Fréttablaðið - 12.04.2014, Blaðsíða 36
12. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36
Bestu og verstu endurgerðirnar
Endurgerðir gamalla kvikmynda eru daglegt brauð í Hollywood eins og The Secret Life of Walter Mitty
og hasarmyndin Robocop bera vott um. Hverjar ætli séu best heppnuðu endurgerðirnar í Hollywood
og þær verst heppnuðu? Fréttablaðið kannaði málið á vefsíðunni IMDb.com, þar sem aðeins myndir
með háar einkunnir í líkingu við forvera sinn og myndir með lægri einkunnir komu til greina.
Freyr
Bjarnason
freyr@frettabladid.is
Bestu endurgerðirnar
Scarface (1983) 8,3
Scarface (1932) 7,8
Leikstjórinn Brian DePalma
breytti áfengi í kókaín og ítölskum
innflytjanda í kúbverskan þegar
hann endurgerði glæpamynd
Howards
Hawks,
Scarface.
Al Pacino
hikaði ekki
við að fara
yfir strikið
í túlkun
sinni á
Tony
Montana
en handrit
myndar-
innar var eftir Oliver Stone. Fyrri
myndin gerðist á bannárunum
í borginni Chicago en sú síðari
í hinni sólríku Miami, en Kúba
er einmitt í aðeins 145 kílómetra
fjarlægð frá Flórída.
The Departed (2006) 8,5
Infernal Affairs (2002) 8,2
Martin Scorsese hlaut sín fyrstu
Óskarsverðlaun fyrir myndina
The Departed eftir að hafa verið
sniðgenginn af akademíunni í
fjölda ára. Myndin hlaut fern
Óskarsverðlaun, þar á meðal sem
besta myndin. The Departed var
endurgerð Infernal Affairs frá
Hong Kong en sú mynd hefur
getið af sér tvær framhaldsmynd-
ir. Önnur
þeirra
gerist á
undan
atburð-
unum í
Infernal
Affairs en
hin á eftir
þeim og
komu þær
báðar út
árið 2003.
The Thing (1982) 8,2
The Thing From
Another World (1951) 7,3
The Thing var einnig byggð á
vísindaskáldsögumynd frá sjötta
áratugnum sem hét The Thing
From Another
World. Í nýju
útgáfunni gat
leikstjórinn
John Carpen-
ter notast við
tæknibrellur
sem voru ekki
fyrir hendi árið
1951, og skipti
það sköpum
fyrir heildar-
útkomuna. The Thing gerist á
suðurheimskautinu og fjallar um
vísindamenn sem lenda klónum
á geimveru sem tekur á sig mynd
fórnarlamba sinna. Myndin var
endurgerð í annað sinn árið 2011
með heldur slökum árangri.
Fistful of Dollars (1964) 8,1
Yojimbo (1960) 8,4
Yojimbo í leikstjórn Akira Kuro-
sawa fjallar um samúræja sem
kemur í bæ þar sem tvö mismun-
andi glæpagengi ráða ríkjum.
Hann ákveð-
ur að etja
þeim saman
í von um að
frelsa bæinn
úr viðjum
þeirra. Ser-
gio Leone
aðlagaði
myndina
vestra-
forminu og
fékk Clint
Eastwood í aðalhlutverkið með
prýðilegum árangri. Önnur mynd
byggð á Yojimbo var Last Man
Standing með Bruce Willis í aðal-
hlutverki og einnig vestrinn
Django frá árinu 1963.
The Magnificent
Seven (1960) 7,8
Seven Samurai (1954) 8,8
Þetta er nokkuð óvenjuleg
endur gerð því þarna var ann-
arri sígildri samúræja-mynd
Kurosawa snúið á haus og breytt
í vestra. Myndin snýst um
mexíkóska þorpsbúa sem eiga
undir högg að sækja. Leita þeir
aðstoðar sjö byssubranda til að
hjálpa sér við að verja heimili
sín. Í aðal-
hlutverkum
voru Steve
McQueen,
Yul
Brynner,
James
Coburn og
fleiri kunn-
ir leikarar.
The Fly (1986) 7,5
The Fly (1958) 7,1
David Cronenberg endurgerði
hina klassísku vísindaskáld-
sögumynd frá sjötta áratugn-
um með nýjustu tæknibrellum.
Fyrir vikið var ferlið ógeðslega,
þar sem persóna Jeffs Goldblum
breyttist smám saman í flugu,
trúverðugt. Sterk persónusköp-
un og góður leikur Goldblums
og Geenu Davis sem lék á móti
honum átti
einnig stóran
þátt í gæðum
myndarinn-
ar. Cronen-
berg endur-
lífgaði The
Fly á leik-
sviði árið
2008 þegar
hann bjó til
óperu úr
efniviðnum.
Swept Away (2002) 3,6
Swept Away (1974) 7,5
Upphaflega myndin frá Ítalíu fjallaði um snobbaða djammdrottningu
sem strandaði á eyðieyju með kommúnískum sjómanni. Hún fékk fínar
viðtökur en það sama er ekki hægt að segja um endurgerð Bretans
Guy Ritchie. Þáverandi eiginkona hans, söngkonan Madonna, sýndi
afleita frammistöðu í aðalhlutverkinu og spurningin er hvort myndin
hafi lagt grunninn að skilnaði þeirra nokkrum árum síðar.
Verstu endurgerðirnar
Psycho (1998) 4,6
Psycho (1960) 8,6
Margir ráku upp stóru augu þegar þeir fréttu af því að leikstjórinn
Gus Van Sant ætlaði að endurgera hina sígildu Hitchock-mynd Psycho
ramma fyrir ramma. Eina breytingin yrði sú að hún myndi gerast í
nútímanum, með öðrum leikurum og yrði í lit. Eins og gefur að skilja
þótti nýja útgáfan engu bæta við þá gömlu góðu, heldur þvert á móti.
Myndin kostaði 60 milljónir dala en halaði einungis inn 37 milljónir
dala í miðasölunni. Sannkallað klúður.
Godzilla (1998) 5,3
Godzilla (1954) 7,5
Gagnrýnendur sem og aðdáendur gömlu myndarinnar voru ekki hrifnir
af bandarísku útgáfunni og fundu henni flest til foráttu. Á endanum var
hætt við fyrirhugaðar framhaldsmyndir Godzilla í Hollywood. Engu að
síður gekk myndinni vel í miðasölunni og halaði inn hátt í 400 milljónir
dala. Í maí næstkomandi, sextán árum síðar, á loksins að gera aðra til-
raun með Godzilla í Hollywood og í þetta sinn verður skrímslið í þrívídd.