Fréttablaðið - 12.04.2014, Blaðsíða 61
Sérfræðingur í Fjárstýringu
Íslandsbanki býður alhliða fjármálaþjónustu. Hjá bankanum starfa um 1.000 starfsmenn.
Við sækjumst eftir starfsfólki sem er jákvætt, faglegt og framsýnt og leitar ávallt bestu lausna
fyrir viðskiptavini bankans. Framtíðarsýn Íslandsbanka er að vera #1 í þjónustu.
Hlutverk Fjárstýringar er fjármögnun starfseminnar með útgáfu skráðra skuldabréfa á
innlendum og erlendum mörkuðum og stýring lausafjár-, gjaldmiðla- og vaxtaáhættu bankans.
Nánari upplýsingar veitir Ósvaldur Knudsen, forstöðumaður Fjárstýringar,
osvaldur.knudsen@islandsbanki.is, sími 440 2788. Tengiliður á mannauðssviði
er Sigrún Ólafsdóttir, sigrun.olafs@islandsbanki.is, sími 440 4172.
Umsóknir óskast fylltar út á www.islandsbanki.is og sendar ásamt ítarlegri ferilskrá.
Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl.
Helstu verkefni:
• Umsjón með útgáfuferlum og reglulegar uppfærslur
á útgáfurömmum vegna skráðra skuldabréfa
• Samskipti við eftirlitsaðila og skjalagerð í tengslum
við víxla- og skuldabréfafjármögnun
• Stýring á tryggingarsöfnum vegna útgáfu
sértryggðra skuldabréfa
• Gerð kynningarefnis, skýrslugerð og greining
• Önnur verkefni eftir nánara samkomulagi
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Greiningarhæfni talnaskilningur og nákvæmni
• Hæfni til að flytja og rökstyðja mál á fundum
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
• Skipulagshæfni og hæfni í mannlegum samskiptum
islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook
| ATVINNA |
Aðstoðarskólastjóri
Grunnskólinn í Stykkishólmi óskar eftir
að ráða aðstoðarskólastjóra. Viðkomandi
þarf að geta hafið störf 1. ágúst 2014.
Aðstoðarskólastjóri
• er staðgengill skólastjóra.
• vinnur með skólastjóra að daglegri stjórnun og
skipulagningu skólastarfsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kennsluréttindi í grunnskóla.
• Kennslureynsla í grunnskóla.
• Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að
umgangast börn og unglinga.
• Stjórnunarreynsla æskileg eða framhaldsnám
í stjórnun.
• Góð þekking á sérkennslu/stoðþjónustu væri
æskileg.
• Skipulagshæfni, stundvísi og frumkvæði.
• Góð tök á íslenskri tungu í ræðu og riti.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi
Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna
Skólastjórafélags Íslands.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnar
Svanlaugsson skólastjóri í síma 433 8177 eða 864 8864,
gunnar@stykk.is
Skriflegum umsóknum skal skilað til skólastjóra
fyrir 30. apríl 2014.
stykkishólmur
Bærinn við eyjarnar
www.stykkisholmur.is
AÞ-Þrif leitar að einstaklingum í vinnu.
Einungis íslensku- eða enskumælandi
einstaklingar koma til greina.
Ákjósanlegur aldur er 20–40 ára.
Gerðar eru kröfur um bílpróf
og hreint sakavottorð.
Umsóknir sendist á
bjarki@ath-thrif.is merkt „Atvinna“
ATVINNA
Skeiðarási 12
210 Garðabæ
LAUGARDAGUR 12. apríl 2014 5