Morgunblaðið - 13.11.2014, Qupperneq 4
Velta erlendra greiðslukorta innanlands
Janúar til september 2009-2014, í milljónum króna*
1.947
2.333
2.635
3.007
4.522
5.708
2.785
2.905
4.001
4.446
5.265
6.794
9.070
8.363
10.911
12.375
14.707
17.598
1.925
2.445
2.621
3.207
4.633
5.983
3.610
3.330
5.047
5.848
6.812
8.730
4.666
4.362
5.529
6.767
8.354
10.081
2.171
2.927
3.473
3.796
5.219
6.611
8.690
8.557
10.882
13.087
14.983
18.088
6.043
5.477
7.951
9.379
10.896
13.540
40.907
40.699
53.050
61.912
75.391
93.133
*Á verðlagi hvers árs. Tölurnar sýna heildargreiðslur erlendra aðila með greiðslukortum, þ.e. kreditkortum og debetkortum hér á
landi. Úttektum sem Kortaþjónustan ehf. heimtir hefur verið bætt við erlenda veltu frá og með janúar 2008.
2009
2010
2011
2012
2013
2014
Janúar Mars Maí Júlí SeptemberFebrúar Apríl Júní Ágúst Alls
Heimild: Borgun, Valitor, Kortaþjónustan ehf.
Velta erlendra greiðslukorta á
fyrstu níu mánuðum ársins var ríf-
lega 93 milljarðar króna, tæpum 18
milljörðum króna meiri en sömu
mánuði í fyrra. Þetta má lesa úr nýj-
um tölum Hagstofu Íslands.
Velta hvers mánaðar á verðlagi
hvers árs er sýnd hér fyrir ofan.
Athygli vekur að veltan í septem-
ber sl. var 82,3% meiri en í septem-
ber 2011, eða rúmir 10 milljarðar
borið saman við 5,5 milljarða.
Þá er athyglisvert að veltan í sept-
ember sl. var aðeins 815 milljónum
króna minni en í júní í fyrrasumar.
Undirstrikar það hversu drjúgur
september er orðinn í ferðaþjónustu.
Líklega yfir 100 milljarðar
Nýjustu tölur ná til 30. september.
Veltan í október í fyrrahaust var 5,7
milljarðar og er því nær öruggt að
veltan á fyrstu tíu mánuðum þessa
árs hafi verið meiri en 100 milljarðar.
Veltan í nóvember og desember í
fyrra var samtals um 10 milljarðar
króna og verður ársveltan því líklega
um og yfir 120 milljarðar í ár.
Þessar úttektir munu hafa áhrif á
jólaverslun. Rannsóknasetur versl-
unarinnar lagði í gær fram árlega
spá um jólaverslun. Sérfræðingar
þess áætla nú að jólaverslun aukist
um 4,2% milli ára að nafnvirði og að
aukningin nemi 4% að magni til sé
leiðrétt fyrir áætluðum verðhækk-
unum á tímabilinu. Jólagjöfin í ár er
sögð nytjalist, sem sameini hönnun,
hugvit og handverk. baldura@mbl.is
Metvelta í september
Velta erlendra greiðslukorta var rúmir 10 milljarðar króna
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2014
Þessi krummi krunkaði úti og kallaði á nafna
sinn í skammdeginu nýverið. Þótt myrkir dagar
geti verið þreytandi þá styttist í vetrarsólstöður,
þær eru 21. desember og eftir það tekur dag að
lengja aftur. Ekki er þess þó langt að bíða að
jólaljósin lýsi upp skammdegið.
Morgunblaðið/RAX
Fugl á flugi í skammdegisbirtunni
Karlmaður á sjö-
tugsaldri hefur
verið ákærður af
lögreglustjór-
anum á Akureyri
fyrir manndráp
af gáleysi, líkams-
meiðingar og um-
ferðarlagabrot
með því að hafa
að morgni 17.
mars 2014 orðið
valdur að bílslysi með þeim afleið-
ingum að kona á fertugsaldri lést.
Fram kemur í ákæru, að mað-
urinn hafi ekið jeppa suðaustur
Ólafsfjarðarveg á Hámundarstaða-
hálsi í Dalvíkurbyggð of hratt miðað
við aðstæður. Hann byrjaði að taka
vinstra megin fram úr snjóruðnings-
tæki án nægilegrar varúðar og án
þess að gæta þess nægilega að ak-
reinin væri án umferðar á móti á
nægilega löngum kafla. Þannig ók
hann framan á bifreið sem kom úr
gagnstæðri átt með þeim afleið-
ingum að kona, sem var farþegi í
þeirri bifreið, lést nánast sam-
stundis. Ökumaður bifreiðarinnar
slasaðist mikið sem og annar far-
þegi.
Ákærður fyrir mann-
dráp af gáleysi
Héraðsdómur Norð-
urlands eystra.
Lögreglan á Akureyri er með tvo
menn í haldi sem eru grunaðir
um að hafa kveikt í bifreið í bæn-
um í fyrrinótt.
Að sögn lögreglunnar hafa
mennirnir ekki verið yfirheyrðir
en það verður væntanlega gert
síðar í dag. Kveikt var í bifreið-
inni við Grundargerði um hálf-
fimmleytið í morgun. Eigandi
hennar starfar hjá sýslumanns-
embættinu á Akureyri, að sögn
lögreglu.
Allt bendir til þess að bensín-
sprengjum hafi verið komið fyrir
á bifreiðinni (glerflöskur fylltar
með eldsneyti) en mesti bruninn
varð utan á bifreiðinni, að sögn
lögreglu. Áfram er unnið að
rannsókn málsins.
Tveir handteknir vegna bílbruna á Akureyri
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Þjóðskráin notaði gögn um leigusamninga,
meðal annars frá góðærisárunum 2006 og
2007, og nýtti þá til viðmiðunar til að gera nýtt
fasteignamat. Hið nýja fasteignamat Þjóð-
skrárinnar hefur mætt töluvert harðri gagn-
rýni frá verslunareigendum enda hækkar fast-
eignamat atvinnuhúsnæðis á landinu öllu um
12,4% á milli ára.
Morgunblaðið hefur verið að skoða versl-
unarhúsnæði við Skólavörðustíg undanfarna
viku þar sem fermetramat hækkar mikið á
milli ára, úr 174 þúsundum á fermetra í 304
þúsund krónur.
Tölfræðilíkan smíðað til að
endurspegla gangverð
Leigusamningar, kaupsamningar og skrán-
ingarupplýsingar um eignir eru notaðir til þess
að smíða tölfræðilíkön sem eiga að end-
urspegla gangverð í febrúar 2014 sem lögum
samkvæmt er það sem fasteignamat skal mið-
að við. Við gerð líkansins voru notaðir samn-
ingar frá góðærisárunum 2006 og 2007 sem
verslunareigendur eru margir hverjir ósáttir
við.
„Það er rétt að verðlag breytist. Sérstaklega
þegar miklar sviptingar eiga sér stað eins og
gerðist árið 2008,“ segir Ingi Finnsson, sér-
fræðingur hjá Þjóðskrá Íslands. „Við tölfræði-
líkönin sem leigulíkönin byggjast á voru not-
aðir um 5000 leigusamningar. Úr
leigusamningum eru m.a. notaðar upplýsingar
um upphafsleiguverð, stærð og gerð hins
leigða. Hver leigusamningur ber aðeins vitni
um verðlag á þeim tímapunkti þegar hann er
gerður. Þannig eru verðtryggingarákvæði
samninga ekki nýtt. Til þess að geta borið
saman eldri og nýrri samninga eru eldri samn-
ingar færðir til verðlags miðað við verðlag
samninga sem gerðir eru í febrúar 2014,“ segir
Ingi og tekur eitt dæmi máli sínu til stuðnings.
„Sem dæmi getum við hugsað okkur samn-
ing um verslunarhúsnæði frá febrúar 2008
uppá 2.200 krónur á fermetra. Gefum okkur að
samningurinn væri til 10 ára verðtryggður
með vísitölu neysluverðs og enn í gildi. Vísitala
neysluverðs var 282,6 í febrúar 2008 en 418,9 í
febrúar 2014.
Upphafleg upphæð samnings: 2.200 kr.
Greiðsla leigutaka í febrúar 2014:
2.200*418,9 / 282,6 = 3.261 kr.
Tímaleiðrétt upphæð leigusamnings í febr-
úar 2014, sem er upphæð notuð til að reikna
fasteignamat 2015, er 2.147 kr.
Það var sem sagt niðurstaða tölfræðinnar að
nafnverð leiguverðs skrifstofuhúsnæðis hefði
lækkað um 2,4% frá febrúar 2008 til febrúar
2014. Á sama tíma hefur verðbólgan hækkað
verðtryggðan samning um 48,2%.
Raunleigutekjur af húsnæðinu í þessu dæmi
eru því um 46% hærri en metnar markaðs-
leigutekjur sem fasteignamatið byggist á.
Á sama tíma, frá febrúar 2008 til febrúar
2014, hefur nafnverð fjölbýlis á höfuðborg-
arsvæðinu hækkað almennt um 10,7% eða
rúmlega 8% meira en leiguverð versl-
unarhúsnæðis.“
Rúmlega 5000 samningar nýttir
Morgunblaðið/Golli
Hækkar Fermetramat verslunarhúss við
Skólavörðustíg hækkar mikið.
Samningar frá góðæristímanum notaðir til viðmiðunar við gerð hins nýja fasteignamats
Falleg
jólagjöf
frá Ernu
Handsmíðaðiríslenskir
silfurmunir í 90 ár
virka daga 10-18, laugardaga 11-14
Póstsendum
Serviettuhringurinn 2014
Verð: 12.500
Jólaskeiðin 2014
(hönnun Sóley Þórisdóttir)
Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.isERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA
Silfurmunir og skartgripir síðan 1924
0Verð: 19.50
Skeiðin
er smíðuð
á Íslandi úr
ósviknu silfri.