Fréttablaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 136
14. desember 2013 LAUGARDAGUR| SPORT | 108
FÓTBOLTI Landsliðskonan Hallbera
Guðný Gísladóttir hefur samið við
toppliðið í ítölsku úrvalsdeildinni,
ASD Torres sem hefur aðsetur
á eynni Sardiníu. Samningurinn
gildir til loka tímabilsins en þá
er ætlunin að hún snúi aftur heim
til Íslands og spili í Pepsi-deild
kvenna.
„Ég veit nú ekki mikið um
ítalska boltann en ég spilaði gegn
tveimur liðum frá Ítalíu með Val
í Evrópukeppninni á sínum tíma.
Annað þeirra var Torres og var
mjög sterkt,“ sagði hún við Frétta-
blaðið í gær en þá var hún á heim-
leið eftir að hafa skrifað undir
samninginn.
„Hér lítur allt saman mjög vel
út. Ég náði tveimur æfingum og
það var gott tempó á þeim,“ segir
hún en það var Freyr Alexanders-
son, landsliðsþjálfari og fyrrver-
andi þjálfari Vals, sem kom for-
ráðamönnum Torres í sambandi
við Hallberu.
Höfðu samband í gegnum Val
„Þeir voru að leita að kantmanni
og höfðu haldið góðu sambandi við
nokkra hjá Val eftir að liðin spiluðu
í Evrópukeppninni. Þannig fór þetta
af stað,“ segir Hallbera sem hefur
síðustu tvö árin spilað með Piteå í
Svíþjóð. Hún hafnaði nýju tilboði
frá félaginu í haust, sem og frá
öðrum liðum á Norðurlöndunum.
„Svo kom þetta upp og þá ákvað ég
bara að kýla á þetta – klára þennan
vetur og koma svo heim. Ég er búin
að ákveða að þetta verði mitt loka-
ævintýri í útlöndum,“ segir hún og
segir ýmsar ástæður fyrir því.
„Ég verð 28 ára á næsta ári og
mér finnst tímabært að ég fari
að koma mér almennilega fyrir á
Íslandi. Þetta er ekki eins og hjá
körlunum í atvinnumennskunni
sem geta bara safnað peningum
og keypt sér svo hús þegar heim
er komið eftir ferilinn. Við stelp-
urnar verðum að hugsa þetta öðru-
vísi,“ útskýrir Hallbera og bætir við
að það sé tímabært að byrja að lifa
„fullorðinslífi“ eins og hún orðaði
það.
„Ég er sátt við að hafa prófað og
ég hef lært heilmikið af þessum
árum í Svíþjóð. Það voru forrétt-
indi að geta einbeitt sér að því að
spila fótbolta en ég er bara þannig
gerð að ég þarf að hafa meira fyrir
stafni,“ segir Hallbera sem stefnir
að því að fara í háskóla í haust.
Vil koma aftur í Val
Ferlinum er þó hvergi nærri lokið og
gerir hún ráð fyrir því að spila með
landsliðinu eins lengi og það stend-
ur henni til boða. Og hún neitar því
ekki að hugurinn stefnir aftur í Val
þegar heim verður komið.
„Það er ekkert ákveðið enn en ég
hef átt í viðræðum við Val. Ég vil
gjarnan fá að koma aftur og taka
minnst eitt tímabil með þessum
kjarna leikmanna sem er enn hjá
liðinu,“ segir Hallbera sem er upp-
alin Skagamær. Samningur henn-
ar við Torres er til 1. júní en hún
þarf þá að bíða til 15. júlí þar til
opnað verður fyrir félagaskipti hér
á landi.
Hallbera heldur út strax eftir
áramót og vonast til að verða
komin með leikheimild þegar Tor-
res á leik 5. janúar. Hún neitar því
ekki að það sé spennandi tilhugs-
un að fara úr vetrarríkinu í norð-
urhluta Svíþjóðar í Miðjarðarhafs-
sólina. „Þetta er ýmist í ökkla eða
eyra hjá mér,“ segir hún í léttum
dúr. „Það verður ágætis tilbreyt-
ing að vera ekki í frosti í mars. Þá
verður örugglega komið fínasta
sumarveður hér.“
eirikur@frettabladid.is
Þetta er ekki
eins og hjá körlunum í
atvinnumennskunni sem
geta bara safnað pening
og keypt sér hús.
Hallbera Guðný Gísladóttir
leikmaður Torres ASD
LAUGARDAGUR
12.35 Man. City-Arsenal Sport 2
14.50 Cardiff-WBA Sport 3
14.50 Everton-Fulham Sport 4
14.50 Newcastle-Southampton Sport 5
14.50 West Ham-Sunderland Sport 6
17.20 Hull-Stoke Sport 2
18.50 Barcelona-Villarreal Sport
SUNNUDAGUR
13.20 Aston Villa-Man. Utd Sport 2
13.20 Norwich-Swansea Sport 3
15.50 Tottenham-Liverpool Sport 2
16.20 HM kvenna, 16-liða úrslit Sport 3
16.50 HM kvenna, 16-liða úrslit Sport
19.35 HM kvenna, 16-liða úrslit Sport 4
19.05 HM kvenna, 16-liða úrslit Sport 3
19.50 Atletico Madrid-Valencia Sport
FÓTBOLTI Enski boltinn um helgina
hefst með látum því í hádeginu
tekur Man. City á móti toppliði
Arsenal í stórleik helgarinnar.
Arsenal er með fimm stiga for-
skot á toppnum en City er í fjórða
sæti, sex stigum á eftir Lundúna-
liðinu. Þrjú stig eru því afar mik-
ilvæg fyrir City í dag. Með sigri
verður liðið aðeins þrem stigum á
eftir Arsenal og galopnar toppbar-
áttuna í leiðinni.
Það er svo sannarlega ekki verið
að auðvelda verkefnið fyrir Arse-
nal. Liðið var með síðdegisleik
síðasta sunnudag, spilaði á Ítalíu
í Meistaradeildinni á miðvikudag
og á nú hádegisleik á laugardegi.
Mikel Arteta, miðjumaður Arse-
nal, vældi yfir þessu álagi í gær en
Arsene Wenger, stjóri liðsins, lítur
málið aftur á móti björtum augum.
„Það er gott tækifæri fyrir
okkur að byrja helgina vel og
setja pressu á andstæðingana.
Ég kvarta ekki yfir tímasetningu
leikja og við notum það ekki sem
afsökun. Vissulega er lítill tími til
að æfa og í raun bara endurheimt
fram að leik en þannig er það
bara,“ sagði hinn jákvæði Wenger.
Lið City er talsvert miklu dýr-
ara en lið Arsenal en Wenger segir
sinn hóp samt alls ekkert vera
síðri. „City er með mjög sterkan
hóp en þegar ég horfi á minn hóp
þá öfunda ég ekki City. Við erum
með fleiri skapandi og fjölhæfari
leikmenn. Það er auðveldara fyrir
mig að gera breytingar á liðinu.
City fór aðra leið en Arsenal en
okkar stefna er að skila stöðug-
leika og árangri.“ - hbg
Ég kvarta ekki yfi r tímasetningu
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er hvergi banginn fyrir stórleik helgarinnar.
WENGER Mætir með jákvætt hugarfar
til leiks. NORDICPHOTOS/GETTY
SUND Eygló Ósk Gústafsdóttir
skráði sig í sögubækurnar í gær
er hún varð fyrsta íslenska sund-
konan til þess að keppa í úrslitum
á Evrópumeistaramóti í 25 metra
laug í Danmörku. Eygló hafnaði í
áttunda sæti af tíu keppendum á
tímanum 59,39 sekúndum.
Aðeins Ragnheiður Runólfs-
dóttir hafði áður keppt í úrslitum
á stórmóti. 22 ár eru liðin síðan
Skagakonan keppti í úrslitum í
100 metra bringusundi á EM í
Aþenu árið 1991. Ragnheið-
ur var valin íþróttamaður
ársins það ár.
„Ég er mjög ánægð með
árangurinn. Ég ætlaði mér
að komast í úrslit en bjóst
ekki við því að enda svona
ofarlega,“ segir Eygló
sem var með fjór-
tánda besta tíma
allra keppenda í
greininni. Eygló
bætti Íslands-
met sitt í grein-
inni á fimmtu-
dag þegar hún
synti á 59,26
sekúndum.
„Ég var minna stressuð þá og
það gæti hafa spilað inn í,“ segir
sundmærin átján ára úr Ægi. Hún
segir hafa verið afar gaman að
keppa í úrslitum og reynslan muni
nýtast henni vel.
Stemningin var gríðarlega góð
í sundhöllinni í Herning þegar
Eygló stakk sér til sunds. Heima-
konan Mie Nielsen þótti líkleg til
afreka og sú sautján ára stóð undir
væntingum. Nielsen kom fyrst
í mark á 55,99 sekúndum við
mikinn fögnuð áhorfenda sem
voru á fjórða þúsund.
Eygló keppir í 50 metra
baksundi í dag og ætlar að
njóta þess að synda afslöppuð
enda er um aukagrein að ræða
hjá henni. Stóra stundin
verður á morgun
í 200 metra bak-
sundi.
„Ég ætla að
synda hratt,“
segir Eygló og
markmið henn-
ar er klárt.
Ægiskonan
ætlar í úrslit.
- ktd
Eygló í sögubækurnar
Ægiskonan hafnaði í 8. sæti í 100 metra baksundi.
Skipholti 37
Sími 568 8388, lumex.is
Opið laugardaga frá 11-16
ETCH ETCH Candle holder
Mitt síðasta ævintýri
Hallbera Guðný Gísladóttir hefur samið við Torres á Ítalíu og mun spila með
liðinu út leiktíðina. Eft ir það segir hún skilið við atvinnumennskuna og fl yst
alfarið heim. „Við stelpurnar þurfum að hugsa þetta öðruvísi,“ segir hún.
LANDSLIÐSKONA Hallbera Guðný í leik með íslenska landsliðinu á Algarve-mótinu fyrr á þessu ári. NORDICPHOTOS/GETTY