Morgunblaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 84
FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 149. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Enginn hefur komið í búðina í sjö ár
2. Birtu mynd af berum botni…
3. Andlát: Inga Huld Hákonardóttir
4. Ekkert var uppfyllt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Dæmisögur úr sumarlandinu nefn-
ist sumarsýning Listasafns Reykja-
nesbæjar sem opnuð verður í Duus-
húsum í dag kl. 14. Á henni er að
finna úrval nýlegra olíumálverka eftir
Karólínu Lárusdóttur sem fengin
hafa verið að láni frá einkaaðilum.
Sérstök áhersla er lögð á stærri verk
listakonunnar, sem að jafnaði eru
ekki eins aðgengileg og minni mál-
verk hennar, grafíkmyndir og vatns-
litamyndir, segir í tilkynningu. Það
„sumarland“ sem vísað sé til í sýn-
ingartitli sé forðabúr minninga sem
listakonan hafi unnið upp úr „dæmi-
sögur“ sínar, sem fjalli framar öðru
um mannlífið í Reykjavík á sjötta og
sjöunda áratug síðustu aldar. „Þótt
margar þessara mynda einkennist af
alvöruþunga, er einnig að finna í
þeim græskulausa fyndni og djúpan
mannskilning,“ segir í tilkynningu.
Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ing-
ólfsson en hann er jafnframt höf-
undur bókar um Karólínu sem kom út
í fyrra. Sýningin stendur til 17. ágúst.
Meðfylgjandi mynd er af einu verka
Karólínu, Guðmundur kemur með
matinn heim.
Nýleg verk eftir Kar-
ólínu á sumarsýningu
Hljóm-
sveitin Dyn-
fari heldur í
tónleika-
ferðalag um
Evrópu í júlí
og heldur 12
tónleika á jafnmörgum dögum í sex
löndum. Seinustu tónleikar Dynfara
hér á landi fyrir ferðina verða haldnir
á Gamla Gauknum 8. júní kl. 21 og
mun hljómsveitin We Made God einn-
ig troða upp.
12 tónleikar á 12
dögum í sex löndum
Á föstudag Hæg breytileg átt og bjartviðri nyrðra og
eystra, annars skýjað. Hvessir sunnan- og vestanlands síð-
degis, SA 8-13 m/s þar undir kvöld og rigning. Hiti 8 til 16 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg eða breytileg átt, 3-8
m/s. Dálítil rigning eða súld með köflum um vestanvert
landið. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á Norðausturlandi.
VEÐUR
Úrvalsdeildarlið Stjörn-
unnar og Fjölnis og 1. deild-
arlið BÍ/Bolungarvíkur voru
meðal þeirra liða sem
tryggðu sér í gærkvöld sæti
í sextán liða úrslitum Borg-
unarbikars karla í knatt-
spyrnu. Stjarnan vann stór-
sigur á Selfyssingum, 6:0, í
Garðabæ, Fjölnir lenti í
miklu basli með 2. deildarlið
Dalvíkur/Reynis og BÍ/
Bolungarvík vann Fjarða-
byggð. »1
Sex Stjörnumörk í
bikarkeppninni
„Það er hrikalega leiðinlegt að missa
af þessum leikjum við Bosníu en ég
veit að strákarnir eiga eftir að klára
það verkefni með sóma þótt Bosníu-
menn séu svo sannarlega sýnd veiði
en ekki gefin,“ sagði Aron Rafn Eð-
varðsson, landsliðsmarkvörður í
handknattleik karla, sem
varð að draga sig út úr ís-
lenska landsliðinu í gær.
Hann tekur þar af leiðandi
ekki þátt í umspilsleikj-
unum við Bosníu í
næsta mánuði en
úrslit þeirra
leikja ráða
því hvort ís-
lenska
lands-
liðið
tekur
þátt í
HM í Katar
á næsta ári
eða ekki. »4
Aron Rafn verður ekki
með í Bosníuleikjunum
Ramune Pekarskyte, landsliðskona í
handknattleik, er gengin til liðs við
eitt sterkasta lið Frakklands, Le
Havre, og samdi við það til tveggja
ára, þó með uppsagnarákvæði eftir
ár. „Mér líst mjög vel á að prófa eitt-
hvað nýtt og geta einbeitt mér alveg
að handboltanum,“ sagði Ramune í
gær þegar hún var að pakka niður
föggum sínum í Danmörku. »4
Ramune er á leið til
Le Havre í Frakklandi
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Björg Hulda Sölvadóttir var heiðruð
í gær á starfsmannafundi Trygg-
ingastofnunar ríkisins (TR). Tilefnið
var að hún hafði náð 50 ára starfs-
aldri hjá stofnuninni.
„Ég var 16 ára þegar ég byrjaði að
vinna hjá Tryggingastofnun ríkisins
árið 1962,“ sagði Björg. „Það eru því
í raun 52 ár síðan ég byrjaði en ég
hætti tvisvar, eitt ár í senn, þegar ég
átti börnin mín.“ Eldri systir Bjarg-
ar, Edda Kristín, vann hjá TR og út-
vegaði Björgu vinnu þar eftir að hún
lauk gagnfræðaprófi.
„Ég byrjaði fyrst að vinna á skrif-
stofu forstjóra sem þá var Sverrir
Þorbjörnsson. Forstjórarnir eru
búnir að vera fjórir síðan ég byrj-
aði,“ sagði Björg. Síðan fór hún í vél-
ritunardeild og varð svo gjaldkeri og
vann við það í nokkur ár. Einnig
vann hún í sjúkratryggingadeild.
Árið 2009 var sú deild flutt til
Sjúkratrygginga Íslands. Þann 1.
janúar 1990 var Björg skipuð yf-
irgjaldkeri TR. Hún gegndi því
starfi í rúmlega 16 ár. Á þeim árum
runnu mjög margir milljarðar í
gegnum hennar hendur.
„Ég hef verið í hálfu starfi í fjár-
reiðudeild frá því ég hætti sem yf-
irgjaldkeri 1. maí 2006,“ sagði Björg.
Maðurinn hennar, Sævar Vilhelm
Bullock, hefur unnið hjá TR frá 1995
og er þar í fullu starfi.
Björg sagði ekki hægt að bera
saman Tryggingastofnun í dag og
þegar hún byrjaði þar fyrir 52 árum.
„Mesta breytingin var í kringum
1983 þegar byrjað var að tölvuvæða
alla hluti,“ sagði Björg.
Hún hefur unnið öll árin í húsi TR
við Laugaveg fyrir utan árið 1998
sem hún var „í útlegð“, eins og hún
orðar það, í Tryggvagötu 28 þar sem
Sjúkrasamlag Reykjavíkur var til
húsa. Þá var verið að breyta húsi TR
og voru gjaldkerar stofnunarinnar í
Tryggvagötunni meðan á breyting-
unum stóð.
„Ástæðan fyrir því hvað ég hef
verið hér lengi er að mér hefur líkað
vel. Þótt ég hafi unnið hjá sömu
stofnun hef ég gegnt mörgum störf-
um,“ sagði Björg. Hún sagði það
hafa komið fram í máli Sigríðar Lill-
ýjar Baldursdóttur, forstjóra TR, á
starfsmannafundinum í gær að fólk
hrósaði stofnuninni heilmikið í tölvu-
póstum og á annan hátt. „Almennt
virðist fólk vera ánægt með stofn-
unina í dag. Ef ég var spurð fyrir 20
árum hvar ég ynni sagði fólk: „Oj
bara, vinnur þú hjá Trygginga-
stofnun?“ Ímynd stofnunarinnar
hefur breyst mikið síðan þá. Sér-
staklega síðustu tíu árin, vil ég
meina. Hún varð svo miklu betri.“
Hálfa öld í Tryggingastofnun
Björg Hulda
Sölvadóttir var
heiðruð í gær
Morgunblaðið/Þórður
50 ára starfsaldur Björg Hulda Sölvadóttir byrjaði að vinna hjá Tryggingastofnun ríkisins 1962 en hætti í tvö ár
vegna barneigna. Hún var heiðruð fyrir langan starfsaldur á starfsmannafundi TR sem haldinn var í gær.
„Ég byrjaði fljótlega að vinna sem
gjaldkeri á útborgunardögum. Þá
var ellilífeyrir borgaður út 10.
hvers mánaðar. Þann 12. var ör-
orkulífeyrir borgaður út og fjöl-
skyldubætur þann 15. Þetta var
bara talið og borgað yfir borðið.
Það var alltaf fullur salur, alveg út
úr dyrum. Þetta voru miklir álags-
tímar,“ sagði Björg. Í kringum
1980 var farið að hvetja fólk til að
fá greiðslurnar beint inn á banka.
„Gamla fólkið var sérstaklega
tregt til þess. Því fannst gaman að
koma hingað og hitta gamla félaga
og vini. Það var mikið líf og fjör á
útborgunardögunum í gamla
daga,“ sagði Björg. Starfsmenn
Búnaðarbankans komu með pen-
ingana fyrir útborgunardagana.
Peningarnir voru geymdir í traustri
öryggishvelfingu sem er í húsi TR
og geymdi einnig skuldabréf Líf-
eyrissjóðs ríkisstarfsmanna.
Fullt var út úr dyrum
LÍFEYRIR OG BÆTUR VORU BORGAÐAR YFIR BORÐIÐ