Fréttablaðið - 14.12.2013, Page 62

Fréttablaðið - 14.12.2013, Page 62
FÓLK|HELGIN Plötunni hefur verið vel tekið en öll lögin eru samin af þeim Guðmundi Óskari Guðmundssyni og Bjarna Frímanni Bjarnasyni. Textarnir eru sóttir í klassísk ís- lensk ljóðasöfn. „Við höfum fengið frábærar viðtökur sem er æðislegt. Útgáfutónleikar verða í Fríkirkjunni á miðvikudagskvöld. Þar viljum við skapa notalega jólastemningu í fallegu umhverfi,“ segir Sigríður sem segist vera mikið jólabarn. „Ég hef alltaf verið mikið jólabarn þótt ég skreyti ekki mikið né baki smákökur. Það er eiginlega vegna þess að ég hef ekki tíma til þess. Ég reyni að nota tímann í desember fyrir sjálfa mig og hitta gott fólk þegar ég hef tíma.“ Hún segist ekki hafa pláss fyrir jólatré en setur upp nokkrar greinar til að fá jólastemningu. „Mér finnst alltaf notalegt að kveikja á kertum og jafnvel fara út að borða á aðventunni,“ segir hún. MEÐ FJÖLSKYLDUNNI Á JÓLUM Sigríður fer til foreldra sinna á aðfangadags- kvöld. „Við erum ekki með neinar sérstakar hefðir, erum frekar sveigjanleg í jólasiðum. Þegar ég var yngri voru alltaf rjúpur en á undanförnum árum hefur móðir mín frekar prófað eitthvað nýtt. Sjálfri er mér alveg sama hvað ég borða á jólum, það mætti vera fiskur eða sushi. En það verður örugglega eitthvað gott á borðum. Við höldum hins veg- ar í þá hefð að fara í miðnæturmessu í Dóm- kirkjunni. Ég var í Hamrahlíðarkórnum í mörg ár og systur mínar á undan mér en kórinn syngur alltaf í þessari messu,“ segir Sigríður enn fremur. „Mér finnst það mjög hátíðlegt.“ JÓLAGESTUR Það er nóg að gera hjá Sigríði sem í dag syngur á tvennum tónleikum á Jólagestum Björgvins í Laugardalshöll. „Það er ótrúlega skemmtilegt að syngja á þessum tónleikum og gleðin svífur yfir. Á morgun förum við Guðmundur Óskar síðan norður á Drangs- nes á Ströndum og ætlum að syngja fyrir íbúa þar. Vinur okkar, Bjössi Borkó tón- listarmaður, býr á Drangsnesi og stendur fyrir þessum tónleikum. Það verður gaman að heimsækja hann og syngja á þessum fallega stað. Ég hef reyndar aldrei komið þarna áður,“ segir Sigríður sem fer síðan til Akureyrar um næstu helgi þar sem verða útgáfutónleikar hjá hljómsveitinni Hjaltalín. „Það hefur verið nóg að gera hjá hljómsveit- inni og við munum einnig spila milli jóla og nýárs. Eftir áramótin leggjum við síðan land undir fót og förum í tónleikaferð til Evrópu. Fyrst koma áramótin sem ég ætla að eyða með fjölskyldu minni, fara á brennu og þess háttar. Mig langar síðan að taka mér jólafrí fyrstu dagana í janúar, lesa bækur og hafa það gott.“ Þegar Sigríður er spurð hvert sé hennar uppáhaldsjólalag er hún fljót að svara: „Það er Jólakötturinn eftir Ingibjörgu Þorbergs. Ég syng það oft, enda vel samið lag.“ ■ elin@365.is FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 JÓLABARN „Ég hef alltaf verið mikið jólabarn þótt ég skreyti ekki mikið né baki smákökur. Það er eigin- lega vegna þess að ég hef ekki tíma til þess.“ SYNGUR INN JÓLAGLEÐINA MARGT AÐ GERAST Sigríður Thorlacius söngkona er komin í jólaskap, enda hefur hún í nógu að snúast á hinum ýmsu jóla- tónleikum. Hún fagnar líka nýrri plötu sinni, Jólakveðju. Glæsilegir vinningar í boði Íslensk framleiðsla www.papco.is Við erum á Facebook JÓLAKVEÐJA Jólaplötu Sig- ríðar Thorlacius hefur verið afar vel tekið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.