Morgunblaðið - 13.11.2014, Page 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2014
„Af hverju? Það er ekkert að
mér, eruð þið eitthvað þreytt?“
Þetta lýsir þér, þú varst bar-
áttujaxl með bros á vör.
Það er skrýtið að hugsa til
framtíðarinnar án þess að geta
hringt í þig, hlegið með þér,
grátið með þér, haldið utan um
þig eða deilt lífi stelpnanna
okkar Peters með þér. Það er
stórt tómarúm í fjölskyldunni
eftir fráfall þitt og sorgin er
óbærileg. En efst í huga mér er
þakklæti fyrir allar þær stundir
sem við áttum saman og allar
þær stundir sem Lea og Eva
fengu að eiga með þér.
Þú varst stórkostleg mann-
eskja, svo sterk, fáguð, fram-
takssöm og hjartahlý.
Minning þín verður í háveg-
um höfð og stelpurnar okkar
Peters munu fá að upplifa þig í
gegnum fjölskylduna okkar um
ókomna tíð. Þín verður ávallt
saknað. Takk fyrir allt. Við
elskum þig.
Elsku Guðmundur, Kristján,
mamma, Palli og Jón, Guð gefi
ykkur styrk í sorginni.
Linda.
Elsku Kiddý mín, það hel-
taka mig sorg og söknuður við
að reyna að skrifa kveðjuorð til
þín. Það hefði átt að vera öfugt.
Ég er 12 árum eldri.
Ég man eftir fyrstu stund-
inni okkar. Ég fékk þig í fangið
viku gamla, sem kom til af því
að við Þórhildur systir þín vor-
um bestu vinkonur á þessum
árum og erum enn. Hvað ég öf-
undaði hana af þér. Hún fékk
systur, en ég var nýbúin að
eignast bróður og átti ég þrjá
fyrir. Mig langaði svo mikið í
systur, svona dúkkubarn eins
og þig, fíngerða með stór græn
augu og ljósar krullur. Ég fékk
þig þó sem einskonar skásystur
svo að mér fannst ég alltaf eiga
mikið í þér.
Þú varst strax óspör á brosið
og góða skapið, en þú varst líka
fljótt ákveðin, vissir hvað þú
vildir og klók að ná þínu fram í
stórum systkinahópi.
Þórhildur átti að halda þér
undir skírn og þegar mamma
þín sagði henni nöfnin, þá sagði
hún stutt og laggott nei, en að
sjálfsögðu fékk hún ekki að
ráða. Þú hlaust þrjú falleg nöfn
sem voru stór fyrir litla dúkku,
en eltust vel með þér, Kristín
Sæunn Ragnheiður. Við vinkon-
urnar ákváðum að stytta þetta
aðeins og eftirleiðis kölluðum
við þig Kiddý. Þórhildur varð
að Hiddý og ég varð Hanna.
Kiddý fór á sautjánda ári til
Bandaríkjanna og hélt alla tíð
góðu sambandi við fjölskyldu
sína þar. Hún varð fljótt hrifin
af því að vinna hjá ferðatengdu
fyrirtæki og Loftleiðir urðu
hennar starfsvettvangur sem
síðar breyttist í Icelandair.
Hún var afar dugleg til vinnu
og var komin fljótt í yfirmanns-
stöðu, enda var hún fljót að
leysa hvers manns vanda á fyr-
irtækjasviði. Hún var vakin og
sofin í starfi sínu og hennar er
sárt saknað þar eins og annars
staðar. Hún hélt sínum per-
sónueinkennum alla tíð, glað-
lynd, ákveðin en jafnframt
hrein og bein.
Hiddý og Kiddý voru alla tíð
mjög nánar systur og því hafa
verið erfiðir tímar hjá fjöl-
skyldu Hiddýjar og okkur öllum
sem þekktum hana. Mestur er
þó söknuðurinn hjá Guðmundi
og Kristjáni Þór, sonum henn-
ar, því hún var þeirra haldreipi
í veikindum, en þeir voru svo
sannarlega til staðar fyrir hana
í erfiðum veikindum. Hún upp-
skar þar eins og hún sáði. Það
er erfitt hjá Jóni manni hennar,
en það eru aðeins tvö ár frá því
að þau gengu í hjónaband.
Stuttu áður fluttu þau í nýtt
yndislegt hús þar sem allt var
eins og þau vildu hafa það. Þau
hjónin voru farin að stunda
golf, en húsið stendur við golf-
völl. Nú verða ferðirnar ekki
fleiri hjá Kiddý minni. Hún hef-
ur lagt af stað í stærri ferð.
Ég þakka þér samfylgdina og
sendi fjölskyldunni mínar inni-
legustu samúðaróskir. Minning
þín lifir í ljósinu.
Ég veit þú heim ert horfin nú
og hafin þrautir yfir
svo mæt og góð, svo trygg og trú
svo tállaus, falslaus reyndist þú
ég veit þú látin lifir!
(Steinn Sigurðsson)
Samúðarkveðja,
Sigurhanna.
Við fjölskyldan vorum stödd
á Flórída þegar við fengum
fregnir af því að Kiddý frænka
væri látin. Ferð sem hún hafði
skipulagt fyrir okkur eins og
svo oft áður. Ferð sem hún og
Jón ætluðu reyndar að fara í
með okkur.
Kiddý hafði svo oft komið og
verið með okkur í nokkra daga
þegar við fjölskyldan vorum
stödd á Flórída. Oft kom hún
með stuttum fyrirvara og lét
hún sér þá nægja sófann í stof-
unni ef annað var ekki í boði.
Aðalmálið var að koma og vera
með okkur í fjölskyldunni og
spila golf og hafa gaman. Það
var alltaf skemmtilegt að vera
með Kiddý. Léttleikinn, húm-
orinn og stríðnin var aldrei
langt undan. Hún var líka ein-
læg og mjög traustur og góður
vinur. Kiddý var falleg utan
sem innan. Hún var smekkleg
og kunni vel að meta fallega
hluti. Heimili hennar og Jóns
ber þess glöggt vitni.
Við áttum margar frábærar
stundir í fjölskylduboðum, á
Flórída og í golfinu.
Kiddý var mér afar kær og
er ég þakklát fyrir að hafa átt
hana fyrir frænku og ekki síður
sem góðan vin. Ég er þakklát
fyrir þær stundir sem við áttum
saman og mun ég varðveita þær
minningar með gleði í hjarta.
Blessuð sé minning hennar.
Elsku Jón, Guðmundur og
Kristján. Megi Guð styrkja
ykkur á þessum erfiðu tímum.
Sólveig Ögmundsdóttir.
Kiddý frænka var svo miklu
meira en frænka, hún var líka
bónus-amma strákanna okkar –
og þvílíkur bónus! Hún tók son-
um okkar eins og þeir væru
hennar eigin barnabörn og þau
átta ár sem við bjuggum í Dan-
mörku kom hún ófáar ferðirnar
í heimsókn til okkar og þá var
nú glatt á hjalla. Við vorum allt-
af hlæjandi, spilandi golf og
dansandi. Svo reyndum við að
kenna Kiddý á barnalæsingarn-
ar á skápunum og hlógum mikið
þegar við komumst að því að
hún gat bara ekki lært á þær,
hún hló auðvitað mest sjálf og
kallaði á Pétur Stein sem var
eins árs til að opna skápana. Já,
Kiddý hafði húmor fyrir sjálfri
sér og það var stutt í hennar
smitandi hlátur.
Kiddý eyddi heilli viku hjá
okkur í Horsens fyrir nokkrum
árum, dásamlegur tími þar sem
var spilað golf, legið í sólbaði og
notið þess að vera til. Þessi tími
var dýrmætur, sérstaklega
núna þegar horft er til baka.
Strákarnir voru mjög hændir
að henni og hún var alltaf mætt
í Engjaselið til að hitta okkur
um leið og við vorum lent á Ís-
landi.
Fjölskyldan var Kiddý mik-
ilvæg og hún lagði mikið á sig
til að hjálpa öllum, það var ekki
svo sjaldan sem hún steig inn
og aðstoðaði okkur með flug-
bókanir milli Íslands og Dan-
merkur, bauð okkur í mat og
gistingu og vildi bara allt fyrir
okkur gera. Alltaf var hún að
færa strákunum okkar gjafir,
þó engin væru tilefnin.
Kiddý átti tvær fjölskyldur,
því Icelandair-starfsfólkið var
henni eins og önnur fjölskylda.
Mikið talaði hún alltaf fallega
um þetta frábæra fólk sem hún
vann með og hefur sýnt henni
ómetanlegan stuðning í veikind-
unum. Það erum við í fjölskyld-
unni ákaflega þakklát fyrir.
Kiddý bar hag Icelandair fyrir
brjósti fram á síðasta dag og
spáði mikið í hvort gosið í Holu-
hrauni myndi nokkuð trufla
flug.
Þórhildur og Kiddý voru
mjög nánar systur, þær töluðu
saman daglega „tékkuðu inn“
eins og þær sögðu á Icelandair-
ísku og því er missir Þórhildar
mikill. Þær systur voru dásam-
legar saman, fengu oft óstöðv-
andi hlátursköst sem enduðu
með því að allir í kring voru
farnir að hlæja. Slíkar minn-
ingar hlýja okkur um hjarta-
ræturnar núna á þessum erfiðu
tímum.
Kiddý tókst á við veikindin
sín af æðruleysi og bjartsýni,
þó sjokkið væri óneitanlega
mikið þegar hún greindist með
meinvörp í heila í júní, einu og
hálfu ári eftir að hún fékk
brjóstakrabbameinið. Hún
kvartaði aldrei, hélt ótrauð
áfram og mætti í vinnuna eins
mikið og hún gat. Í síðasta
skipti sem við heimsóttum hana
sagði hún „elsku hjartað mitt“
þegar við sögðum henni að
Björgvin Franz hefði meitt sig
og væri á hækjum, en þegar
þarna var komið átti hún erfitt
með að tjá sig og þessi þrjú fal-
legu orð fannst mér lýsa henni
einstaklega vel.
Það er svo stutt síðan sól
skein í heiði, þann 17. júní 2012,
þegar Kiddý og Jón giftu sig.
Missir Jóns er mikill, því hann
og Kiddý náðu einstaklega vel
saman. Við vottum honum og
sonum Kiddýjar, þeim Guð-
mundi og Kristjáni, okkar
dýpstu samúð sem og öðrum
aðstandendum. Minning Kid-
dýjar mun lifa í hjörtum okkar
um ókomna tíð.
Hlynur, Lísa og synir.
Kær vinkona er fallin frá,
langt um aldur fram. Við kynnt-
umst þegar við hófum störf hjá
Loftleiðum hf. í marsmánuði
1973 sem síðar á því ári varð að
Flugleiðum. Þetta var í byrjun
tölvuvæðingar flugreksturs og
sátum við meðal annars yfir
stórum klöddum, bættum strik-
um við eftir því sem fleiri pönt-
uðu sæti og strokuðum út með
strokleðri þegar kom afpöntun.
Á þessum árum myndaðist vin-
skapur, sem aldrei hefur rofnað
síðan. Við brölluðum margt
þessa áratugi og áttum margar
yndislegar stundir.
Við stöllurnar unnum í góð-
um hópi að undirbúningi að
starfsmannafélagi og var það
síðan stofnað 26. maí 1977 og
sat Kristín í fyrstu stjórn
Starfsmannafélags Flugleiða,
STAFF.
Saman höfum við farið í ótal
kynnisferðir með skemmtilegu
fólki og stundum bara tvær eins
og þegar ég fór með henni fyrir
óralöngu til að skoða golfvöll og
hótel rétt hjá Glasgowflugvelli.
Hún dró mig út á golfvöllinn á
tangótöfflunum og kenndi mér
að slá. Eftir það varð ekki aftur
snúið og ég keypti í þeirri ferð
þrjár kylfur sem ég notaði lengi
vel. Síðast spiluðum við saman í
Flórída fyrir ári og skemmtum
okkur frábærlega.
Þrátt fyrir að ég flytti til
Stokkhólms og síðar til Ísa-
fjarðar fyrir meira en tuttugu
árum hélt vinskapurinn áfram
og síminn fékk mikilvægara
hlutverk og fáir dagar sem við
heyrðumst ekki. Nóg var fyrir
mig að hugsa til hennar, þá
hringdi hún eða öfugt. Síðan
var yfirleitt hist bæði í Reykja-
vík og á Ísafirði.
Kristín var hvers manns hug-
ljúfi og átti stóran vinahóp, sem
hélt vel saman. Vinnan var
henni allt, hún lagði sig alla
fram um að sinna sínum við-
skiptavinum og var vakin og
sofin yfir velferð fyrirtækisins.
Það var mikið áfall þegar hún
veiktist fyrir tveimur árum, en
með einstökum dugnaði og elju
komst hún yfir veikindin. Vá-
gesturinn bankaði svo aftur á
um mitt þetta ár og fljótlega
ljóst að sú barátta yrði erfiðari.
Við Kristján vottum eftirlif-
andi eiginmanni, Jóni, sonunum
Guðmundi Þór og Kristjáni
Erni, systkinunum og þeirra
fjölskyldum okkar innilegustu
samúð við þetta ótímabæra frá-
fall Kristínar.
Inga Steinunn Ólafsdóttir
og Kristján G. Jóhannsson.
Elskuleg vinkona okkar, hún
Kristín, er farin í sína síðustu
ferð og minnumst við hennar
með þakklæti fyrir einstaka
vináttu og tryggð síðastliðna
áratugi. Við kynntumst allar á
áttunda áratugnum gegnum
vinnu okkar hjá Flugleiðum og
efldist vinátta okkar og sam-
verustundir utan vinnu urðu
fleiri þar til hefð komst á reglu-
legan hitting, ýmist heima, í
bænum eða í sumarbústað.
Bjarta brosið hennar, blikið í
augunum og glettnin, sem alltaf
var stutt í, voru hennar að-
alsmerki, einnig hversu úrræða-
góð og ábyrgðarfull hún var
gagnvart viðskiptavinum sínum
sem hún hugsaði svo vel um í
starfi sínu hjá Icelandair sem
hún hafði miklar mætur á.
Kristín tók veikindum sínum
af miklu æðruleysi sem og öðru
mótlæti í lífinu og leit á það
sem verkefni sem yrði að leysa
en því miður tókst ekki að leysa
það síðasta og vissi hún að
möguleikarnir á sigri væru litl-
ir. Við fengum að njóta sam-
vista við hana í allt of stuttan
tíma en þökkum fyrir hverja
stund og erum rækilega minnt-
ar á að njóta augnabliksins því
enginn veit hvað morgundag-
urinn ber í skauti sér.
Hugur okkar og bænir eru
hjá Jóni og sonum hennar, Guð-
mundi Þór og Kristjání Erni,
Þórhildi systur hennar og fjöl-
skyldunni allri. Megi almættið
gefa þeim styrk.
Ég kveð þig, hugann heillar minning
blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Guð blessi elsku Kristínu
okkar í nýjum heimkynnum.
Anna Guðný Aradóttir,
Elísabet Hilmarsdóttir,
Guðrún Jóhannsdóttir,
Helga Bjarnason og
Kristín Aradóttir.
Sorgarský hefur hvílt yfir
deildinni okkar undanfarið.
Kristín Guðmundsdóttir, deild-
arstjórinn okkar og vinkona,
kvaddi þennan heim hinn 2.
nóvember eftir stutt veikindi.
Hún hafði svo sem skotið okkur
skelk í bringu áður, þegar hún
veiktist fyrir tveimur árum, en
naglinn Kristín hafði komist í
gegnum þau veikindi og við
trúðum lengi framan af að
henni myndi takast ætlunar-
verk sitt aftur og vinna þessa
baráttu. Því miður tapaðist bar-
áttan og eftir sitjum við með
sorg í hjarta
Kristín starfaði í rúm 40 ár
hjá Icelandair og var starfið
hennar líf og yndi, enda fylgdist
hún með því sem var að gerast
á vinnustaðnum fram á síðasta
dag. Við vorum duglegar að
segja henni allt sem var í gangi
í vinnunni þegar við heimsótt-
um hana á sjúkrabeðinn og það
eru engar ýkjur að hún ljómaði
þegar talið barst að vinnunni.
Það var árið 2002 sem við-
skiptasala Icelandair var stofn-
uð. Kristínu var falin sú ábyrgð
að veita deildinni forstöðu og
móta þá þjónustu sem þar yrði
veitt. Hún varð deildarstjóri við
stofnun hennar fyrir 12 árum
og þar til yfir lauk. Hún bar
ávallt hag deildarinnar fyrir
brjósti. Það er ekki ofsögum
sagt að þegar einhver okkar
lenti í persónulegum vanda-
málum var hún eins og klettur
og studdi sitt fólk í gegnum erf-
iðleika og alltaf gott að leita til
hennar þegar á reyndi. Hún
kunni þá list að leysa vel úr
vandamálum sem upp komu
varðandi bókanir og ef farþegar
lentu í vandræðum. Enda aug-
ljóst að 40 ára starfsreynsla
skilar bæði útsjónarsemi, kunn-
áttu og, það sem er ekki verra,
að þekkja allt og alla ef leita
þurfti út fyrir deildina við lausn
mála.
Hópurinn okkar hefur brall-
að margt utan vinnutíma í
gegnum árin, farið saman til út-
landa, ferðast innanlands og átt
góðar stundir á öðrum vett-
vangi. Það hefur hrist okkur
betur saman og skilað sér í frá-
bærum hópi, sem Kristín naut
að vera hluti af og vildi hún
helst ekki missa af neinu sem
við gerðum utan vinnutíma
enda gleðin og léttleikinn ávallt
í fyrrúmi.
Fyrir tveimur árum giftist
Kristín honum Jóni sínum og
horfðu þau björtum augum til
framtíðarinnar í nýja húsinu
sínu sem að sjálfsögðu var við
golfvöll með útsýni yfir sjöttu
holu á Leirdalsvelli, hvað ann-
að? Þau voru samstiga í því sem
þau tóku sér fyrir hendur og
framtíðin virtist brosa við þeim,
en því miður kvaddi Kristín
okkur alltof fljótt. Við viljum
þakka samstarfsfólki og við-
skiptavinum okkar fyrir hlýhug
og vináttu undanfarna daga.
Að lokum sendum við Jóni og
sonum hennar Guðmundi og
Kristjáni okkar innilegustu
samúðarkveðjur sem og öðrum
ættingjum og vinum.
Þínar samstarfskonur í við-
skiptasöludeild Icelandair
Agnes, Ásta, Dröfn, Guð-
björg, Guðný, Guðrún
Helga, Helga, Jensína,
Karen, Kolbrún, Sigríður
Sól, Sigurlína og Þórdís
Kristín gekk til liðs við
Lionsklúbbinn Eir í nokkur ár.
Hún var björt yfirlitum, glað-
leg, með þægilega nærveru og
öll verk sem henni voru falin
voru unnin af vandvirkni og
festu.
Við leiðarlok munum við
bjarta brosið hennar og fallegu
framkomuna. Við biðjum henni
Guðs blessunar.
Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga og rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
(Hallgrímur Pétursson)
Fyrir hönd Lionsklúbbsins
Eirar,
Camilla Th. Hallgrímsson.
Í dag kveðjum við kæra vin-
konu og samstarfskonu til
margra ára, Kristínu S. Guð-
mundsdóttur. Flugleiðir og
seinna Icelandair var okkar
sameiginlegi vinnustaður og
höfum við upplifað margt
skemmtilegt saman bæði í
vinnunni og ekki síst í okkar
fjölmörgu ferðum erlendis.
Kristín var að mörgu leyti okk-
ar mentor og bjó yfir mikilli
reynslu og þekkingu eftir 40
ára starf. Kristín var yfirveguð
kona og með rólegt yfirbragð
og hafði einstakt lag í sam-
skiptum við fólk jafnvel á með-
an hún var að leysa erfið mál.
Henni þótti vænt um vinnuna
sína og samstarfsfólk og það
tók á hana í veikindum sínum
að geta ekki lengur fylgst með
öllu sem fram fór í vinnunni. Á
meðan kraftar leyfðu las hún
allan póst og kom með góð inn-
legg.
Kristín var duglegur og
tryggur starfskraftur enda
segja 40 ár mikið um starfs-
manninn Kristínu. Ung leysti
hún af yfirmann á söluskrif-
stofu Flugleiða í Kringlunni og
varð seinna yfirmaður þar,
seinna deildarstjóri Söludeild-
ar, Söluskrifstofunnar á Hótel
Esju og endaði starfsferil sinn
sem deildarstjóri Viðskiptasölu
Icelandair. Elsku Kristín mín,
við eigum eftir að sakna þín
hér í vinnunni, í gönguferðun-
um okkar, í golfinu, í utan-
landsferðum og í hádeginu.
Góðar minningar koma upp í
hugann eins og hjólaferðirnar í
Washington og Denver. Eins
þegar hennar rólega yfirbragð
birtist á skemmtilegum augna-
blikum, t.d. þegar hún tók að
sér að kaupa strætókort fyrir
hópinn í Washington sem tók
sinn tíma og hvorki óþolinmóð-
ur bílstjóri né við gátum hagg-
að ró hennar. Líka þegar hún
hafði ekki tíma til að setja
sokkana á golfkylfurnar því við
vorum farnar langt á undan
henni. Kristín var dama og
heimskona en líka sveitastelpa
inn við beinið því á sínum yngri
árum stundaði Kristín hesta-
mennsku. Alltaf var vinnan of-
arlega í huga hennar og því var
merin hennar kölluð Saga
Class.
Kristín gifti sig sumarið
2012. Ekki grunaði okkur þeg-
ar hún var að skoða blúndukjól
og bleikan jakka í Minneapolis
að hún myndi skarta þessum
klæðnaði 17. júní það ár, á
brúðkaupsdeginum sínum. Jón
og Kristín voru fallegt par og
var hún sátt við lífið og til-
veruna. Kristín hafði gengið í
gegnum veikindi nokkrum sinn-
um undanfarin ár en náði sér
alltaf á milli, en í sumar veikt-
ist hún alvarlega og fljótlega
var okkur ljóst að meinið hafði
tekið yfirhöndina. Við stöllur
kveðjum hana með söknuði og
eigum eftir að minnast hennar
um ókomin ár.
Jón, Guðmundur Þór, Krist-
ján Örn og fjölskylda, við send-
um ykkur innilegar samúðar-
kveðjur og megi minning
hennar lifa.
Aðalheiður Halldórsdóttir,
Hólmfríður Júlíusdóttir,
Ólafía G. Ólafsdóttir og
Þorbjörg Björnsdóttir.
Mikið finnst mér erfitt og
ótímabært að sitja hér og hripa
niður orð um hana Kristínu
„vinnumömmu“ mína. Kristín
réð mig til starfa hjá Icelandair
fyrir 19 árum og tók mig strax
að sér ef svo má segja. Þá var
ég bara lilla eins og hún kallaði
okkur ungu stelpurnar sem
vorum að koma til vinnu eftir
nám í Ferðaskóla Flugleiða.
Hún kenndi mér mjög fljótlega
að nota „fæl 13“ þegar þess
þurfti – enda var viðskiptavin-
urinn alltaf í fyrsta sæti.
Ég á henni svo mikið að
þakka fyrir öll þessi ár og ég
mun minnast hennar sem
elskulegrar konu með mikla
þjónustulund, góðrar konu og
ekki síst sem afar skemmtilegr-
ar konu.
Hún stóð vel við bakið á mér
þegar ég gekk í gegnum erfiða
tíma og ég hef ekki getað þakk-
að henni nægilega vel fyrir það.
Hún hafði líka fengið sinn
skammt af erfiðleikum og því
var mjög ánægjulegt að fylgj-
ast með ástinni blómstra hjá
henni og Jóni sem hún hitti fyr-
ir nokkrum árum og kom sem
himnasending inn í hennar líf.
Nýgift í nýja húsinu þeirra
brosti lífið við þeim, allt þar til
krabbameinið bankaði uppá hjá
Kristínu og tók stjórnina allt of
fljótt.
Ég votta Jóni, Guðmundi,
Kristjáni og öðrum aðstand-
endum mína innilegustu samúð
og bið Guð að geyma elsku
Kristínu.
Guðný Lára Jóhannsdóttir.