Fréttablaðið - 12.04.2014, Blaðsíða 45
Margt smátt ... – 5
og það er augljóst að þessi reynsla hefur markað djúp
spor í huga hennar.
„Mér fannst ég skríða inn í kirkjuna eftir hjálp. Það var
erfitt að segja að ég ætti ekki fyrir nauðþurftum og að
ég vissi ekki hvað ég gæti gert í stöðunni. Mér fannst
ég gjörsamlega varnarlaus. Konan sem tók á móti mér
nálgaðist mig hins vegar á hárréttan hátt og það
finnst mér eftir á að hyggja skipta öllu máli. Hún talaði
nefnilega við mig sem jafningja. Fyrir henni var það
bara verkefni að vinna með mér að því að bæta
ástandið.“
Ellen segir það skipta sköpum að nálgast fólk sem býr
við kröpp kjör þannig að það upplifi ekki að aðrir aumki
sig yfir það. „Mig langaði ekki að vera í þessum
aðstæðum en ég vissi ekki hvernig ég gat komist út úr
þeim. Konan sem ég hitti í kirkjunni rétti mér hjálpar-
hönd án ölmusuviðhorfs og ég komst af stað aftur.
Hún benti mér á ýmis úrræði sem eru til í samfélaginu
og ég fékk aðstoð til að halda jól. Ég gat meira að segja
keypt jólagjafir handa börnunum. Ég fékk leigða
íbúðina sem við búum í núna og ég fór aftur í íslensku
í háskólanum í janúar 2O12.“
„Fátækt fólk er alls konar“
Eftir áramótin 2O11–2O12 fór allt að ganga betur hjá
Ellen. Hún fékk verkefni sem grafískur hönnuður og
stundaði íslenskunámið af kappi. „Svo hringdi þessi
sama kona í kirkjunni í mig og sagði mér að það væri
starfandi hópur fólks sem upplifði fátækt. Hún spurði
mig hvort ég væri til í að taka þátt í starfinu og ég var
mjög spennt fyrir því. Mér fannst ég geta nýtt reynslu
mína frá Bandaríkjunum þar sem ég hafði jú verið að
vinna með fólki í þessari stöðu. Ég hugsaði líka með
mér að kannski væri bara kominn tími til fyrir mig að
taka þátt í svona verkefni sem fátæka manneskjan
þannig að ég sagðist vilja vera með og hjálpa ef ég
gæti.“ Ellen hefur í framhaldinu tekið að sér að
myndlýsa og brjóta um bók fyrir íslenska tengslanetið
og er nú að vinna að heimasíðu þess í sjálfboðavinnu.
Hópurinn sem Ellen talar um starfar á Íslandi en er í
sambandi við hópa fátæks fólks í öðrum löndum
Evrópu. Tengslanetið heitir European Anti Poverty
Network eða EAPN upp á ensku og hefur það að
markmiði að finna saman leiðir út úr fátækt og að
stuðla á því að hver geti lært af öðrum.
„Um vorið 2O12 fór ég svo á ráðstefnu EAPN tengsla-
netsins sem var haldin í Brussel í Belgíu og þá fannst
mér ég virkilega vera komin af stað aftur. Við ræddum
um aðstæður okkar og hvaða samfélagslegu úrræði
virka vel og hvaða síður vel. Það er merkilegt að við
eigum svo margt sameiginlegt. Bilið á milli framfærslu-
kostnaðar og greiðslugetu fólks sem nýtur bóta virðist
til dæmis það sama í prósentum talið hér á Íslandi, á
Írlandi og á Spáni. Á ráðstefnunni töluðum við um að
við lítum kannski ekki eins út og tölum ekki sama
tungumál en við upplifum sömu söguna aftur og
aftur,“ segir Ellen sem er orðið heitt í hamsi.
„Við töluðum líka um eigin fordóma í garð fátæks fólks.
Það er nefnilega þannig að fátækt fólk er oft stimplað
sem aumingjar eða sem fíkniefnaneytendur en
auðvitað er það ekki alltaf raunveruleikinn.
Vissulega getur fólk verið fátækt vegna áfengis- og
fíkniefnaneyslu sem það ræður ekki við en slys og
veikindi gera ekki boð á undan sér og fólk verður oft
efnalítið af þeim sökum líka. Ég hitti fólk á ráðstefn-
unni sem hafði verið í vinnu en misst hana og ekki
fundið leiðina út úr fátæktinni aftur. Það hafði hugsað
alveg eins og ég að þetta myndi aldrei koma fyrir sig.
En það getur verið stutt á milli þess að vera sjálf-
stæður í góðri stöðu og svo að vera það ekki,“ segir
Ellen og útskýrir að svo virðist sem innflytjendur hvar
sem er í heiminum og af ólíkum ástæðum lendi oft í
fátæktargildru í nýju landi.
Aftur á fulla ferð
Ellen segir að það hafi breytt öllu til hins betra fyrir
sig að taka skrefið og biðja um aðstoð. Hún segist
smám saman hafa fundið aukinn styrk með því að
vinna að einhverju sem ekki snérist bara um hana
sjálfa heldur um þetta sammannlega eins og hún
útskýrir. „Einmitt þegar maður er sem verst settur er
svo gott að geta lagt sitt af mörkum eins og til dæmis
í gegnum starf EAPN tengslanetsins. Mér fannst svo
gott að standa upp og aðhafast eitthvað. Mér fannst
ég allt í einu muna hver ég er og hvað ég get.“
Á síðasta ári sagði Ellen í hálfkæringi við vin sinn sem
var að leita að sundþjálfara fyrir börn að hún vildi
gjarnan hjálpa ef hún bara væri nú nógu góð í
íslensku. Vinur hennar tók hana hins vegar á orðinu og
tveimur vikum seinna var Ellen boðið að taka að sér
5O% starf sem sundþjálfari í Reykjanesbæ.
„Þetta er svo gaman og krakkarnir eru svo góðir
íslenskukennarar,“ segir Ellen en fyrir utan þjálfunina
hefur hún líka hannað liðsbúninga krakkanna.
„Á morgun er ég svo að byrja í öðru 5O% starfi sem
hentar mjög vel með þjálfuninni og svo held ég að
sjálfsögðu áfram að taka að mér verkefni sem
grafískur hönnuður.“
Ellen er sem sé komin á fulla ferð aftur. „Já nú er ég
aftur orðin sú kona sem ég þekki. Auðvitað er alltaf
eitthvað að koma upp á en þá er bara að halda áfram.
Ég lít satt best að segja ekki þannig á að ég hafi verið
eða sé fátæk þótt ég sé efnalítil því að ég á það sem
skiptir svo miklu máli: þrjú yndisleg börn, frábæran
vinahóp og frændgarð. Ég er þar að auki vel gefin og
heilsuhraust. Ég ætla að vera áfram á Íslandi og hugsa
vel um börnin mín. Ég er bjartsýn, það er best,“ segir
þessi jákvæða kona að lokum og hlær.
Tengslanetið European Anti-Poverty Network (EAPN)
er vettvangur Evrópubúa sem búa við kröpp kjör.
Markmið þess er að hafa áhrif á stefnumótun Evrópu-
sambandsins og þar með þjóðríkja í Evrópu þannig að
það dragi úr fátækt og félagslegri einangrun í álfunni.
Tilgangur Íslandsdeildar EAPN er:
• Að berjast gegn fátækt og félagslegri einangrun
• Að hvetja til árangursríka aðgerða til að uppræta fátækt
• Að sjónarmið fátækra heyrist á opinberum vettvangi
• Að taka þátt í og hafa áhrif á opinbera umræðu um fátækt
Innan Íslandsdeildar EAPN er starfandi hópur fólks
sem vill styrkja stöðu sína með því að tengjast öðrum
í Evrópu sem búa við fátækt. Ef þú hefur áhuga á að
starfa með hópnum sem á ensku heitir People
Experiencing Poverty getur þú haft samband við
Vilborgu Oddsdóttur félagsráðgjafa Hjálparstarfs
kirkjunnar með því að senda tölvupóst á vilborg@help.is
eða við Ástu Dís Guðjónsdóttur sem er í forsvari fyrir
hópinn á netfangið astadis@internet.is. Vefsíðu evrópska
tengslanetsins er að finna á www.eapn.eu/en.
Farsældarskýrslan var skrifuð í anda hugsjónar og
aðferðafræði EAPN. Hana er hægt að nálgast á
www.help.is
Hvað er EAPN?
„Við höfum val. Við getum valið að láta aðstæður
stjórna ferðinni, lagst upp í rúm og dregið sængina
upp fyrir haus eða við getum aðhafst eitt hvað í
málunum, til dæmis með því að taka þátt í
tengslaneti fátækra og láta rödd okkar heyrast.“
Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is gefurðu vi num o g æt tingjum
frumlega og skemmtilega gjöf. Um leið styrkir þú bá gst da da
fjölskyldu um til dæmis geit, hænu, brunn, m atjurtagarð,
menntun eða aðrar nauðsynjar. Gefðu gjöf sem gefur!
Gefðu gjöf sem gefur
Gjafir til verkefna heima
og erlendis.
www.gjofsemgefur.is
PI
PA
R\
T
PI
PA
R\
T
PI
PA
R\
T
PI
PA
R\
T
PI
PA
R\
T
PI
PA
R\
T
PI
PA
R\
T
PI
PA
R\
T
PI
PA
R\
T
PA
R\
T
PI
PA
R\
T
PI
PA
R\
T
PI
PA
R\
T
PA
R\
T
PI
PA
R\
T
PI
PA
R\
T
A
R\
T
PI
PA
R\
T
PA
R\
T
PI
PA
R\
T
PI
PA
R\
T
R\
T
PI
PA
R\
TT
R\
T
R\
T
R\
T
PI
PA
R\
T
PA
R\
T
PI
PA
R\
T
PI
PA
R\
T
PI
PA
R\\
IP
A
R\\R\R\\\
PI
PA
R\\
PI
PA
R\\
PI
PA
R
PI
PA
RRRR
PI
PA
R
APAIP
APAPAAAIP
APAAAAAAAAAAAAIP
AAAAAPA
PI
P
PI
A
BW
A
BW
A
BW
A
A
BW
A
A
A
AA
A
AA
BW
A
BW
A
BW
A
BW
AA
BW
AAA
W
A
W
A
BW
A
W
A
BW
A
BW
A
W
A
BW
A
BWWBWBWWWWWBWWWWWWBW
SÍ
A
SÍ
A
SÍ
A
SÍ
AÍSÍ
AÍSÍ
A
S
ÍASÍ
AÍASÍ
A
SÍ
AÍAASÍ
A
SÍ
A
SÍ
A
SÍ
A
A
Í
S
ÍA
AA
SÍ
A
SÍ
A
SÍ
A
SÍ
A
SÍ
A
SÍ
AA
SÍ
AÍSÍ
AAÍÍAÍÍASÍ
AÍÍÍÍÍÍÍSÍS
92
36
6
92
36
6
92
6
3623
66
92
36
6
36
6
92
36
6
92
36
6
92
36
6
92
36
6
92
36
6
92
36
6
92
36
6
92
36
6
92
36
666
23
66
92
36
6
92
36
6
92
36
6
23
6636
6
92
36
6
92
36
66
36
6
92
36
66
92
36
666
23
66666
23
66
23
6663623
6
92
36366
92
366
92
333
92
33
92
33333
92
3
9292922929292929229299999