Fréttablaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 72
29. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 42
Við ætlum að nýta alla nýjustu tæknina til góðgerða eins og Facebook,
Instagram og annars konar hugbúnaðarlausnir.
Gabríel Þór Bjarnason
FÖ
STU
D
AG
U
R
H
V
A
Ð
?
H
V
E
N
Æ
R
?
H
V
A
R
?
Tónleikar
12.00 Föstudaginn 29.
nóvember munu tvær
mezzosópransöngkonur
syngja sínar uppáhalds-
barokkaríur á hádegistón-
leikum í Háteigskirkju.
Flytjendur eru Nathalía
Druzin Halldórsdóttir
mezzosópran, Jóhanna
Héðinsdóttir mezzosópran,
og Renata Ivan sem leikur
á píanó. Hádegistónleik-
arnir í Háteigskirkju eru
haldnir alla föstudag á milli
kl. 12.00 og 12.30 þar sem
flutt er fjölbreytt efnisskrá
við allra hæfi.
20.00 Fjórmenningarnir
Kristinn Sigmundsson
óperusöngvari, Björn Thor-
oddsen gítarleikari, Sigrún
Hjálmtýsdóttir óperusöng-
kona og Gunnar Hrafnsson
bassaleikari bjóða upp á
íslenska dægurlagaveislu í
Salnum í Kópavogi föstu-
dagskvöldið 29. nóvember
næstkomandi.
22.00 Stórhljómsveitin VOR
skemmtir á Café Rosenberg
29. nóv. kl. 22.
23.00 Pálmi Hjaltason
skemmtir á Ob-La-Dí-Ob-La-
Da, Frakkastíg 8, föstudag-
inn 29. nóvember kl. 23.00.
Fræðsla
12.10 Hádegisspjall í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur
með Pétri Thomsen,
Sigurgeiri Sigurjóns-
syni og Svavari
Jóna tanssyni föstu-
daginn 29. nóvem-
ber kl. 12.10 til
13.00.
Upplýsingar
um viðburði
sendist
á hvar@
frettabladid.is
„Markmið okkar er að draga fram það besta í
öllum einstaklingum með því að standa fyrir
frumlegum og skapandi góðgerðum,“ segir
Gabríel Þór Bjarnason sem situr í stjórn nýja
góðgerðarfélagsins Karma, ásamt Daníel
Ólafssyni og Andra Erni Gunnarssyni.
Karma er einstakt félag sem einblínir ekki
á eitt málefni heldur ætlar sér að starfa með
öðrum góðgerðarfélögum til að efla góðgerð-
ir enn frekar. „Við ætlum að nýta alla nýj-
ustu tæknina til góðgerða eins og Facebook,
Instagram og annars konar hugbúnaðarlausn-
ir,“ útskýrir Gabríel Þór.
Fyrsta átak Karma kallast Kýlum á það!
„Við ætlum að styrkja Kvennaathvarfið með
ýmsum hætti í mánuðinum.“
Fyrsti hluti átaksins fer fram í Kringl-
unni næstkomandi laugardag. „Við verðum
með bás þar sem við seljum nælur, auk þess
sem við bjóðum fólki að gerast mánaðarleg-
ir styrktaraðilar Kvennaathvarfsins,“ bætir
Gabríel Þór við.
Gagnsæi er eitt af lykilatriðum í góðgerðar-
starfsemi sem þessari. „Ég minnist alltaf á
gagnsæi þegar ég er í samskiptum við sam-
starfsaðila. Við erum í hundrað prósent
samstarfi við Kvennaathvarfið og á öllum
viðburðum verður hagsmunafulltrúi frá
athvarfinu til að sjá um allt reiðufé.“
Í desember verður ýmislegt í gangi hjá
Karma. „Við erum með Instagram-leik þar
sem við hvetjum fólk til að gera eitthvað fal-
legt fyrir maka, börn og/eða fjölskyldu og
kassmerkja #heimiliast, þá fara þátttakendur
í pott og við drögum út fallegasta gjörninginn
7., 14. og 21. desember, en vinningarnir eru í
veglegri kantinum.“
Einnig verður boðin upp árituð treyja frá
íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu og svo
mun Eva Laufey Kjaran töfra fram alíslenska
kjötsúpu sem seld verður fyrir utan Mál og
menningu á Laugaveginum á Þorláksmessu.
Lesa má nánar um góðgerðarfélagið Karma
og átakið á Vísi. - glp
Draga fram það besta í fólkinu
Nýja góðgerðarfélagið Karma ætlar að nýta nýjustu tækni til góðgerðar. Þrír vinir standa að félaginu.
EINSTAKT FÉLAG Gabríel, Daníel og Andri eru mennirnir á bak við Karma.
Skaft ahlíð 24 | 105 Reykjavík | 512 5000 | Auglýsingar 512-5401 | visir.is
FRÉTTABLAÐIÐ ER HELGARBLAÐIÐ
HELGARBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS
Ómissandi hluti af góðri helgi
ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ
KLÁMVÆÐA JÓLIN
Bubbi Morthens ræðir um nýútkomna plötu,
Jól minnar æsku, trúna og nýlegt áfall í lífi sínu.
Allir listamenn
eru konur
Ragnar Kjartansson
myndlistarmaður sýnir
um allan heim, hannar
kærleikskúlu og opnar
sýningu í Reykjavík í
fyrsta sinn í þrjú ár.
Hann segir nauðsynlegt
fyrir listamenn að rækta
kvenlegu hliðina í sér til
að ná árangri í listinni.
Náttúruleg vin
í hörðu
borgarumhverfi
Anna Sigríður Jóhanns-
dóttir arkitekt lýsir verð-
launatillögu VA arkitekta
um vistvænar breytingar á
Höfðabakka 9.
Börnin berjast
fyrir lífi sínu
Suzanne Collins, höfundur hinna
geysivinsælu bóka um Hungur-
leikana, sækir sér innblástur í grískar
goðsögur, Víetnamstríðið, Rómaveldi,
japanskar hryllingsbókmenntir og
Stephen King.