Morgunblaðið - 13.11.2014, Page 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2014
Þrír sænskir
ríkisborgarar,
sem hafa barist
fyrir málstað
samtakanna Rík-
is íslams, féllu í
loftárás Banda-
ríkjamanna í
sýrlenska bæn-
um Kobane á
sunnudag. Þetta
kemur fram í
sænska dagblaðinu Expressen.
Tveir mannanna féllu samstundis
en sá þriðji lést af sárum sínum eft-
ir þessa sömu árás. Sænska utan-
ríkisráðuneytið hefur ekki staðfest
fregnirnar. Í frétt Expressen kem-
ur fram að allir mennirnir hafi ver-
ið af sómölskum uppruna. Þá segir
að í hverri viku fari sex til sjö Svíar
til Sýrlands til að berjast við hlið
vígamanna Ríkis íslams. Kobane
hefur sætt árásum vígamanna sam-
takanna síðan um miðjan sept-
ember en bærinn hefur verið var-
inn af kúrdískum bardagamönnum.
SÝRLAND
Þrír Svíar féllu í loft-
árás Bandaríkjanna
Kobane Þrír Svíar
féllu í loftárás.
Svíar hafa eign-
ast sinn fyrsta
heimsmeistara í
póker þegar
Martin Jacobson
fagnaði titlinum.
Fékk hann að
launum 10 millj-
ónir bandaríkja-
dala eða það sem
nemur rúmum
1,2 milljörðum
íslenskra króna. Mótið er haldið í
Las Vegas og þar taka þátt þús-
undir keppenda. Norðurlandabúar
voru áberandi á mótinu og í öðru
sæti varð Norðmaðurinn Felix
Stephensen og fékk hann að laun-
um rúma 5,1 milljón dollara eða það
sem nemur tæpum 640 milljónum
íslenskra króna. Þeir sem voru
skráðir til leiks þurftu flestir að
borga 10 þúsund dollara eða það
sem nemur rúmum 1,2 milljónum
króna, í þátttökugjald. Sumum var
þó boðið á mótið.
SVÍÞJÓÐ
Svíar eignast heims-
meistara í póker
Sigurvegari Mart-
in Jacobson vann.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Dag frá degi hefur ólga vegna fyr-
irhugaðra framkvæmda við nýjan
skipaskurð í Níkaragva vaxið í land-
inu. Búist er við því að allt að 30 þús-
und manns muni þurfa að flytja bú-
ferlum á framkvæmdatímanum en
áætlanir gera ráð fyrir því að ein-
ungis taki fimm ár að grafa skurðinn
og að fyrsta skipið muni geta siglt
um hann árið 2019.
Stærri en Panamaskurðurinn
Samkvæmt áætlunum verður
skurðurinn mun stærri en Panama-
skurðurinn sem til þessa hefur tengt
saman Kyrrahaf og Atlantshaf,
þvert í gegnum Suður-Ameríku.
Hefur hann fært Panama mikinn
auð. Skurðurinn í Níkaragva verður
278 kílómetra langur, 30 metra djúp-
ur og um 230 metrar að breidd. Til
samanburðar er Panamaskurðurinn
87 kílómetra langur, 15 metra djúp-
ur og rúmlega 33 metra breiður þar
sem hann er breiðastur.
Munu því allra stærstu skip kom-
ast um hinn nýja skipaskurð en ekki
hefur verið fært fyrir þau um Pa-
namaskurðinn og hafa sum stærstu
flutningafyrirtæki heims þurft að
velja aðrar kostnaðarsamari flutn-
ingsleiðir.
Mæta vopnum búnir á heimili
Mikil leynd þykir vera yfir áform-
unum. Þannig hafa forsetinn, Daniel
Ortega, og nánustu samstarfsmenn
hans, einir upplýsingar um það hver
áætlaður kostnaður við verkefnið
verður. Þá hefur forsetinn ekkert
gefið upp um það hvort íbúar, sem
þurfa að flytja af svæðinu umhverfis
skurðinn, fái bætur eða hverjar þær
yrðu. Þetta vekur mörgum ugg og
mótmæli hafa víða sprottið upp
vegna þessa. Samhliða eru margir
ósáttir við það að kínverskur fjár-
festir standi að baki framkvæmdun-
um og telja margir að með því séu
kínversk stjórnvöld að reyna að auka
ítök sín í landinu. Einu samskipti
íbúa við yfirvöld hafa til þessa verið í
gegnum starfsmenn kínverska verk-
takafyrirtækisins sem mætt hafa í
fylgd vopnaðra lögreglu- og her-
manna á heimili fólks til þess að taka
út hýbýli þess og skoða svæðið þar
sem til stendur að grafa skurðinn.
Náin tengsl við Peking
Fréttaskýrendur segja að það
þurfi ekki að koma á óvart að kín-
verskt fyrirtæki standi að fram-
kvæmdunum. Daniel Ortega hefur í
forsetatíð sinni haldið sterkum
tengslum við Peking. Þykja áformin
koma til með að styrkja stöðu Kín-
verja í Suður-Ameríku. Sérstaklega
þegar tekið er tillit til þess hve að-
gengi landsins að hrávöru og fæðu
mun batna eftir að skurðurinn verð-
ur tekinn í notkun.
Frekari fjárfestinga að vænta?
Fjárfestingin kemur frá fyrirtæki
í eigu kínverska viðskiptajöfursins
Wing Jang. Talið er að kostnaðurinn
við framkvæmdirnar verði um 50
milljarðar dollara eða um 6214 þús-
und milljarðar króna. Vinskapur
myndaðist á milli Wang og Ortega
eftir að forsetinn sendi son sinn til
Kína til þess að kanna möguleika á
fjárfestingu Kínverja í Níkaragva. Í
fyrstu stóð til að Wang myndi fjár-
festa í uppbyggingu á fjarskiptaneti í
landinu. Ekkert varð úr þeim áform-
um en þess í stað var ákveðið að
beina fénu til þess að gera skipa-
skurðinn. Til þess að fá velvild
stærstu viðskiptamanna Níkaragva
bauð Wang þeim til Kína þar sem
þeir nutu fylgdar lögreglu líkt og um
heimsókn þjóðhöfðingja væri að
ræða. Síðan hafa gagnrýnisraddir úr
fjármálaheiminum í Níkaragva svo
til þagnað en þess í stað hefur vakn-
að orðrómur um að frekari fjárfest-
ingar Kínverja sé að vænta í landinu.
Umdeildum skipaskurði
mótmælt í Nígaragva
Gert er ráð fyrir að skipaskurður sem tengir Kyrrahaf og Atlantshaf verði
tilbúinn árið 2019 Stærri en Panamaskurðurinn Eykur áhrif Kína
AFP
Mótmæli Íbúar á svæðinu þar sem áform eru um að grafa skurðinn eru uggandi yfir áformunum. Ljóst er að þeir
munu þurfa að flytja búferlum vegna framkvæmdanna en ekkert hefur verið gefið upp um bætur til þeirra.
278 km skurður
» Til stendur að grafa 278
kílómetra skurð þvert í gegn-
um Níkaragva og tengja
þannig Kyrrahafið og Atl-
antshafið.
» Skurðurinn er mun stærri
en Panamaskurðurinn.
» Margir óttast aukin ítök
Kínverja í landinu.
» Íbúar nærri skurðinum
hafa mótmælt áformunum
Aserskar hersveitir skutu niður
armenska herþyrlu í gær. Þetta
kom fram í tilkynningu frá varn-
armálaráðuneyti Aserbaídsjans í
Bakú. Aserar og Armenar hafa
lengi eldað grátt silfur saman vegna
Nagorno-Karabakh, sem er land-
svæði sem liggur á milli landanna.
Árásin í gær þykir vera alvarleg-
asti atvikið í Nagorno-Karabakh
síðan samið var um vopnahlé á milli
landanna árið 1994. Átökin eiga
rætur sínar að rekja til ársins 1988
þegar Nagorno-Karabakh lýsti yfir
sjálfstæði. Héraðið var byggt Ar-
menum innan landamæra Aserbaíd-
sjans. Aserar líta svo á að vera Ar-
mena í Nagorno-Karabakh sé
ólögleg.
Talið er að um 30 þúsund manns
hafi látið lífið í átökunum og um
milljón hafi hrakist frá heimilum
sínum. Brotist hafa út átök öðru
hverju síðan.
Að sögn armenskra fjölmiðla
voru þrír menn voru í þyrlunni þeg-
ar hún fórst. Þeir létust allir.
vidar@mbl.is
AFP
Herþyrla Aserar skutu niður armenska herþyrlu í gær.
Aserar skutu niður
armenska herþyrlu
Alvarlegasta atvikið síðan árið 1994
Innihurðir
í öllum stærðum
og gerðum!
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Lei
tið
tilb
oða
hjá
fag
mö
nnu
m o
kka
r
• Hvítar innihurðir
• Spónlagðar innihurðir
• Eldvarnarhurðir
• Hljóðvistarhurðir
• Hótelhurðir
• Rennihurðir
• Með og án gerefta