Morgunblaðið - 13.11.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Þó kuldaboli bíti kinn þarf að viðra hundinn. Þá
er best að klæða sig eftir veðri og arka af stað,
en varlega skal farið yfir umferðargötu eins og
þessir hundeigendur gerðu á Seltjarnarnesi í
gær. Hvutti virðist líka muna eftir að líta til
hægri og vinstri á gangbrautinni.
Hundur og menn líta til vinstri á gangbraut
Morgunblaðið/Golli
Fóru út að ganga með hundinn á Seltjarnarnesi
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Símafélögin hafa fundið fyrir aukinni
eftirspurn eftir rafrænum skilríkjum
fyrir farsíma í kjölfar þess að til-
kynnt var um skuldaleiðréttingu rík-
isstjórnarinnar. Nauðsynlegt verður
fyrir þá sem vilja samþykkja leið-
réttinguna að gera það með rafræn-
um skilríkjum af einhverju tagi, en
auk farsíma hefur einnig verið hægt
að verða sér úti um slík skilríki í de-
betkortum, auk þess sem Auðkenni
býður upp á sérstök einkaskilríki.
Þegar fólk er búið að verða sér úti
um SIM-kort sem styðja við rafræn
skilríki þarf að leita til afgreiðslu-
staða Auðkennis til að virkja skilrík-
in. Samkvæmt upplýsingum frá Auð-
kenni eru nú um 90.000 virk rafræn
skilríki af ýmsum gerðum, og er
hlutur farsíma þar ört vaxandi.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir,
upplýsingafulltrúi Símans, segir að
nú séu 62.000 viðskiptavinir Símans
komnir með SIM-kort sem styðji við
rafræn skilríki. Hún bendir á að
notkun þessara skilríkja muni fær-
ast í vöxt, og að umsóknarferlið sé
einfalt. „Við hvetjum því fólk til þess
að fá sér rafræn skilríki sem fyrst.“
Hjá Vodafone fengust þær upplýs-
ingar að þar hefðu menn fundið fyrir
kipp í umsóknum um rafræn skilríki,
en fyrirtækið hefði búið sig undir
leiðréttinguna frá því í sumar. Greið-
lega gengi því að sinna þeim fjöl-
mörgu fyrirspurnum sem borist
hefðu.
Eðlilegra að innleiða á ári
Liv Bergþórsdóttir, forstjóri
Nova, er hins vegar gagnrýnin á ferl-
ið. „Við hjá Nova höfum bent á að við
teljum að of bratt sé farið í innleið-
ingu rafrænna skilríkja í farsíma hér
á landi, eðlilegra hefði verið að inn-
leiða þessa þjónustu á 6-12 mánuð-
um hið minnsta,“ segir Liv. Hún
bendir á að sú lausn sem Auðkenni
hafi þróað hafi ekki fengist til að
virka á símkortum fyrirtækisins. Því
hafi Nova neyðst til að skipta um
símkortabirgi.
Liv biður viðskiptavini Nova af-
sökunar á töfinni, en nú þegar hafi
yfir 10.000 viðskiptavinir Nova skráð
sig fyrir nýju símkorti á heimasíðu
félagsins. Þeim verði sent kortið án
endurgjalds í desember. „Við mun-
um tryggja að viðskiptavinir okkar
verði komnir með ný SIM-kort í
hendurnar og án endurgjalds áður
en undirskriftarferlið hefst um miðj-
an desember.“
Auðkenniskortin verði frí
Þeir sem hafa ekki tök á því eða
vilja til að verða sér úti um rafræn
skilríki í farsíma eiga þann kost að
sækja um sérstakt auðkenniskort
frá Auðkenni. Venjulegast kostar
slíkt kort 1.500 krónur, en ætlunin er
að það verði ókeypis fyrir þá sem
rétt eiga á leiðréttingu. Hins vegar á
enn eftir að opna fyrir umsóknar-
form á heimasíðu leiðréttingarinnar,
og segir Skúli Eggert Þórðarson,
ríkisskattstjóri, að stefnt sé að því að
það verði gert í næstu viku.
Mikil ásókn í rafræn skilríki
Um 90.000 rafræn skilríki eru nú virk hérlendis Kippur í umsóknir til síma-
fyrirtækjanna Forstjóri Nova segir að of bratt sé farið í innleiðingu skilríkjanna
Morgunblaðið/Golli
Leiðréttingin Til að samþykkja
leiðréttinguna þarf rafræn skilríki.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Félagsmenn í Félagi tónlistarkenn-
ara skora á sveitarfélögin að fylgja
sínu meginsamningsmarkmiði í
kjaraviðræðum, um jafnrétti í launa-
setningu, og krefjast þess að þegar
verði gengið til samninga við félagið.
Verkfallið hefur nú staðið í þrjár vik-
ur, en síðasti fundur í kjaradeilu fé-
lagsins við sveitarfélögin var haldinn
á mánudaginn, og sleit ríkissátta-
semjari fundinum án þess að boðað
væri til nýs fundar.
Í ályktun sem samþykkt var á
fundi í verkfallsmiðstöð félagsins í
gær segir að það sé með öllu ólíðandi
að sveitarstjórnarmenn setji tónlist-
arkennara, sem hafi dregist aftur úr
öðrum sambærilegum hópum í
tekjum, í enn frekara fjárhagslegt
uppnám við það eitt að knýja á um
kjarabætur sem allir sjái að séu
nauðsynlegar og réttlátar.
„Okkur finnst þessi staða orðin
grafalvarleg og með öllu ólíðandi og
skorum á sveitarfélögin að stöðva
þennan hildarleik og láta til sín taka í
viðræðunum,“ segir Sigrún Grendal,
formaður Félags tónlistarkennara.
Hún bætir við að með öllu sé ólíðandi
hvernig haldið hafi verið á viðræðun-
um, þar sem ítrekað hafi verið haldið
fram tillögum sem tónlistarkennarar
geti ekki gengið að. Á sama tíma sé
öllum hugmyndum þeirra ýtt út af
borðinu án umræðu. Sigrún segir að
þegar horft sé á þá þráskák sem
tefld hafi verið í viðræðunum megi
nánast ætla að tilgangurinn sé að
halda tónlistarkennurum í verkfalli.
Tónlistarkennarar orðnir
þreyttir á þráskákinni
Morgunblaðið/Golli
Baráttufundur Tónlistarkennarar
hafa verið þrjár vikur í verkfalli.
Vilja að gengið
verði til samninga
Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis
vekur athygli á því að það breyti engu
um afkomu ríkissjóðs hvort fram-
kvæmdir við nýjan Landspítala verði
opinber framkvæmd eða leigufram-
kvæmd á vegum opinbers hluta-
félags. „Eftir sem áður er vandinn sá
að taka þarf lán til framkvæmdanna
og í ljósi skuldastöðu ríkissjóðs og
rekstrarafkomu er ekki enn ljóst
hvernig takast á að fjármagna
greiðslur vaxta og afborgana.“
Umsögnin er veitt velferðarnefnd
Alþingis sem hefur til umfjöllunar
þingsályktunartillögu Kristjáns L.
Möller og þrettán annarra þing-
manna stjórnarandstöðunnar um
fjármögnun byggingar nýs Landspít-
ala. Þar er lagt til að kosin verði
nefnd sex þingmanna til að vinna með
stjórnvöldum að málinu, meðal ann-
ars að fjármögnunarleiðum. Meiri-
hluti fjárlaganefndar telur að verk-
efnin sem nefndin á að vinna séu á
verksviði framkvæmdavaldsins en
ekki Alþingis. Einnig er á það bent að
gert sé ráð fyrir fjárveitingum á fjár-
lögum til að undirbúa byggingu
sjúkrahótels sem sé hagkvæmasti
hluti framkvæmdarinnar.
helgi@mbl.is
Greiða
þarf af
lánunum
Þórdís Sæmundsdóttir
fæddist í Árnabotni í
Hraunsfirði í Snæfells-
sýslu 13. nóvember árið
1914. Hún fagnar því
hundraðasta afmæl-
isdegi sínum í dag.
Foreldrar hennar
voru Sæmundur Krist-
ján Guðmundsson og Jó-
hanna Elín Bjarnadóttir.
Systkinin voru tíu talsins
og var hún næstyngst
þeirra. Þau elstu urðu 92
ára og 93 ára gömul.
Fjölskyldan flutti að
Hraunhálsi í sömu sveit.
Þórdís byrjaði ung að vinna eins og
tíðkaðist í þá daga. Hún vann á sín-
um yngri árum á Álafossi, fyrst í
verksmiðju, síðan á saumastofu. Síð-
ustu áratugina á vinnumarkaðnum
starfaði hún sem fiskverkakona í
Bæjarútgerð Reykja-
víkur. Síðastliðin átta
ár hefur hún dvalist á
Hrafnistu í Reykjavík.
Hún á einn son, Sæ-
mund Sigurlaugsson,
framkvæmdastjóra
Hreyfils, fimm barna-
börn og níu barna-
barnabörn.
Nú eru þeir um 34
Íslendingarnir sem
hafa náð 100 ára aldri
og eru á lífi. Ein-
staklingar fæddir árið
1915 eru nú um 29 tals-
ins en þeir geta orðið
100 ára á næsta ári. „Það sem er sér-
stakt við þann hóp er að karlmenn
eru 12 talsins, sem er mun hærra
hlutfall en undanfarin ár,“ segir Jón-
as Ragnarsson sem heldur úti vef-
síðu um langlífi Íslendinga.
Þórdís Sæmundsdóttir
er 100 ára í dag
Þórdís
Sæmundsdóttir
Óhætt er að segja að margir hafi
verið forvitnir um niðurstöðu
leiðréttingarinnar þegar hún var
kynnt á heimasíðu Ríkisskatt-
stjóra í fyrradag.
Skúli Eggert Þórðarson, rík-
isskattstjóri segir að 101.704
heimsóknir hafi sést á heima-
síðu embættisins í fyrradag frá
76.097 mismunandi IP-tölum, og
flettingar verið samtals 595.107.
„Þetta er algjört met,“ segir
Skúli Eggert og bætir við að
embættið hafi aldrei séð aðra
eins vefumferð.
Þá hafi kynningarmyndbönd á
síðunni einnig verið skoðuð oft.
Mest var umferðin á heimasíð-
unni upp úr klukkan 11.
Skúli Eggert segir að emb-
ættið hafi einnig fengið um
1.400 símtöl og um 500 tölvu-
pósta vegna leiðréttingarinnar,
og að vel hafi gengið að svara
þeim fyrirspurnum.
Vefsíðan
stóðst álagið
RÍKISSKATTSTJÓRI