Morgunblaðið - 13.11.2014, Qupperneq 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2014
Alhæfingar segja
stundum meira um
þann sem þeim beitir
en hinn sem alhæft er
um, þó ætlunin sé
væntanlega þveröfug.
Þetta vita allir sem
hafa lifibrauð sitt af að
vinna með íslenskt
mál, í ræðu og riti. Því
sperrir fólk eyrun
þegar málsmetandi
rithöfundar hefja upp raust sína og
kveða upp dóma í umdeildum mál-
um.
Einar Kárason rithöfundur kýs
að kalla fólk sem býr utan Reykja-
víkur hyski. Það má vera að Einar
tali af biturri reynslu … en sam-
kvæmt orðabókinni þýðir hyski
ómerkilegt fólk eða illþýði. Hyski
getur þó einnig þýtt fjölskylda en
tæpast gengur sú merking upp í
samhengi Einars. Þetta verður að
teljast skólabók-
ardæmi um alhæfingu,
því Einar þekkir frá-
leitlega alla íbúa
landsbyggðarinnar. En
þetta ómerkilega fólk
og illþýði er líka frekt,
í huga Einars. Þar er
önnur alhæfing, lítið
betri en sú fyrri.
Svo virðist sem ein-
hverjum hafi líkað
miður að vera kallað
„frekt, ómerkilegt fólk
og illþýði“ og látið rit-
höfundinn vita af þeirri skoðun
sinni. Viðbrögð hans voru athygl-
isverð „hann þekkti nú fæst af
þessu liði“ sem mátti skilja á þann
veg, að þar sem Einar þekkti ekki
viðkomandi skiptu skoðanir þeirra
ekki máli. Einar kýs að ganga
lengra og hæðast að þeim sem hafa
sterkar skoðanir á flugvallarmálinu:
„Ég ákvað að prófa, ýta við þessu
og sjá hvernig menn myndu bregð-
ast við. Þetta reyndist hárrétt hjá
mér. Þetta er eins og Grátmúrinn
fyrir gyðingana.“
Ég er þeirrar skoðunar að Einar
hafi eins rangt fyrir sér og hægt er
að hafa, þegar hann nálgast málið
með þessum hætti. Það er sérstök
söguskoðun að kalla niðrandi alhæf-
ingar um tugi þúsunda fólks tilraun
til að ýta við einhverju. Eina sem
ýtt var við er álit fólks á persón-
unni Einari Kárasyni sem kýs að
kalla fólk illþýði fyrir það eitt að
hafa aðra skoðun en hann sjálfur.
Merkilegast finnst mér þegar
menn leyfa sér að gera þúsundum
manna upp skoðanir. Eins og Einar
Kárason hafi hugmynd um hvað öll-
um sem búa utan Reykjavíkur
finnst um flugvallarmálið? Hvað þá
að hann taki sér þann rétt að hæð-
ast að og atyrða sama fólk, fyrir
hans ímyndanir um álit þess.
Viðbrögð mín, og mögulega fleira
fólks við skrifum Einars, hafa ekki
neitt með flugvöllinn í Vatnsmýr-
inni að gera. Mér finnst leitt þegar
hroki er talinn eðlilegur málflutn-
ingur, burtséð frá hvert umræðu-
efnið er. Jafnvel þótt menn telji sig
vera stóra kalla.
Hyski Einars
Eftir Kára
Gunnarsson »Mér finnst leitt þeg-
ar hroki er talinn
eðlilegur málflutningur,
burtséð frá hvert um-
ræðuefnið er. Jafnvel
þótt menn telji sig vera
stóra kalla.
Kári
Kári Gunnarsson
Höfundur er kennari.
Ég vona heilshugar að Alþingi sam-
þykki ekki að leyfa sölu áfengis í
matvöruverslunum. Ef það verður
gert missi ég allt álit á Alþingi. Ég
vil ekki trúa því að óreyndu, það er
nóg böl í íslensku þjóðfélagi, það
þarf ekki að auka það enn frekar.
Gunnar Halldórsson,
Bríetartúni 20, Reykjavík.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Áfengi í matvöruverslunum
Vín Verður þetta algeng sjón í mat-
vöruverslunum framtíðarinnar?
Fjögurra kvölda keppni hjá
Bridsdeild Breiðfirðinga
Það var spilað á 12 borðum 9. nóv
sl. í keppni sem stendur yfir í 4 kvöld
og 3 bestu kvöldin ráða úrslitum.
Úrslit í N/S:
Unnar A. Guðmss. – Guðm. Sigursteinss.262
Oddur Hanness. - Árni Hannesson 248
Þorl. Þórarinss. – Haraldur Sverriss. 240
Úrslit A/V:
Jón Hákon Jónss. – Bergljót Gunnarsd. 241
Ari Gunnarsson – Snorri Markússon 239
Úlfar Reynisson – Þröstur Reynisson 238
Staðan í mótinu eftir eitt kvöld:
Unnar Guðmss. – Guðm. Sigursteinss.. 262
Oddur Hanness. - Árni Hannesson 248
Jón Hákon Jónss. – Bergljót Gunnarsd. 241
Þorleifur Þórarinss. – Haraldur Sverriss.240
Ari Gunnarss. – Snorri Markússon 239
Úlfar Reyniss. – Þröstur Reynisson 238
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Allt of oft er það því
miður þannig að fólki
er ekki sýndur til-
hlýðilegur sómi og
virðing fyrr en það er
horfið af sjónarsvið-
inu. Er það ekki um-
hugsunarvert og
reyndar dálítið nöt-
urlegt til þess að
hugsa að fólk fái ekki
raunverulegan áhuga
á samferðafólki sínu,
læri ekki að meta það og sýna því
umhyggju og virðingu fyrr en þá í
fyrsta lagi eftir að það er horfið
því sjónum, farið yfir móðuna
miklu?
Stráðu fræjum kærleika
Elskaðu á meðan þú lifir. Elsk-
aðu fólkið þitt á meðan það lifir.
Því þegar fólkið þitt er farið er
nefnilega of seint að sýna því um-
hyggju, virðingu og
ást svo það fái notið
þess.
Fegraðu umhverfi
þitt með gjöfum.
Stráðu fræjum kær-
leika og umhyggju
allt í kringum þig,
hvar sem þú ert og
hvert sem þú ferð.
Og þín verður
minnst sem þess
sem elskaði. Þess
sem bar raunveru-
lega umhyggju fyrir
fólki.
Hver verður
minningin um þig
Ef þú vaknaðir nú ekki í fyrra-
málið, hvar stæði fólkið þitt þá?
Hverjar yrðu myndir þess af þér
og minningar um þig? Þú tekur
ekkert með þér þegar þú ferð, en
hvað muntu skilja eftir þig? Hver
verður ævisaga þín, arfleifðin
sem þú skilur eftir þig? Fyrir
hvað viltu raunverulega að fólkið
þitt og samferðamenn minnist þín?
Þér er ætlað hlutverk
Hvaða draum átt þú annars æðri
en þann að vera hluti af áætlun
Guðs? Hvaða markmið átt þú há-
leitara en það að vera valinn í lið
lífsins og fá að spila með til sigurs?
Vera í sigurliðinu.
Vertu kærleikans megin og
berstu trúarinnar góðu baráttu.
Því að þér er ætlað hlutverk í
þessum heimi. Að vera fólkinu
þínu og öllum þeim sem á vegi þín-
um verða til blessunar og þannig
Guði til dýrðar og sjálfum þér til
heilla.
Gleymum ekki að þótt árin fjúki
og samtíminn kunni að hafna okk-
ur og dæma okkur úrelt. Já, jafn-
vel þótt ævinni ljúki, fyrr en við
vildum, þá verður engin gengisfell-
ing hjá Guði. Í hans augum er líf
þitt eilífðar verðmæti. Hann elskar
þig út af lífinu. Hann sem er lífið
sjálft. Höfundur þess og fullkomn-
ari.
Mundu að lífið er gimsteinn þér
af Guði gefinn. Partur af auðlegð
himinsins. Eilíf perla sem þér er
falið að gæta og pússa, dag hvern
þar til yfir lýkur.
Stöndum saman í þeirri kær-
leiksþjónustu sem við raunveru-
lega vorum kölluð til og látum
muna um okkur, því við skiptum
máli í þessari veröld, hvert og eitt.
Með kærleikskveðju. Lifi lífið!
Hver verður ævisaga þín?
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson » Þú tekur ekkert með
þér þegar þú hverf-
ur úr þessum heimi. En
hvað viltu skilja eftir
þig? Hver verður ævi-
saga þín þegar upp er
staðið?
Sigurbjörn
Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og áhugamaður um lífið.
mbl.is
Jólablað
–– Meira fyrir lesendur
Sérblað Morgunblaðisins
um jólin og jólahald
kemur út fimmtudaginn
20. nóvember
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Fullt af góðu efni fyrir alla aldurshópa
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 12 mánudaginn
17. nóvember.
Sjónmælingar í Optical Studio
Tímapantanir í síma:
Optical Studio í Smáralind, 5288500
Optical Studio í Keflavík, 4213811
Optical Studio í Leifsstöð, 4250500
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/