að
ófarirnar 1999 hafi ekki verið slys
eins og opinbera útgáfa sögunnar
segir, heldur hafi eitthvað áður
óþekkt ráðist á kjarnorkuverið.
Ford, sonur hans, (Aaron Taylor-
Johnson, Kick-Ass) er lautinant í
bandaríska sjóhernum, og trúir því
að pabbi sinn sé einfaldlega búinn að
missa vitið en fellst á að hjálpa hon-
um að rannsaka málið nánar. En
sjón er sögu ríkari, og fyrr en varir
eru þrjú risaskrímsli komin á kreik
og allt útlit fyrir að heimaborg
Fords, San Francisco, verði ekkert
nema rústir einar, en þar bíða kona
hans og barn eftir honum.
Godzilla er hin prýðilegasta stór-
skrímslamynd og fylgir eftir formúl-
unni samviskusamlega. Að þessu
sinni er farin sú leið að láta Godzilla
berjast við tvö önnur risaskrímsli,
sem minna mest á stökkbreytt skor-
dýr. Þannig tekst að gera hann að
nokkurs konar hetju myndarinnar.
Nokkuð er liðið á myndina áður en
Godzilla sjálfur birtist, og tekst
þannig að byggja upp ákveðna
stemningu fyrir því þegar hann birt-
ist fyrst á skjánum.
Leikaravalið er að mestu mjög
gott, en óneitanlega hefðu þau Juli-
ette Binoche og Bryan Cranston
mátt fá meiri tíma á skjánum. Cran-
ston er einfaldlega frábær í hlut-
verki Joe Brody, vísindamannsins
sem allir halda að sé klikkaður en
sem hefur í raun rétt fyrir sér.
Meiri vonbrigðum veldur Ken
Watanabe, sem er illa vannýttur í
hlutverki vísindamanns sem talar
einkum í gátum um mikilvægi nátt-
úrunnar, en hann leggur fátt annað
af mörkum til söguþráðarins. Þá er
David Strathairn í hlutverki aðmír-
álsins sem velur hernaðarlausnina
fram yfir ráð vísindamannanna, en
gróft áætlað má segja að um helm-
ingur þeirra dauðsfalla sem sjást í
myndinni séu af völdum hersins.
Godzilla er því hin fínasta popp-
kornsmynd, sem skilur kannski ekki
mikið eftir sig, en hjálpar mönnum
að minnsta kosti að gleyma hörm-
unginni frá 1998.
Af skrímslum og skrímslum
Hetjan Godzilla er hin raunverulega hetja 28. kvikmyndarinnar um japanska skrímslið.
Sambíóin
Godzilla bbbmn
Leikstjóri: Gareth Edwards. Handrit:
Max Borenstein. Aðalhlutverk: Aaron
Taylor-Johnson, Ken Watanabe, Eliza-
beth Olsen, Juliette Binoche, Sally
Hawkins, David Strathairn og Bryan
Cranston. Bandaríkin 2014. 123 mín-
útur.
STEFÁN GUNNAR
SVEINSSON
KVIKMYNDIR