Fréttablaðið - 12.04.2014, Blaðsíða 42
Einn af hverjum níu í heiminum hefur ekki aðgang að
hreinu neysluvatni, þriðji hver hefur ekki aðgang að
klósetti. Þetta jafngildir því að 35.OOO Íslendingar
hefðu ekki aðgang að hreinu vatni eða allir sem búa
í Hafnarfirði og Garðabæ og að 1O6.OOO Íslendingar
hefðu ekki aðgang að klósetti, sem er svipaður fjöldi
og býr í Reykjavík! Við getum varla séð Ísland þannig
fyrir okkur enda hafa 1OO% íbúa Íslands aðgang að
hreinu vatni og 1OO% íbúa hafa aðgang að hreinlætis-
aðstöðu. Þetta er nú samt staðreyndin ef við horfum
til stöðu jarðarbúa í heild. Tæplega 8OO milljónir hafa
ekki aðgang að hreinu vatni og 2,5 milljarðar jarðar-
búa hafa ekki aðgang að klósetti.
Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóða heilbrigðisstofn-
uninni (2O12) hafa 44% Eþíópíubúa aðgang að hreinu
vatni og 4O% aðgang að klósetti. Þetta eru staðreyndir
sem hafa alvarlegar afleiðingar. Heilsan er slæm,
sjúkdómar herja og dauðsföll eru allt of tíð. 73O.OOO
börn undir 5 ára aldri deyja árlega í heiminum úr
niðurgangspestum af völdum óhreins vatns. Er það
ásættanlegt? Svari hver fyrir sig.
Vatnsverkefni í Úganda, Malaví og Eþíópíu er svar
Hjálparstarfs kirkjunnar. Í Eþíópíu er aðgengi að
hreinu vatni bætt með vatnsþróm og brunnum. Í
samstarfi við héraðsyfirvöld, þorpsleiðtoga og íbúa er
grafin vatnsþró eða brunnur. Reistir eru sýnikamrar
og fólki kennt hvernig það getur gert sína eigin og það
er frætt um notkun þeirra, hreinlæti og smitleiðir
sjúkdóma. Þegar vatnið er komið fylgir svo margt annað
í kjölfarið. Hægt er að rækta grænmetisgarða sem
auka fjölbreytni fæðu og næringar. Stúlkur sem áður
voru bundnar við að sækja vatn í marga klukkutíma
ljúka því á skömmum tíma og komast í skóla. Heilsan
verður betri og nám barnanna gengur betur.
Hvert er þitt viðhorf til stöðunnar í heiminum í dag
varðandi aðgang að hreinu vatni? Ertu sátt/ur?
Hugsar þú kannski „ekki benda á mig“? Winston
Churchill sagði: „Viðhorf er smáræði sem skiptir þó
sköpum“ (Attitude is a little thing that makes a big
difference). Hvert er þitt viðhorf? Ef þú vilt taka þátt í
að breyta ástandinu til hins betra getur þú greitt
valgreiðslu í heimabankanum þínum upp á 1.8OO krónur,
gefið framlag á framlag.is eða lagt inn á söfnunar-
reikning: O334-26-886 kt. 45O67O-O499. Handgrafinn
brunnur með hreinu, tæru vatni kostar um 18O.OOO
krónur. Vertu með, því þitt framlag skiptir máli!
Í byrjun nóvember á hverju ári ganga tilvonandi
fermingarbörn í hús og safna fyrir vatnsverkefni
Hjálparstarfsins í Afríku. Í fermingarfræðslunni
fræðast þau um þær gjörbreyttu aðstæður til hins
betra sem skapast með vatnsþró, vatnstanki eða
brunni með hreinu vatni. Í nóvember 2O13 söfnuðu
börnin sem nú eru að fermast 8.283.633 krónum sem
varið er til vatnsverkefna í Eþíópíu, Malaví og Úganda.
Hjálparstarfið þakkar fermingarbörnum á Íslandi árið
2O14 sem og almenningi sem tók svo vel á móti þeim
kærlega fyrir ómetanlegan stuðning!
Ekki benda á mig Framlag fermingarbarna
er risastórt
2 – Margt smátt ...
Framkvæmdastjóri: Bjarni Gíslason
Framkvæmdastjóri: Bjarni Gíslason
Margt smátt, 1. tbl. 26. árg. 2O14
Ábyrgðarmaður: Kristín Ólafsdóttir
Umbrot: PIPAR/TBWA
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja