Fréttablaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 28
29. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 26
Þjóðin á sér rödd. Sú rödd er ekki
ómþýð. Eina stundina minnir hún
á stamandi unglingspilt í mútum,
þá næstu á langþreytta kerlingu
með reykingahósta. Stundum
minnir hún á hikstandi smástelpu,
augnabliki síðar á örvæntingar-
fullan tenór. Hljómur hennar er
margradda. Þannig verður það
að vera, öðruvísi getur þjóðin
ekki átt sér rödd. Forsenda þess
að röddin fái að hljóma í öllum
sínum blæbrigðum, þessum kraft-
mikla lífsþorsta, er að hér á landi
sé rekið öflugt ríkisútvarp með
reynsluríku dagskrárgerðarfólki.
Aðeins þannig er hægt að tryggja
að röddin sé sönn.
Nú á að lækka rostann í þess-
ari hljómmiklu rödd. Blóðtakan
hjá RÚV er svo yfirgengileg að
það er engu líkara en það eigi að
gelda allan kórinn, þessa þrætu-
gjörnu en þó líflegu þjóð. Það er
verið að þvinga röddina þannig að
hún verði hjómið eitt. Við þessar
aðstæður verður að teljast ólíklegt
að RÚV geti sinnt lögbundnu hlut-
verki sínu sem skyldi. Það er svo
hátt reitt til höggs að afleiðingarn-
ar verða tæpast afturkræfar.
Það er ekki að ástæðulausu að
rúm 50% þjóðarinnar treysta
RÚV (samanborið við 16%
traust á Alþingi eða 14% traust
á öðrum fjölmiðlum samkvæmt
könnun MMR í október). Lands-
menn treysta RÚV af því að þar
vinna starfsmenn af heilindum
og ástríðu. Það sækir enginn um
að vinna við dagskrárgerð eða á
fréttastofu til að verða ríkur eða
til að þjóna hagsmunum fárra.
Nú eru slegnar sprungur í Spegil-
inn á Rás 1 og Kastljós sjónvarps
þarf að lýsa landsmönnum veginn
með sífellt færri perum. Kona ein
veitti lesendum Smartlands Mörtu
Maríu eitt sinn það fegrunarráð að
slökkva ljósið. Það er engu líkara
en ríkisstjórn Íslands hafi tekið
þetta til sín.
Það lítur út fyrir að Tónlistar-
deild Rásar 1 verði vart starfandi
eftir þessa uppsagnahrinu, okkur
telst til að nú starfi 2,4 starfsmenn
á deildinni. Svo virðist einnig sem
barnaefni í útvarpi hafi verið sleg-
ið af þar sem báðir dagskrárgerð-
armenn Leynifélagsins eru í hópi
þeirra sem var sagt upp – og þann-
ig mætti lengi upp telja.
Dagskrárgerðarfólk RÚV á stór-
an þátt í sköpun menningar dags-
ins í dag, en auk þess varðveitir
RÚV menningararf síðustu 70 ára
og heldur honum lifandi. Útvarps-
perla er réttnefni fyrir þá dag-
skrárliði. Vegna RÚV hafa lands-
menn í senn getað litið um öxl og
horft fram á veginn; en nú á að sjá
til þess að okkar tími verði eyða í
safni útvarpsins. Þetta er svartur
dagur. Er hann virkilega kominn?
Við neitum að trúa að þetta sé
óhjákvæmileg forgangsröðun á
fjárlögum. Við neitum líka að trúa
að stjórn Ríkisútvarpsins hafi
ekki getað forgangsraðað hlutun-
um á annan hátt en raun ber vitni.
Hvað er mikilvægara en að fjár-
festa í dagskrárgerðarfólki með
ómetanlega reynslu? Er einhver
skynsamleg skýring á þessu? Nei,
segjum við. Nei. Kannski er mun-
urinn á þjóðmenningu og menn-
ingu sá að í þjóðmenningunni felst
það eitt að vera með íslenskt vega-
bréf á meðan menningin er það
sem fólk gerir vel. Það er verið að
segja okkur að við höfum ekki efni
á því lengur.
Röddin okkar
MENNING
Víkingur Heiðar Ólafsson
Auður Jónsdóttir
Jón Kalman Stefánsson
Kristín Ómarsdóttir
Andri Snær Magnason
Guðrún Eva Mínervudóttir
Ingi Björn Guðnason
Eiríkur Örn Norðdahl
Vigdís Grímsdóttir
Lísa Kristjánsdóttir
Þórunn Erlu Valdimarsdóttir
Sigurbjörg Þrastardóttir
Rannveig (Gagga) Jónsdóttir
Birna Anna Björnsdóttir
Eiríkur Guðmundsson
Þórarinn Leifsson
Ragna Sigurðardóttir
Kristín Eiríksdóttir
➜ Við neitum að trúa að
þetta sé óhjákvæmileg for-
gangsröðun á fjárlögum. Við
neitum líka að trúa að stjórn
ríkisútvarpsins hafi ekki
getað forgangsraðað hlut-
unum á annan hátt en raun
ber vitni.
Lifandi fl ak
Vinum mínum finnst ég alltof
sjaldan verða orðlaus. Þeim varð
að ósk sinni í dag.
Og ég er varla búinn að melta
fréttirnar af Ríkisútvarpinu ennþá.
Sko. Það er hægt að skilja
nauðsyn sparnaðar og aðhalds.
Sjálfur var ég árum saman með
þátt á Rás eitt– þann vinsælasta
á dagskránni, var okkur sagt– sem
var sleginn af í sparnaðarskyni
eftir Hrun. Ekkert okkar kvartaði
yfir því, svo ég muni. Stundum
þarf bara að spara.
En að segja upp rúmlega fimmt-
ungi starfsmanna Ríkisútvarpsins
á einu bretti er meira en aðhald
og sparnaður. Það er atlaga að
sjálfum kjarna og eðli stofnunar-
innar.
http://blog.pressan.is
Karl Th. Birgisson
Nokkrir
kost unar aðilar
Kostunaraðilar sjónhverfingar-
innar miklu eru nokkrir. Fyrst ber
að telja þá tekjuháu, sem eiga
sjálfseignarsparnað. Þeir fá að
nota hann upp í skuldir. Svo er
það gamla fólkið í lífeyrissjóð-
unum, sem þarf að borga tjón
sjóðanna. Loks er það ríkið. Þarf
að standa undir tjóni Íbúðalána-
sjóðs, sem rambar á barmi gjald-
þrots og getur ekkert endurgreitt.
Ríkið þarf líka að sjá á eftir
sköttum, einkum hinna tekjuháu,
sem mestan fá afslátt. Samtals
nemur tjón ríkisins minnst sextíu
milljörðum, sem dreifast á nokkur
ár. Því má búast við framhaldi
á eyðingu gróinna innviða sam-
félagsins, svo sem Landspítalans.
http://www.jonas.is/
Jónas Kristjánsson
AF NETINU
OPIÐ MÁN-FÖS 9-18 | LAU 10-15 | ÁRMÚLI 40 | S: 517 4600 | WWW.MARKID.IS
Birt með fyrirvara um myndbrengl og prentvillurÞjónustu samningur til 15. Júní fylgir öllum nýjum hjólum!
Ekki gleyma að
leika þér
Mikið úrval
Innifalið í þjónustusamningi:
Almenn yfirferð á hjólinu, stilling á gírum
og bremsum í 6-12 mánuði
10% afsláttur af vinnu á verkstæði og hjólavörum
Hámark 2 virkir dagar biðtími á verkstæði
20% afsláttur af hjálmi
NORCO PLATEAU
Verð áður 79.900kr. Verð nú63.920kr.
Dömu borgarhjól
Dempari í gaffli og sæti
NORCO CITY GLIDE
Verð áður 109.900kr. Verð nú76.930kr.
Klassískt dömu borgarhjól
NORCO STORM 6.1
Verð áður 89.900kr. Verð nú 71.920kr. NORCO STORM 6.2Verð áður 69.900kr. Verð nú55.920kr.
Verð áður 139.900kr. 97.930kr.NORCO CITY GLIDE 8NORCO STORM 9.1Verð áður 94.900kr. Verð nú75.920kr.
29” hjól
Rýmingarsala
50%
af öllum þrek- og æfingatækjum
á þrektækjum!
Gefðu sportpakka í ár!
FRÁBÆR tími til að gera góð hjólakaup!
Allt fyrir
vetrarhjólreiðarnar
HJÓLAPAKKINN FÆST Í MARKINU!
TIL JÓLA
Mikið úrval
af hjólavörum
Topp þjónusta
30 ára reynsla
1