Fréttablaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 56
FRÉTTABLAÐIÐ Breki skartgripir. Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
14 • LÍFIÐ 29. NÓVEMBER 2013
Það er ekkert óekta í hönnun
Breka, þetta eru bara Rokk
og ról-skartgripir sem henta
fyrir bæði kynin.
V
ið héldum að við gætum sigrað
heiminn ein í fyrra en það var
ekki að virka. Ég vil gera allt
hundrað prósent svo ég ætlaði
bara að gera allt sjálfur en ég
er bara gullsmiður og hönnuður,“ segir
Jónas Breki Magnússon.
Jónas Breki hefur búið í Danmörku
í tæplega tíu ár ásamt eiginkonu sinni,
Guðrúnu (Gúrý) Finnbogadóttur. Undan-
farin ár hafa þau starfað saman að skart-
gripalínunum Breki og Zero6, en Gúrý
er einnig fatahönnuður. Árið 2010 fluttu
hjónakornin til Víetnams en þar starf-
aði Jónas Breki fyrir danska skartgripa-
hönnuðinn Julie Saundlau. Eftir rúmlega
árs búsetu í Asíu ákvað hann að stíga
skrefið og verða sjálfstæður með eigin
línu. Tvisvar hefur hann kynnt skartið á
Copenhagen Fashion Week ásamt því að
Gúrý hefur kynnt fatalínuna sína, Gúrý.
Breki segir að nú hafi áherslurnar breyst
til muna þar sem þau leggi meiri áherslu
á skartið. „Við erum bestu vinir og erum
búin að vera saman í ellefu ár svo það
virkar bara að vinna saman,“ segir hann
þegar hann er spurður út í samstarf-
ið með eiginkonunni. Línuna segir hann
vera svokallaða „street fashion“ sem þó
er unnin úr ekta gulli, silfri og eðalstein-
um. „Það er ekkert óekta í hönnun Breka,
þetta eru bara Rokk og ról-skartgripir
sem henta fyrir bæði kynin. Mig var búið
að dreyma um að fá hina dönsku Anne
Lindfjeld sem módel síðan ég sá hana
fyrst því hún hefur allt til brunns að bera
sem lýsir skartinu. Ég sendi henni skila-
boð á Facebook í sumar og spurði hana
og hún sló til,“ útskýrir hann og bætir
við. „Það er ekki endilega erfiðara að
ná í fræga liðið.“
Hjónin stefna á að koma til Íslands
um jólin og jafnvel halda sýningu með
nýju línunni. Breka-skartið fæst í versl-
uninni Rhodium í Kringlunni. Hægt er
að skoða línuna nánar á brekidesign.com
SKARTGRIPIR VIÐ ERUM GOTT TEYMI
Jónas Breki Magnússon gullsmiður hannar „Rokk og ról“-skartgripi í Danmörku og selur meðal annars í versluninni Rhodium.
LJÓSMYNDARI
Hildur María Valgarðsdóttir
FYRIRSÆTA
Anne Lindfjeld
GRAFÍSKUR
HÖNNUÐUR
Sverrir Brynjólfsson
KOLORISTI
Daði Knee
STÍLISTI
Gúrý
Gúrý og Jónas
Breki starfa
saman í Kaup-
mannahöfn
að Zero6 og
Breka-skart-
inu.
RISA
ÍÞRÓTTAMARKAÐUR
Erum mættir aftur með fullt af merkjavörum á frábæru verði
Laugardaginn 30. nóvember og sunnudaginn 1. desember kl. 10.00 – 20.00
verður stóri íþróttamarkaðurinn haldin í Laugardalshöll. Markaðurinn
verður í gangi bara þessa tvo daga og eftir miklu að slægjast.
Ameríkuverð á skóm og fatnaði frá Puma, Asics, Brooks, Ecco, Casall,
Hummel, North Rock, Compressport, Ronhill. Under Armourm, Reebok o.fl.
Starfmenn Atlas göngugreiningar ráðleggja með tölvugreiningarbúnaði
um val á skóbúnaði eftir þínu fótlagi og niðurstigi.
Komdu og gerðu frábær kaup á alla fjölskylduna