Fréttablaðið - 29.11.2013, Page 12

Fréttablaðið - 29.11.2013, Page 12
29. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 Opið kl. 11 - 16 laugardag Opið kl. 13 - 16 sunnudag kynntu þér málið!w w w . s i d m e n n t . i s Þann 3. maí fékk Siðmennt formlega skráningu sem veraldlegt lífsskoðunarfélag Skráðu þig í félagið á www.sidmennt.is – sk ráð l í f s skoðunar fé lag Siðmennt ÍRAN Refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna, Evrópusambandsins og Bandaríkjanna hafa bitnað harka- lega á efnahagslífi Írans og þar með daglegu lífi íbúanna. Olíuútflutningur hefur dregist mikið saman, enda hafa viðskipti við Íran verið bönnuð að verulegu leyti. Gjaldmiðillinn hrundi, bankastarf- semi er lömuð, verðbólgan er í fjöru- tíu prósentum og tekjur almennings hafa dregist mikið saman, þannig að mun dýrara er orðið að kaupa sér í matinn og greiða fyrir aðrar brýn- ustu nauðsynjar. Almenningur hefur ekki beint verið ánægður með ástandið und- anfarin ár, en stjórnvöldum hefur þó tekist að hafa einhvern hemil á ólgunni. Fjöldamótmæli brutust út fyrir fjórum árum í tengslum við kosningar, en stjórnvöldum tókst að berja þau mótmæli niður og almenn- ingur hefur haft hægt um sig síðan. Það var samt ekki síst þessi ólga sem tryggði Hassan Rúhaní sigur í forsetakosningum í sumar. Kjós- endur ætlast til þess að hann komi efnahagnum í betra horf, og til þess þurfti hann að ná samningum við Vesturlönd um kjarnorkuáætl- un landsins, sem hefur verið ráða- mönnum víða á Vesturlöndum, og Ísrael, mikill þyrnir í augum. Íranar hafa nú fengið vilyrði fyrir því að efnahagslegum refsiaðgerð- um verði fljótlega aflétt, að hluta til, gegn því að þeir haldi aftur af sér í kjarnorkumálum. Þeir hafa lofað því að auðga ekki úran umfram það, sem þeir þurfa til eldsneytis í kjarn- orkuver sín. Þeir muni því ekki geta notað úranið í kjarnorkuvopn, en sú tilhugsun að Íranar komi sér upp kjarnorkuvopnum hugnast ekki ráðamönnum víða á Vesturlöndum. Vesturlönd segja hægt að byrja að aflétta refsiaðgerðum snemma á næsta ári, og Frakkar hafa sagt mögulegt að þetta gerist strax í des- ember. Bandaríkjastjórn segir að meta megi afléttingu refsiaðgerðanna upp á jafnvirði 840 milljarða króna. Þetta er reyndar ekki stærri fjár- hæð en svo, að hún jafngildir eins mánaðar tekjum af olíuframleiðslu Írans. Þessir tæpu 900 milljarðar eru heldur ekki nema sjö prósent af þeim írönsku fjármunum, sem frystir hafa verið í fjármálastofnun- um erlendis vegna refsiaðgerðanna. Engu að síður hafa fyrirheit um innspýtingu í efnahagslífið þegar áhrif á efnahagsástandið í Íran. Verðbréfamarkaðir hafa tekið við sér og Íranar telja sig geta séð fram á betri tíð. gudsteinn@frettabladid.is Íranar vonast eftir betri tíð Íranar bíða óþreyjufullir eftir betri tíð í kjölfar efnahagsþrenginga síðustu ára. Olíuútflutningur hefur dregist mikið saman, gjaldmiðillinn er hruninn og verðbólgan er fjörutíu prósent. Allt vegna alþjóðlegra refsiaðgerða. Auðgun úrans felst í því að efnasamsetningu náttúrulegs úrangrýtis er breytt, þannig að hlutfall samsætunnar U-235 verði sem mest. Í náttúrulegu úrangrýti er hlutfall U-235 aðeins 0,75 prósent, en til að hægt sé að nota það í kjarnorkuvopn þarf hlutfallið að vera komið upp í 90 prósent. Til að knýja flesta kjarnaofna er nægilegt að hlutfallið sé aðeins 3-5 prósent, en í tilraunaofna þarf hlutfallið að vera á bilinu 12 til 19,75 prósent. Auðgun úrans til kjarnorkuvinnslu Einhliða útvíkkun lofthelgi Kína Kínverjar hafa átt í langvinnum deilum við nágrannaríkin um yfirráð nokkurra eyja í Suður-Kínahafi. Deilurnar snúast þó í reynd ekki síst um gasauðlindir í hafinu. vv Kína Sjanghaí Okinava Senkaku-eyjar (japanskt tilkall) Yfirlýst efnahags- lögsaga Japans320 km 1 Longjing (Asunaro) 2 Duanqiao (Kusunoki) 3 Tianwaitian (Kashi) 4 Chunxiao (Shirabaka) Heimild: Fréttastofur Graphic News Hið umdeilda loftvarnar- svæði Kínverja í Austur-Kínahafi Socatra- klettur S-Kórea Tókíó Íranir hafa lofað að hætta að auðga enn frekar hálfauðgað úran, hætta að reisa fleiri kjarnorku- vinnslustöðvar og leyfa fulltrúum frá Alþjóðakjarn- orkustofnuninni að hafa daglegt eftirlit. Í staðinn verður refsiaðgerðum létt af Íran að hluta. Kjarnorkuvinnslustöð Úrannáma Hassan Rúhaní Íransforseti 400 km Kaspíahaf Tyrkland Ísrael Sýrland Írak Sádi-Arabía Rauða hafið Teheran Busher kjarnorkuverið Í r a nPersaflói Sam. arab. fursta- dæmin Óman Hormús- sund Tilraunakjarnaofn í Teheran: Notar meðal- auðgað úran í eldsneytis- stöngum til að framleiða lækningavörur. Natanz: Íran ætlar að takmarka framleiðslu á skilvindum sem not- aðar eru til að auðga úran. Alþjóðlegt eftir- lit verður daglegt. Fordow: 2.800 skil- vindur eru notaðar til að auðga úran. Alþjóðlegt eftirlit verður daglegt. Arak: Kjarnorkuver sem getur framleitt plútón til notkunar í kjarnorkuvopn. Íranir samþykkja að hætta að þróa framleiðsluna. Íranir ætla að þynna aftur meðal-auðgað úran sitt, úr 19,75% í 5% Hálfauðgað úran (19,75% af U-235): 219 kíló „Rauða strikið“: Til að framleiða 20 kíló af nægilega auðguðu úrani, að nýtanlegt væri í eina kjarnorku- sprengju: 165 k Notað í elds- neytisstangir fyrir tilraunaofn: 96 kg Umframbirgðir af meðal- auðguðu úrani: 123 kg GRAPHIC NEWSHEIMILD :ISIS Bráðabirgðasamkomulag KÍNA Bandarískum, japönskum og suður-kóreskum herþotum hefur síðustu daga verið flogið inn fyrir einhliða útvíkkuð mörk kínverskrar lofthelgi á Suður-Kínahafinu. Kínverjar hafa hins vegar ekki brugðist við þessu með neinum hætti, sem bendir til þess að þeir hafi kannski ekki hugsað málið alveg til enda. Þeir lýstu í síðustu viku einhliða yfir stækkun lofthelgi sinnar á Suður-Kínahafi, en þar er hafsvæði sem Kínverjar hafa átt í langvinnum deilum við nágranna- ríki sín um. Deilurnar snúast ekki síst um yfirráð yfir auðlindum í hafsbotn- inum, einkum gasauðlindum, sem gætu gefið af sér miklar tekjur. Nágrannaríkin lýstu því strax yfir að þau myndu ekkert mark taka á þessari einhliða útvíkkun kínversku lofthelginnar, og Banda- ríkin hafa sömuleiðis sagst ætla að hunsa hana. Kínverjar hafa reyndar sent flug- móðurskip á vettvang, en að öðru leyti hafa viðbrögðin engin verið. Í kínverskum ríkisfjölmiðlum hefur jafnvel verið imprað á því að Kína- stjórn hafi þarna gert mistök. - gb Japan, Suður-Kórea og Bandaríkin hunsa einhliða lofthelgisstækkun: Engin viðbrögð frá Kínaher KÍNVERSKAR HERÞOTUR Hafa ekki sést á Suður-Kínahafi síðustu daga. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu hefur óskað eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað á bifreiðaplani við leik- skólann Lyngheima í Grafarvogi í hádeginu síðastliðinn laugardag. DV sagði frá því í gær að fjórir eldri drengir, líklega um 15 ára, hafi hlaupið að 10 ára dreng og slegið hann í andlitið. Við höggið féll drengurinn í götuna. Tveir drengjanna héldu honum á meðan einn sló hann í andlit og maga. - skó Lögreglan leitar að vitnum: 10 ára drengur varð fyrir árás DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um að ekki verði leitað álits EFTA-dómstólsins um hvort fern náttúruverndarsamtök, Hraunavinir þar á meðal, eigi lög- varinna hagsmuna að gæta vegna framkvæmda í Gálgahrauni. Samtökin kröfðust lögbanns við lagningu nýs Álftanesvegar þar til skorið hefði verið úr um lögmæti þeirra fyrir dómstólum. - skó Kröfu Hraunavina hafnað: Ekki leitað álits EFTA-dómstóls GÁLGAHRAUN Hraunavinir kröfðust álits Efta-dómstólsins á lögmætum hagsmunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 1 2 3 4

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.