Morgunblaðið - 13.11.2014, Page 44
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 317. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Leikkona úr Big Bang Theory látin
2. 5 börn í röð og pabbi með kylfu
3. Skilorðsbundið fangelsi vegna lekans
4. „Þetta er engin stúlka“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tvöfaldur diskur með öllum lögum
hljómsveitarinnar Pelican verður gef-
inn út eftir helgi í Bretlandi af út-
gáfufyrirtækinu RPM International
sem hefur áður gefið út disk helg-
aðan íslensku poppi á árunum 1972-
77, Poppsaga: Iceland’s Pop Scene
1972-1977. Enski tónlistarblaðamað-
urinn Kieron Tyler, sem hefur m.a.
skrifað fyrir tímaritið Mojo og er mik-
ill áhugamaður um íslenska tónlist, á
heiðurinn af útgáfu diskanna og Dr.
Gunni ritaði texta í bæklinga þeirra.
Lagasafn Pelican
gefið út í Bretlandi
Guðni Ágústs-
son, fyrrverandi
ráðherra, kemur
Hallgerði lang-
brók í Njáls sögu
til varnar í bók
sem kemur út í
dag. Hann segir
að Hallgerður hafi
verið misskilin
kona sem hafi orðið fórnarlamb ein-
eltis og kynferðislegrar misnotkunar.
Útgáfu bókarinnar verður fagnað í
Eymundsson á Laugavegi 77 í dag kl.
17.15. Rætt verður við Guðna um efni
bókarinnar hér í blaðinu á laugardag-
inn.
Guðni ver Hallgerði
langbrók í nýrri bók
Sýningin Musée Islandique með
verkum Ólafar Nordal myndlist-
arkonu verður opnuð á
Norðurbryggju í Kaup-
mannahöfn á morg-
un. Í verkunum vinn-
ur hún með mann-
fræðirannsóknir
sem gerðar
voru á Íslend-
ingum.
Verk um rannsóknir
Á föstudag Austan 8-15 m/s og rigning sunnan- og austanlands,
en úrkomulítið á Norður- og Vesturlandi. Hiti 3 til 10 stig.
Á laugardag Minnkandi austanátt og rigning með köflum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustanátt, 15-23 m/s norðvestantil,
annars 10-18 m/s. Víða rigning og talsverð úrkoma á Suðaustur-
og Austurlandi. Hiti 3 til 12 stig, hlýjast sunnan heiða.
VEÐUR
Hálfgert varalið Íslands
stóð sig vel gegn öflugu liði
Belga í vináttuleik í knatt-
spyrnu í Brussel í gær-
kvöld. Þó svo að Íslend-
ingar hafi tapað 3:1 stóðu
íslensku leikmennirnir sig
vel en landsliðsþjálfararnir
ákváðu að hvíla marga af
lykilmönnum liðsins fyrir
leikinn mikilvæga á móti
Tékkum í undankeppni Evr-
ópumótsins á sunnudag-
inn. »3
Varaliðið stóð sig
vel gegn Belgíu
„Þetta er rosalega skemmtilegur
klúbbur. Æfingaaðstaðan er með því
betra sem ég hef séð og hef ég komið
víða í Evrópu. Menn ætla sér stóra
hluti í þessum klúbbi og eru betur
farnir að gera sér grein fyrir því hvað
þeir eru með í höndunum,“ segir
PGA-golfkennarinn Brynjar Eldon
Geirsson meðal annars við Morg-
unblaðið. Á nýju ári
tekur hann við
starfi íþrótta-
stjóra hjá golf-
klúbbi í útjaðri
Berlínar í Þýska-
landi. Aðalvöllur
klúbbsins er sá
vinsælasti á Berl-
ínarsvæðinu. »4
Spennandi starf bíður
Brynjars í Berlín
Staða efstu liða í úrvalsdeild kvenna,
Dominos-deildinni, breyttist ekkert í
gærkvöldi þegar sjöunda umferð fór
fram. Íslandsmeistarar Snæfells,
Keflavík og Haukar unnu öll leiki sína.
Haukar lentu í kröppum dansi gegn
botnliði KR á heimavelli en tókst að
knýja fram sigur í framlengingu. Val-
ur vann Grindavík í uppgjöri liðanna
sem voru jöfn í fjórða sæti. »2
Þrjú lið áfram efst og
jöfn í úrvalsdeildinni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þetta er mikil dagskrá og gaman að
geta styrkt gott málefni með þessum
hætti,“ segir Sigurður Bragason, tón-
listarstjóri og kórstjóri, um tónleika
til styrktar einhverfum börnum í
Langholtskirkju á laugardag. Tón-
leikarnir eru jafnframt haldnir í til-
efni 60 ára afmæl-
is Sigurðar og eru
flest verkin eftir
hann auk þess
sem hann stjórnar
þremur kórum á
tónleikunum.
Pétur Guð-
mundsson, Jón
Karl Einarsson
og Þorsteinn Þor-
steinsson skipu-
leggja tónleikana í
samvinnu við Sigurð Bragason,
Kammerkór Reykjavíkur og Ein-
hverfusamtökin. Pétur segir að sam-
starfið við Sigurð hafi staðið yfir um
árabil og þeir hafi skipulagt marga
styrktartónleika í samvinnu við
Kammerkór Reykjavíkur. Þeir hafi
meðal annars haldið tónleika til
styrktar Neistanum – styrktarfélagi
hjartveikra barna, til styrktar
Klúbbnum Geysi, sem hjálpar fólki
sem á við geðræn vandamál að stríða,
og til styrktar Götusmiðjunni. Síðasta
verkefni hafi verið styrktartónleikar
fyrir forvarnasjóð UMFÍ, „Fíkn er
fjötur“, sem hafi verið haldnir víða
um land 2003. „Núna höfum við kall-
að saman 250 til 300 manns, sem allir
gefa vinnu sína vegna tónleikanna,“
segir Pétur. „Það sýnir vel huginn til
málefnisins.“
Undirbúningur tónleikanna hefur
staðið yfir í um eitt ár og verður loka-
æfingin rétt fyrir sjálfan viðburðinn,
sem varir í um tvo tíma. Sigurður
segir að hann hafi verið byrjaður á
verki, sem hann tileinkar Einhverfu-
samtökunum, þegar fyrrnefndir kór-
félagar hafi stungið upp á þessum af-
mælis- og styrktartónleikum.
Vakna til lífsins
„Allir kórarnir og fjórir einsöngv-
arar með aðstoð barna flytja verkið
„Alfaðir, snertu við heims þess hjarta“
í lok tónleikanna,“ segir Sigurður og
bætir við að yfirskrift tónleikanna,
Fagra veröld, passi vel við þema
þeirra. „Við viljum gera veröldina feg-
urri með því að auðvelda einhverfum
börnum að lifa í erfiðum heimi.“
Sem kennari hefur Sigurður
kynnst einhverfum börnum. Hann
segir að þegar þau fái rétta meðferð
geti ótrúlegustu hlutir gerst en ann-
ars geti voðinn verið vís. „Við viljum
sjá öll þessi börn vakna til lífsins,“
segir hann.
Vilja gera veröldina fegurri
Um 300 manns
gefa vinnu sína á
tónleikunum
Morgunblaðið/Golli
Kórstjórinn Sigurður Bragason undirbýr styrktar- og afmælistónleikana í Langholtskirkju.
Pétur
Guðmundsson
Á afmælis- og styrktartónleikunum
Fögru veröld í Langholtskirkju á
laugardag verður frumflutt verk Sig-
urðar Bragasonar, „Alfaðir, snertu
við heims þessa hjarta“, fyrir 300
manna kór og fjóra einsöngvara.
Á tónleikunum koma fram Kamm-
erkór Seltjarnarneskirkju, Jóhann
Smári Sævarsson, Flensborgarkór-
inn, Elsa Waage, Vox Feminae og
Kvennakór Garðabæjar, Gissur Páll
Gissurarson, Karlakórinn Fóst-
bræður, Árnesingakórinn í Reykja-
vík, Þóra Gylfadóttir, Kolbeinn J.
Ketilsson, Anna Jónsdóttir, Kamm-
erkór Reykjavíkur og Bjarni Þ. Jón-
atansson organisti auk stjórnenda,
einsöngvara og undirleikara kór-
anna.
„Það er ánægjulegt að fá allt
þetta góða fólk saman til þess að
styrkja þetta góða málefni,“ segir
Pétur Guðmundsson. Tónleikarnir
hefjast kl. 16 á laugardag.
Styrkja einhverf börn
FLYTJA VERK FYRIR 300 MANNA KÓR OG FJÓRA EINSÖNGVARA