Morgunblaðið - 13.11.2014, Side 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2014
Bandaríski leikstjórinn Quentin
Tarantino segist ætla að hætta að
leikstýra þegar hann hefur lokið
við tíundu kvikmyndina sína. Tar-
antino greindi frá þessu á viðburð-
inum American Film Market í
Santa Monica í Kaliforníu í fyrra-
dag þar sem hann kynnir nú næstu
kvikmynd sína, vestrann The Hate-
ful Eight. Sagðist hann þeirrar
trúar að menn ættu ekki að standa
á sviðinu svo lengi að fólk væri
farið að grátbiðja þá um að yf-
irgefa það.
Tarantino sló hins vegar var-
nagla og sagði þessa áætlun sína
ekki meitlaða í stein. Þegar hann
léti af leikstjórnarstörfum myndi
hann snúa sér að bóka- og leik-
hússkrifum.
AFP
Hættir að leikstýra eftir tíu kvikmyndir
10? Tarantino segist ætla að snúa
sér að öðru en leikstjórn þegar 10
myndir eru að baki.
Auðvelt er að skilja þá undr-un, forvitni og hrifningusem þessi kröftuga frum-raun dansk-palestínsks
unglings, Yahya Hassan, hefur vakið
í Danmörku, og ekki bara í bók-
menntaheimum heldur í samfélag-
inu öllu. Að ljóðabók, fyrsta bók
kornungs skálds af jaðrinum, seljist
í 100.000 eintökum er vitaskuld stór-
merkilegt. En Hassan stígur hér
fram og nánast öskrar á lesendur
ævisögu sína – öskrar því ljóðin eru
öll í hástöfum, án greinarmerkja,
sem fljótlega vill
verða þreytandi
við lesturinn – og
er ekkert dregið
undan í þeirri
hörmungasögu.
Skáldið fædd-
ist í Danmörku af
palestínskum for-
eldrum og greinir
í ljóðunum frá
skefjalausu heimilisofbeldi, því
hvernig innflytjendur leika á fé-
lagslega kerfið og hræsnisfullri trú-
ariðkun múslíma, en jafnframt er
fjallað um innrætingu öfgamanna,
innbrot, fíkniefnasölu og neyslu,
vistun á unglingaheimilum og mátt-
laust skólakerfi. Smám saman kemst
ljóðmælandinn í kynni við bók-
menntir, fyrir tilstilli að því er virð-
ist hugulsamra starfsmanna stofn-
ana sem treysta honum, en hann
heldur áfram að brjótast inn, selja
fíkniefni og ögra í raun öllum í
kringum sig. Mynd er dregin upp af
fólki án róta. Í Danmörku er fjöl-
skyldan aðskotadýr en einnig í
flóttamannabúðunum í Palestínu þar
sem gargað er á börnin: DRULLIÐ
YKKUR AFTUR TIL DANMERK-
UR… (44)
Árekstur menningarheima strax í
æsku birtist til að mynda í ljóðinu
„Utan dyra“ og ofbeldið er sínálægt:
ÉG SAT Í FATAHENGINU MEÐ EPLA-
SKÍFU Í HENDINNI / OG KENNDI
SJÁLFUM MÉR Í RÓ OG NÆÐI / AÐ
BINDA SKÓREIMAR / APPELSÍNUR
MEÐ NEGULNÖGLUM / HANGANDI
ÚR LOFTINU Í RAUÐRI SNÚRU / EINS
OG HOLSTUNGNAR VÚDÚDÚKKUR /
SVONA MAN ÉG LEIKSKÓLANN / HIN
HLÖKKUÐU TIL AÐ JÓLASVEINNINN
KÆMI / EN ÉG VAR JAFN HRÆDDUR
VIÐ HANN / OG VIÐ PABBA MINN
Bjarki Karlsson, sem hefur getið
sér orð fyrir traust tök á bundnu
máli, þýðir þessi flæðandi talmáls-
ljóð Hassans og gerir það vel. Spyrja
má þó um sumar lausnir, eins og
þegar orðið öndvegissúla birtist í
annars frekar fátæklegum götu-
málsorðaforða ljóðmælandans
(ÞESSI SKÍTAHRÆÐSLA VAR
EINS OG ÖNDVEGISSÚLA / Í
RASSGATINU Á MÉR (27)), því
kappkostað er við að halda andblæ
frumtextans við yfirfærsluna á ís-
lensku, með tilheyrandi meðvituðum
málvillum. Sú ákvörðun að þýða ekki
orðið pedagóg, sem birtist oft í text-
anum, stangast þó á við það. Hefði
þess í stað ekki mátt tala um félags-
eða uppeldisfræðinga, þar sem
pedagóg er (blessunarlega) fáheyrt
orð í íslensku?
Krafturinn er helsti kostur ljóða
Hassans, og bersöglin er áhrifamik-
il. Skyldleikinn við rapp er mikill og
bókmenntasagan þekkir svona gos,
og sum hafa verið skáldlegri – nægir
að nefna Majakovskí hinn rússneska
og bítskáldin amerísku. En þetta er
afhjúpandi texti og þótt á köflum
hefði mátt stytta og slípa, þá er það í
raun ekki í eðli þessa orðaflæðis,
þessarar ævisögu í talljóðsformi, þar
sem lýst er árekstri menningar-
heima með eftirminnilegum hætti.
Svona lýkur bókinni, og „Langljóði“
sem er 34 blaðsíður:
… / ÉG BARA ER KLIKKAÐI SON-
URINN / ÉG BARA ER BÚNA SKIPTA
ÚT JOGGINGBUXUM / FYRIR SIÐ-
MENNTAÐAR / OG PASSLEGAR
GALLABUXUR / ÉG BARA RÆÐST Á
YKKUR MEÐ ORÐUM / OG ÞIÐ BARA
VILJIÐ SVARA MEÐ ELDI / ÉG BARA
ER KAFIR ÉG BARA ER MUNAFIQ / ÉG
BARA ER HUNDUR / ÉG BARA ER
SKÍTUGUR SÁL MÍN ER FÁTÆK / OG
OFAN Í MISGERÐINA ÉG MÓKI Í VOR-
SÓLINNI
Morgunblaðið/Golli
Orðaflæði „Krafturinn er helsti kostur ljóða Hassans og bersöglin er
áhrifamikil,“ segir rýnir um ljóðabók Yahya Hassans.
Ég bara ræðst á
ykkur með orðum
Ljóð
Yahya Hassan - Ljóð bbbmn
Eftir Yahya Hassan.
Bjarki Karlsson þýddi.
Mál og menning, 2014. 169 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
DREIFARAR • SNJÓTENNUR • SNJÓBLÁSARAR • SLITBLÖÐ
A. Wendel ehf | Tangarhöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 551 5464 | wendel.is
Tæki til
vetrarþjónustu
Stofnað 1957
Lína Langsokkur –★★★★ – S.J. fbl.
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 15/11 kl. 13:00 22.k. Lau 13/12 kl. 13:00 29.k. Lau 3/1 kl. 13:00
Sun 16/11 kl. 13:00 Aukas. Sun 14/12 kl. 13:00 30.k. Sun 4/1 kl. 13:00
Lau 22/11 kl. 13:00 23.k. Lau 20/12 kl. 13:00 Aukas. Lau 10/1 kl. 13:00
Sun 23/11 kl. 13:00 24.k. Sun 21/12 kl. 13:00 31.k. Sun 11/1 kl. 13:00
Lau 29/11 kl. 13:00 25.k. Fös 26/12 kl. 13:00 Lau 17/1 kl. 13:00
Sun 30/11 kl. 13:00 26.k. Fös 26/12 kl. 16:00 Sun 18/1 kl. 13:00
Lau 6/12 kl. 13:00 27.k. Lau 27/12 kl. 13:00
Sun 7/12 kl. 13:00 28.k. Sun 28/12 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins!
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fim 13/11 kl. 20:00 21.k. Mið 19/11 kl. 20:00 aukas. Lau 29/11 kl. 17:00 aukas.
Fös 14/11 kl. 20:00 22.k. Fim 20/11 kl. 20:00 aukas. Lau 29/11 kl. 20:00 26.k.
Lau 15/11 kl. 20:00 23.k. Fös 21/11 kl. 20:00 24.k. Lau 6/12 kl. 20:00
Sun 16/11 kl. 20:00 aukas. Lau 22/11 kl. 20:00 25.k. Sun 7/12 kl. 20:00
Þri 18/11 kl. 20:00 aukas. Sun 23/11 kl. 20:30 aukas. Lau 13/12 kl. 20:00
Nýjar aukasýningar komnar í sölu!
Gaukar (Nýja sviðið)
Fös 14/11 kl. 20:00 15.k. Lau 29/11 kl. 20:00 17.k.
Fim 20/11 kl. 20:00 16.k. Sun 30/11 kl. 20:00 18.k.
Grátbroslegt verk um karlmenn, tilfinningar og sparakstur
Hamlet litli (Litla sviðið)
Fim 13/11 kl. 10:00 Þri 18/11 kl. 10:00 Lau 22/11 kl. 16:30 AUKAS.
Fös 14/11 kl. 10:00 Mið 19/11 kl. 10:00 Sun 23/11 kl. 17:00 3.k.
-Táknmálstúlkuð
Lau 15/11 kl. 17:00 2.k. Fim 20/11 kl. 10:00
Sun 16/11 kl. 17:00 2 k. Fös 21/11 kl. 10:00
Táknmálstúlkuð sýning 23. nóv kl. 17
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fim 13/11 kl. 20:00 7.k. Lau 22/11 kl. 20:00 14.k. Lau 6/12 kl. 20:00 22.k.
Fös 14/11 kl. 20:00 8.k. Sun 23/11 kl. 20:00 15.k. Sun 7/12 kl. 20:00 23.k.
Lau 15/11 kl. 20:00 9.k. Fim 27/11 kl. 20:00 16.k. Lau 13/12 kl. 20:00 aukas.
Sun 16/11 kl. 20:00 10.k. Fös 28/11 kl. 19:00 17.k. Sun 14/12 kl. 20:00 aukas.
Þri 18/11 kl. 20:00 aukas. Lau 29/11 kl. 19:00 18.k. Fös 19/12 kl. 20:00 aukas.
Mið 19/11 kl. 20:00 11.k. Sun 30/11 kl. 20:00 19.k. Lau 20/12 kl. 20:00 aukas.
Fim 20/11 kl. 20:00 12.k. Fim 4/12 kl. 20:00 20.k. Lau 27/12 kl. 20:00 aukas.
Fös 21/11 kl. 20:00 13.k. Fös 5/12 kl. 20:00 21.k.
ATH janúar sýningar komnar í sölu!
Jesús litli (None)
Fim 27/11 kl. 20:00 1.k. Fös 5/12 kl. 20:00 5.k. Sun 28/12 kl. 20:00
Fös 28/11 kl. 20:00 2 k. Fim 11/12 kl. 20:00 6.k. Mán 29/12 kl. 20:00
Mið 3/12 kl. 20:00 3.k. Fös 12/12 kl. 20:00 7.k.
Fim 4/12 kl. 20:00 4.k. Sun 14/12 kl. 20:00 8.k.
Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið)
Lau 29/11 kl. 13:00 1.k. Lau 6/12 kl. 13:00 4.k. Lau 20/12 kl. 13:00
Sun 30/11 kl. 13:00 2 k. Lau 6/12 kl. 15:00 5.k. Sun 21/12 kl. 13:00
Sun 30/11 kl. 15:00 3.k. Sun 14/12 kl. 13:00
Bestu vinkonur barnanna koma okkur í hátíðarskap
★★★★ – SGV, MblHamlet –
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Útlenski drengurinn (Aðalsalur)
Sun 16/11 kl. 15:00 Lau 22/11 kl. 14:00 Fim 4/12 kl. 20:00
Fös 21/11 kl. 20:00 Sun 30/11 kl. 20:00
Lífið (Aðalsalur)
Lau 15/11 kl. 14:00 Sun 23/11 kl. 15:00
Sun 23/11 kl. 13:00 Sun 7/12 kl. 13:00
GOOD/BYE + this is it (Aðalsalur)
Sun 16/11 kl. 20:00
Coming Up (Aðalsalur)
Sun 23/11 kl. 20:00
Útgáfutónleikar Siggu Eyrúnar (Aðalsalur)
Lau 22/11 kl. 20:00
Ævintýrið um Augastein (None)
Sun 30/11 kl. 14:00 Sun 7/12 kl. 17:00
Lau 6/12 kl. 17:00 Sun 14/12 kl. 14:00
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/