Fréttablaðið - 14.12.2013, Side 59
SPJALDTÖLVUR
LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013 Kynningarblað iStore, iPad, Tölvulistinn, Nextbook, Nexus 7, kjarni.is, spjaldtölvunotkun í Klettaskóla.
iPad Air er vinsælasta spjald-tölvan hjá okkur núna enda er hún aðeins 469 grömm en með
9,7 tommu skjá. Vinnsluhraðinn
er tvöfalt meiri en hjá fyrirrenn-
aranum iPad4 og þá er hún með
glænýjan hreyfiörgjörva sem sér
um alla hreyfiskynjun,“ segir
Sigurður Þór Helgason, eigandi
iStore á Íslandi. Hreyfiörgjörv-
inn sparar ekki aðeins batteríið
heldur eykur virkni og auðveldar
notkun spjaldtölvunnar til muna.
„Hreyfiörgjörvinn reiknar út alla
hreyfingu og halla á iPadinum.
Það nýtist vel í simulator- eða
hermiforritum, til dæmis f lug-
leikjum og kappakstursleikjum
og að auki eru ótalmörg önnur
forrit sem nota þessa skynjara,“
lýsir Sigurður.
Önnur nýjung hjá iStore er iPad
mini Retina. Sú spjaldtölva hefur
svipaða eiginleika og iPad Air en
er minni. Hún er með retina-skjá
sem þýðir að skjárinn er með of-
urupplausn. „Það er mikill munur
að horfa á retina-skjá, sérstak-
lega þegar lesinn er smár texti
eða skoðaðar ljósmyndir. Textinn
verður hreinni
og mun skýr-
ari. Þá er
í iPad
mini Retina mjög góð myndavél
og öf lugur örgjörvi,“ segir Sig-
urður sem er ánægður með eft-
irspurn landans eftir spjaldtölv-
unum frá Apple. „Við önnum vart
eftirspurn nú í desember enda er
iPad greinilega afar vinsæl jóla-
gjöf í ár.“
Lág bilanatíðni
Apple er frumkvöðull á sviði
spjaldtölvutækninnar og vin-
sældir iPad má að hluta rekja
til þess. Þá hefur lág bilanatíðni
tölvanna einnig mikið að segja.
„Bilanatíðnin er nánast engin
í iPad enda er þetta besta tækið
sem við höfum nokkurn tímann
selt,“ segir Sigurður.
Apple náði nýlega þeim áfanga
að komin eru milljón forrit sem
velja má úr fyrir iPad. „iPad er
iðulega fyrsta val hugbúnaðar-
framleiðenda,“ lýsir Sigurður.
Hann segir framleiðendur tækja
sem stýrt sé með spjaldtölvum
ávallt styðjast við iPad fyrst en
síðar komi umhverfi fyrir aðrar
tölvur. „iPad var fyrsta spjald-
tölvan á markaði og því er hann
sú tölva sem ávallt er miðað við.“
Gætt að öryggi
Fyrir utan lága bilanatíðni er
stór kostur við iPad að í honum
finnast engir vírusar. „Aftur
á móti skipta vírusar
tugum í And-
roid og eigend-
ur slíkra spjald-
tölva geta lent í því
að fá njósnafor-
rit inn á tölvuna
sína,“ segir Sig-
urður og lýsir
því að Apple
geri mik lar
öryggiskröf-
ur. „Þeir hleypa aðeins ákveðn-
um hugbúnaðarframleiðendum
að stýrikerfinu sínu. Þeir eru með
þúsundir starfsmanna í vinnu við
að prófa forrit og rannsaka þau
áður en þau fá að fara í notkun.“
Annað sé upp á teningnum hjá
Android. „Þar getur hver sem er
gert hugbúnað og fengið aðgang
að öllu stýrikerfinu. Þar með auð-
veldar það óprúttnum náungum
að koma fyrir svokölluðum tróju-
hestum í kerfið.“
Íslenskar lyklaborðstöskur
iStore hefur látið framleiða fyrir
sig lyklaborðstöskur með íslensku
lyklaborði fyrir iPad Air og iPad
2 til 4.
„Við fundum góðan framleið-
anda til að gera lyklaborðstösk-
ur fyrir okkur og hafa þær reynst
afar vel. Þær koma í svörtu, rauðu
og hvítu. Þetta eru hágæðatöskur
með flottu lyklaborði og ending-
artími batterísins er afar góður,“
segir Sigurður.
Aðeins þarf að para iPadinn
einu sinni við lyklaborðið sem
er í töskunni. Eftir það er nóg
að opna iPadinn og þá er um
leið hægt að vinna á lyklaborð-
ið. „Taskan veitir iPadinum mjög
góða vörn,“ segir Sigurður en
einnig er hægt að taka lyklaborð-
ið úr töskunni þar sem það er fest
með seglum. Þá fylgja lyklaborðs-
töskunni íslenskar leiðbeining-
ar sem auðveldar fyrstu skrefin
fyrir marga.
iPad er vinsæll í jólapakkann
Mikið er um að vera í iStore í Kringlunni um þessar mundir enda anna starfsmenn vart eftirspurn eftir iPad-spjaldtölvum sem eru
vinsælar í jólapakkann. Vinsældir iPad má meðal annars rekja til afar lágrar bilanatíðni auk þess sem enga vírusa er að finna í
spjaldtölvunum frá Apple. iStore hefur látið framleiða fyrir sig lyklaborðstöskur með íslensku lyklaborði.
iPad Air tengdur íslensku lyklaborði í tösku sem iStore hefur látið hanna fyrir sig.
Sigurður Þór Helgason, eigandi iStore, með lyklaborðstöskurnar sem iStore lætur framleiða fyrir íslenskan markað. MYND/GVA
Styrktarsjóðurinn iBörn
iStore rekur styrktarsjóðinn iBörn
sem hefur að markmiði að gefa
hreyfihömluðum börnum iPad í
þeirri viðleitni að þjálfa upp meiri
hreyfigetu, hjálpa við tjáningu og
auka þar með lífsgæði barnanna.
„Við höfum þegar gefið 27 börnum
iPad en stefnum á að vera búin
að gefa 30 iPada fyrir jólin enda
á sjóðurinn þriggja ára afmæli,“
segir Sigurður eigandi iStore.
Hann tiltekur að styrktarsjóður-
inn verði ávallt hluti af fyrirtæk-
inu. „Enda er ótrúlega spennandi
að hjálpa til við að breyta lífi þess-
ara barna.“
Sigurður segir iPadinn geta
hjálpað þessum börnum mjög
ótrúlega mikið enda hægt að setja
í tölvuna forrit sem örva skynjun
og hreyfigetu. „Ég held að öll
börnin hafi sýnt góðan árangur,
sum meiri en önnur. Ég þekki
dæmi um foreldra sem vissu ekki
hvort nokkur hugsun leyndist að
baki hreyfingum barnsins síns.
Eftir notkun á iPad sáu þau barnið
sitt í nýju ljósi, þarna var einstak-
lingur sem gat tjáð sig um langan-
ir sínar og tilfinningar,“ lýsir Sig-
urður. Hann segir mikla breyt-
ingu verða á lífi foreldranna við
þessa uppgötvun en ekki síður á
lífi barnsins sem loks getur komið
eigin skoðunum á framfæri.
Sigurður tekur dæmi um fyrstu
stúlkuna sem fékk iPad frá iStore.
„Hún var alveg lömuð fyrir utan
pínulitla hreyfigetu í tveim putt-
um sem talin var ómarkviss. Hún
sýndi strax viðbrögð við iPadinum
og sex mánuðum síðar var hún
búin að þjálfast svo mikið að hún
var farin að keyra hjólastól,“ lýsir
Sigurður glaðlega. Upp úr þessu
fór Sigurður að kynna iPadinn
fyrir starfsfólki ýmissa stofnana,
talmeinafræðingum, hjúkrunar-
fræðingum og iðjuþjálfum til að
sýna fram á kosti iPads sem hjálp-
artækis.
Sigurður segir sjóðinn gjarn-
an vilja fá ábendingar um hreyfi-
hömluð börn sem iPad gæti komið
að góðum notum fyrir.
„Við erum alltaf að leita eftir
ábendingum um börn sem við
getum aðstoðað og hægt er að
senda inn upplýsingar á iborn@
istore.is.“ iStore hefur gefið 27 hreyfihömluðum börnum iPad en þau verða 30 fyrir jól enda
sjóðurinn þriggja ára um þessar mundir.