Fréttablaðið - 14.12.2013, Side 6
14. desember 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
„Án efa hansbesta bók
til þessa.“Helga Birgisdóttirspassian.is
„Ragnar Jónasson er
orðinn þrælflinkur í að
búa til spennandi fléttu.“
Helga Birgisdóttir spassian.is
NORÐUR-KÓREA, AP Jang Song-
thaek var til skamms tíma næst-
valdamesti maður Norður-Kór-
eu. Almenningur þekkti hann
sem föðurlegan öldung, en hann
hefur nú verið tekinn af lífi með
litlum sem engum fyrirvara.
Nokkrum dögum fyrr hafði
hann verið sviptur öllum emb-
ættum og sakaður um spillingu,
kvennafar, fjárhættuspil og
fíkniefnaneyslu.
Fréttirnar af aftökunni komu
á óvart, en þær fóru hátt í ríkis-
fjölmiðlum og 2.700 blaðsíðna
greinargerð var birt opinber-
lega, að því er virðist til að
útskýra fyrir umheiminum
hvers konar óbermi þessi maður
hafi verið.
Í greinargerðinni er farið
mörgum orðum um að hann
hafi reynt að grafa undan stjórn
landsins með ýmiss konar véla-
brögðum, og fullyrt að hann hafi
haft það markmið að sölsa undir
sig öll völd í landinu.
Jang var í innsta hring fjöl-
skyldunnar sem stjórnað hefur
Norður-Kóreu öll þau sextíu ár,
sem landið hefur verið til. Hann
var tengdasonur fyrsta leiðtog-
ans, Kim Il-sung, og þar með
kvæntur föðursystur Kim Jong-
un, núverandi leiðtoga sem tók
við af föður sínum fyrir tveim-
ur árum.
Með aftökunni virðist eiga að
senda skýr skilaboð til almenn-
ings í landinu um að engin gagn-
rýni á stjórn Kim Jong Ils verði
liðin. - gb
Norður-kóresk stjórnvöld sendu frá sér 2.700 blaðsíðna greinargerð vegna aftöku Jangs Song-thaek:
Yfirlýsing um að gagnrýni verði ekki liðin
FRÉTTIRNAR LESNAR Íbúar Norður-Kóreu
fylgdust agndofa með atburðum dagsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
1. Hvenær á Anita Briem von á sínu
fyrsta barni?
2. Hvað hlaut Hreiðar Már Sigurðsson
þungan dóm í Al-Thani málinu?
3. Til hvaða borgar hefur easyJet hafi ð
áætlunarfl ug?
SVÖR
1. Í lok desember. 2. Fimm og hálft ár.
3. Bristol.
SAMFÉLAGSMÁL „Okkur finnst
það mjög sérstakt að áfengis-
auglýsingar skuli vera látnar
átölulausar. Það er merkilegt að
virðing yfirvalda gagnvart rétt-
indum barna og unglinga skuli
ekki vera meiri en þetta,“ segir
Árni Guðmundsson, formaður
Foreldrasamtaka gegn áfengis-
auglýsingum.
Samtökin
hafa frá miðju
ári 2011 fengið
278 ábending-
ar og kærur um
ólöglegar áfeng-
isauglýsingar
í fjölmiðlum í
gegnum heima-
síðu sína. Á bak
við hverja kæru
eða ábendingu eru mismunandi
margir foreldrar eða allt að tólf
en oftast eru það tveir til þrír sem
eru á bak við hverja kæru.
Samtökin voru stofnuð árið
2008 og settu þá upp heimasíðu.
Ráðist var á síðuna og því liggja
upplýsingar um fjölda kæra ekki
fyrir frá 2008 og fram til 2011.
Árni áætlar hins vegar að
kærur og ábendingar frá samtök-
unum frá upphafi séu orðnar 600
til 700. Hann segir að lögreglan
virðist úrræðalaus gagnvart mál-
inu því ekki hafi verið gefnar út
opinberar ákærur vegna ólög-
legra auglýsinga frá árinu 2008.
„Við erum afar undrandi á því
að það skuli ekki vera gefnar út
neinar ákærur í þessum málum.
Að okkar mati er það alvarlegt
brot þegar verið er að ota áfengi
að börnum og unglingum. Oft eru
auglýsingarnar dulbúnar, léttöl
sem er í nákvæmlega eins umbúð-
um og sterkt öl er auglýst. Án þess
að nokkur áhersla sé lögð á fram-
leiðslu léttölsins,“ segir Árni
Hjalti Björnsson áfengisráðgjafi
segir að rannsóknir hafi sýnt að
áfengisauglýsingar hafi áhrif á
börn og unglinga.
„Það segir sig sjálft að menn
væru ekki að eyða peningum í
áfengisauglýsingar ef þær virk-
uðu ekki. Unglingar og börn eru
áhrifagjarnari en fullorðið fólk
og það er auðveldara að hafa áhrif
á þau,“ segir Hjalti og bætir við
að það hljóti að vera siðferðileg
spurning hvers vegna menn séu
að setja lög ef það megi svo brjóta
þau.
Ekki náðist í fulltrúa lögregl-
unnar við vinnslu fréttarinnar.
jme@frettabladid.is
Ekki ákært vegna
áfengisauglýsinga
Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hafa sent Ríkislögreglustjóra tæpar 300
kærur og ábendingar vegna ólöglegra áfengisauglýsinga frá því um mitt ár 2011.
Þrátt fyrir það hefur lögreglan ekki ákært í neinum slíkum málum frá árinu 2008.
Í reglugerð um bann við áfengisauglýsingum frá 1989 segir að hvers konar
auglýsingar á áfengi og einstökum áfengistegundum séu bannaðar.
Enn fremur er bannað að sýna neyslu eða hvers konar aðra meðferð
áfengis í auglýsingum. Með auglýsingu er átt við hvers konar tilkynningar
til almennings þar sem sýndar eru í máli eða myndum, áfengistegundir
eða atriði tengd áfengisneyslu, áfengisvöruheiti eða auðkenni, eftirlíkingar
á áfengisvarningi, spjöld eða annar svipaður búnaður, útstillingar, dreifing
prentaðs máls og vörusýnishorna.
Bann við áfengisauglýsingum
HAFA ÁHRIF Áfengisauglýsingar hafa áhrif á börn og unglinga segir áfengisráðgjafi.
Þrátt fyrir hundruð ábendinga um ólögmætar áfengisauglýsingar gerir lögreglan
ekkert í málunum segja Foreldrasamtök gegn áfengi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÁRNI
GUÐMUNDSSON
SVEITARSTJÓRNARMÁL Björn Blöndal, aðstoð-
armaður borgarstjóra og tónlistarmaður,
mun leiða lista Bjartrar framtíðar í kom-
andi borgarstjórnarkosningum. Þetta var
tilkynnt á blaðamannafundi Bjartrar fram-
tíðar rétt í þessu.
Eins og komið hefur fram ætlar Jón Gnarr
borgarstjóri ekki að sækjast eftir endurkjöri
og ætlar að snúa sér aftur að gríninu. Besti
flokkurinn, sem Jón fór fyrir, mun renna inn
í Bjarta framtíð.
Alls eru sex konur í tíu efstu sætunum á
listanum, sem kynntur var í gær, og þrjár í
efstu fimm sætunum.
Athygli vekur að borgarfulltrúarnir Karl
Sigurðsson, oft kenndur við Baggalút, Einar
Örn Benediktsson, fyrrverandi Sykurmoli,
og Páll Hjaltason, borgarfulltrúi og arkitekt,
verða ekki meðal efstu manna á listanum.
Ilmur Kristjánsdóttir leikkona kemur ný inn
á listann í þriðja sæti. - kh, bj
Þrjár konur í fimm efstu sætunum á lista Bjartrar framtíðar í Reykjavík:
Björn Blöndal mun leiða listann
1. Björn Blöndal, aðstoðarmaður borgarstjóra og tónlistarmaður
2. Elsa Yeoman, forseti borgarstjórnar og húsgagnasmiður
3. Ilmur Kristjánsdóttir leikkona
4. Eva Einarsdóttir borgarfulltrúi
5. Ragnar Hansson leikstjóri
6. Magnea Guðmundsdóttir arkitekt
7. Kristján Freyr Halldórsson, bóksali og tónlistarmaður
8. Margrét Kristín Blöndal, varaborgarfulltrúi og tónlistarmaður
9. Heiðar Ingi Svansson bókaútgefandi
10. Diljá Ámundadóttir varaborgarfulltrúi
Listi Bjartrar framtíðar
LISTINN
KYNNTUR Full-
trúar Bjartrar
framtíðar
kynntu fram-
boðslista sinn
í Hljómskál-
anum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
UNDIRSKRIFTASÖFNUN Rúmlega
1.800 manns höfðu síðdegis í gær
skrifað undir áskorun á netinu þar
sem stjórn Rík-
isútvarpsins er
hvött til að fram-
lengja ekki ráðn-
ingarsamning
við núverandi
útvarpsstjóra,
Pál Magnússon.
Undirskrifta-
söfnunin hófst á
mánudaginn.
Í áskoruninni er því mótmælt
hvernig staðið hefur verið að yfir-
stjórn Ríkisútvarpsins og hvern-
ig forgangsraðað er í fjármálum
stofnunarinnar með aför að kjarna
starfseminnar. Farið er fram á að
staða útvarpsstjóra verði auglýst
og sett verði skilyrði um víðtæk-
an skilning á hlutverki almanna-
útvarps og lagaskyldum Ríkis-
útvarpsins. - fb
Vilja Pál Magnússon á brott:
1.800 manns
skrifað undir
PÁLL
MAGNÚSSON
SAMFÉLAGSMÁL Kjaranefnd
Félags eldri borgara í Reykjavík
krefst þess að stjórnarflokkarnir
standi við kosningaloforðin, sem
þessir flokkar gáfu öldruðum og
öryrkjum í aðdraganda síðustu
þingkosninga. Þetta kemur fram í
ályktun félagsins.
Þá segir að stærsta kosninga-
loforðið var loforðið um að leið-
rétta lífeyrinn vegna kjaragliðn-
unar undanfarin fjögur ár. Sú
leiðrétting þýðir 20% hækkun líf-
eyris aldraðra og öryrkja. Kjara-
nefndin krefst þess að þetta lof-
orð verði uppfyllt strax.
Kjaranefndin fer jafnframt
fram á að ríkisstjórnin stöðvi
þegar í stað skerðingu lífeyris
aldraðra frá almannatryggingum
vegna greiðslna úr lífeyrissjóði.
- jme
Eldri borgarar í Reykjavík:
Vilja efndir
á loforðum
stjórnarflokka