Fréttablaðið - 14.12.2013, Side 120
14. desember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 92
BÆKUR ★★★★ ★
Klefi Nr. 6
Rosa Liksom
Þýðing: Sigurður Karlsson
UPPHEIMAR
Finnskar skáldsögur
hafa eitthvert yfirbragð
sem gerir þær ólík-
ar skáldsögum allra
annarra landa. Það er
þessi einstaka blanda af
svartamyrkri og kaldhæðnislegum
húmor sem hrífur lesandann með
sér, hristir upp í honum og fær hann
til að glotta meinlega með sjálfum
sér. Verðlaunaskáldsaga Rosu Lik-
som, Klefi Nr. 6, fer enn lengra inn
á þetta einstigi kolsvartrar örvænt-
ingar og kaldhæðins húmors en
flestar aðrar finnskar skáldsögur
sem ég hef lesið og heillar mann,
sannast að segja, gjörsamlega upp
úr skónum.
Þar hjálpast allt að. Sögusviðið
er óvenjulegt; þröngur lestarklefi í
lest á ferðalagi yfir þver Sovétríkin
heitin, leyndardómsfull aðalpersóna;
finnsk námsmey sem virðist vera á
flótta frá Moskvu án þess að lesand-
anum sé ljóst fyrr en seint og um
síðir hvað hún er að flýja, og erki-
rússneskur drykkjusvoli sem deilir
með henni klefanum í þessar vikur
sem ferðalagið tekur. Lýsingarnar
á samskiptum þeirra eru meistara-
stykki í fyrrnefndum finnskum bik-
húmor, hann er í flesta staði ógeð-
felldur rusti, kallar konur aldrei
annað en kuntur eða hórur, sýnir
stúlkunni hvað eftir annað grófa
kynferðislega áreitni, en er samt
sem áður brjóstumkennanlegur og
furðanlega viðkunnanlegur, enda
tekst með þeim tveimur hin prýði-
legasta vinátta þegar á líður, þrátt
fyrir allt. Það sem allra mest
hrífur eru þó lýsingarnar
á Sovétríkjunum, íbúum
þeirra og borgum, hrika-
legu landslagi, bruna-
frosti, örvæntingu og von.
Í örstuttum myndum dreg-
ur Liksom upp firnasterkar
myndir sem lifa með lesand-
anum lengi og súmmera upp
lífið, þrárnar og vonirnar í
þessu stórveldi sem á sögu-
tímanum er örstutt frá því að
líða undir lok. Maður gleym-
ir stund og stað í þessu ægi-
lega umhverfi sem um leið er svo
fullt af mannlegum breyskleika og
ofurvenjulegu fólki sem hægt er
að samsama sig. Mann langar helst
að byrja aftur á bókinni um leið og
lestri lýkur til að komast inn í þenn-
an heim að nýju.
Stíll Liksom er æði sérstakur,
knappur og hrikalegur eins og síber-
ísk túndra og það hefur ekki verið
áhlaupaverk fyrir meistaraþýðand-
ann Sigurð Karlsson að snara þess-
um texta yfir á íslensku. Hann leysir
það þó auðvitað af hendi með sóma
og bravúr og skapar áhrifaríkan
texta sem manni finnst næstum að
sé á frummálinu, svo erkifinnskur
er hann í gegn.
Það er engin furða að Liksom
hafi hlotið Finlandia-verðlaunin
fyrir þessa sögu og verið tilnefnd af
hálfu Finna til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs. Hér er einfald-
lega komin ein besta skáldsaga sem
undirrituð hefur lesið árum saman
og full ástæða til að hvetja alla sem
unna góðum bókmenntum til að láta
ekki Klefa Nr. 6 fram hjá sér fara.
Friðrika Benónýsdóttir
NIÐURSTAÐA: Sterk, hrottaleg, fögur
og einstaklega vel stíluð skáldsaga sem
allir ættu að lesa.
Lestin brunar, brunar
Myndlistarmaðurinn Grétar Mar
Sigurðsson opnaði nýverið lista-
sýningu á Hótel Kaffistofu. Grétar
Mar er á lokaári í myndlistadeild
Listaháskóla Íslands og er sýning
listamannsins „Upplifun“ fyrsta
einkasýning hans. Grétar er skap-
ari listafígúrunnar „Mar“ en það er
að sögn Grétars tilraun hans til að
tengja alla listmiðla og ná þannig
til sem flestra með sköpuninni.
Grétar segir tilganginn með
Mar vera að breiða út ákveðinn
boðskap sem hann telur að allir
ættu að hafa aðgang að. „Boðskap-
urinn er tvíþættur. Sá fyrri snýr
að gagnrýnni hugsun og sá síðari
að nauðsyn andlegrar framþró-
unnar og þroska hinnar mannlegu
meðvitundar. Listaverk Mars eiga
að varpa ljósi á hvers sköpunin er
megnug og hvað hún er nauðsyn-
leg fólki og samfélaginu í heild.“ Á
sýningunni má sjá mynd- og prent-
verk, hljóðverk, ljóð, innsetningu,
lifandi skúlptúr og gjörning þar
sem listamaðurinn gerir tilraun
til að hugleiða eins lengi og lík-
aminn leyfir. Áhorfendum verð-
ur einnig boðið að taka þátt í hug-
leiðslu á sýningunni. „Fólk getur
komið og gert það á sínum forsend-
um, ég ráðlegg fólki í hugleiðslu að
vera með sperrtan hrygg, hugann
tóman og augun lokuð, og að það
beini augum að enninu.“
Grétar byrjaði sjálfur að hug-
leiða fyrir nokkrum árum og hefur
kynnt sér ýmsar hugleiðsluaðferð-
ir. „Þær hafa algjörlega breytt
lífi mínu og ég vil gefa fólki færi
á að upplifa það sama. Við erum
öll með svipaða líkams- og hugar-
starfsemi svo að bara það að sitja
í nokkrar mínútur og hugsa ekki
neitt gefur öllu kerfinu eins konar
endurræsingu. Á sýningunni má
því segja að fólki gefist tækifæri
til að skoða sitt innra rými.“
Tilgangurinn með sýningunni
var upphaflega að gefa fólki vett-
vang til að hugleiða. „Ég hef tekið
eftir því að það eru afar fáir staðir
sem bjóða upp á það. Erlendis hef
ég hugleitt til dæmis í flugvallar-
kapellum, sem er ágætis nýting á
slíkum rýmum að mínu mati. Það
er mín skoðun að það sé á ábyrgð
samfélagsins að skapa slíkan vett-
vang fyrir þegna sína því ég er
þess handviss að fólk myndi nýta
sér það, samfélaginu öllu til heilla.“
Sýning Mars mun standa alla
helgina á Hótel Kaffistofu. Hverf-
isgötu 42B. en henni lýkur á sunnu-
dagskvöldið. Júlía Margrét Einarsdóttir
Fá tækifæri til að
skoða sitt innra rými
Listamaðurinn Grétar Mar Sigurðsson hefur opnað sína fyrstu einkasýningu á
Hótel Kaffi stofu. Áhorfendum gefst kostur á að skoða list og stunda hugleiðslu.
GRÉTAR MAR Myndlistarmaður. MYND/VILHELM
RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS
HEIMABÍÓ Í EINUM HÁTALARA
JBL Cinema SB200
59.990 VERÐ
HELSTU KOSTIR
• Getur notað sömu fjarstýringu og sjónvarpið
• Harman Display Surround tækni
• Þráðlaus Bluetooth tenging
• Einfalt í uppsetningu
SM.I
S