Fréttablaðið - 12.04.2014, Blaðsíða 98

Fréttablaðið - 12.04.2014, Blaðsíða 98
12. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 54 FLÆKJUSAGA Illugi Jökulsson velti því fyrir sér af hverju höfuðborg Íslands skyldi endilega rísa á sama stað og fyrsti landnáms- maðurinn byggði sinn bæ. En komst svo að því að spurningin var á mis- skilningi byggð. Ég man hvenær ég hugsaði það fyrst. Líklega var ég um tíu tólf ára gamall, það var sumar og ég hafði farið í bíltúr austur fyrir fjall með afa Kristjóni og ömmu Elísabetu á bláu Chevrolet Novunni, degi var tekið að halla en sumarsólin skein enn í vestri og við keyrðum rólega niður úr Svína- hrauni og þá blasti Reykjavík við á nesi sínu út í glitrandi Faxaflóann, byggðin furðu ÞEGAR RÁDÝR OG VILLISVÍN BJUGGU Í REYKJAVÍK víðáttumikil í minningunni þótt það séu fjörutíu ár síðan, og ég góndi út yfir borgina og hugsaði með mér hvað það væri sérkenni- legt að einmitt þarna úti á þessu nesi skyldi fyrsti landnámsmaðurinn, Ingólfur Arnar- son, hafa reist hið fyrsta býli á landinu en svo skyldi rísa þar höfuðstaður landsins hátt í þúsund árum seinna. Var það einskær til- viljun eða var eitthvað sérstakt við þetta nes sem beinlínis kallaði á að það hlyti að leika svo stórt hlutverk í sögu fólksins sem settist að í landinu? Ég spurði ekki afa og ömmu, því ég var ekki viss um að ég kynni að orða spurning- una rétt og kannski fannst mér líka að ég ætti að vita svarið og þyrfti ekki að spyrja. En sannleikurinn er sá að þetta var í raun- inni ágæt spurning og mér gekk lengi illa að fá svar við henni. Í þá daga hlaut ég að hallast að því að þetta væri bara tilviljun. Í Landnámu er það raunar fullyrt afdráttarlaust, því þar segir að Ingólfur hafi varpað öndvegissúlum sínum í sjóinn og strengt þess heit að reisa sér bæ þar sem þær kæmu að landi. Svo virðist sem ákvörðun Ingólfs um bæjarstæði hafi verið mönnum ráðgáta þegar um það leyti sem Landnáma var skrifuð eitthvað um 300 árum eftir að Ingólfur settist hér að, því ekki er nóg með að duttlungum sjávar- strauma sé kennt um hvar hann byggði bæinn sinn, heldur er þrællinn Karli látinn lýsa sérstöku frati á bæjarstæðið með því að segja að „til ills fórum vér um góð héruð, að vér skulum byggja útnes þetta“. Ómerkilegur staður, Reykjavík Um það leyti sem þetta var fyrst fest á skinn, kannski um 1150, þá hefur jörðin Reykjavík sem sé ekki þótt merkilegri en svo að skýra hefur þurft út fyrir fólki af hverju Ingólfur settist einmitt þarna að, þótt hann hefði úr öllu landinu að spila. Og það er líka mála sannast að Reykjavík þótti heldur ómerkileg- ur staður í margar aldir á eftir. Á þeim tíma efldust ýmis höfuðból til skiptis og miðpunkt- ar valdsins í landinu færðust eitthvað til en aldrei virtist neitt til Reykjavíkur að sækja. Í raun og veru var það varla fyrr en á átj- ándu öld sem aftur spurðist til „útness þessa“ þegar verslun hófst þar en þegar byggð var einu sinni farin að rísa kringum verslunina þá virtist á nokkuð skömm- um tíma liggja í augum uppi að þessi staður væri öðrum heppilegri undir þéttbýli. Skúli Magnússon kom hér upp Innréttingum sínum undir lok aldarinnar og frá og með nítj- ándu öld varð ekki aftur snúið, borgin hlaut að rísa. En hvers vegna? Jú, reyndar kemur í ljós þegar landið er skoðað frá ýmsum sjónarhornum að Reykjavík er einstaklega vel í sveit sett með tilliti til samgangna, sér- staklega við útlönd en síðan einnig innan- lands svo það var engin vitleysa í Skúla að setja upp bissniss sinn þar, og sömuleiðis var skynsamlegt hjá kaupmönnum að treysta alltaf meira og meira á höfnina í Reykjavík umfram aðrar hafnir landsins. En spurn- ingin er þá frekar, hvers vegna er Reykjavík svo tengd við hið fyrsta landnám bæði í Íslendingabók og Landnámu? Hvað var það við aðstæðurnar þá sem olli því að Ingólfur Arnarson valdi staðinn, þegar sagna- ritarar bændahöfðingjanna á tólftu öld skildu hvorki upp né niður í því? Tala nú ekki um þegar menn hafa áttað sig á því að þótt ein- hvern tíma kunni kannski að hafa verið til maður sem hét Ingólfur og bjó í Reykjavík, þá eru frásagnirnar um landnám hans bara þjóðsögur og tilbúningur frá rótum. Þá þarf að skýra af hverju þær þjóðsögur snerust um Reykjavík sem fyrsta landnámsstaðinn. Ingólfur afskrifaður Þegar ég rúllaði þarna niður úr Svínahrauni með afa og ömmu fyrir margt löngu, þá var ekki enn búið að afskrifa Ingólf að fullu sem fyrsta landnámsmanninn. Mér fannst því óskiljanlegt af hverju bóndabær, sem duttl- ungar annaðhvort haföldunnar eða heið- inna guða höfðu valið, skyldi endilega löngu seinna reynast einmitt rétti staðurinn undir höfuðstað landsins. Það er nú komið í ljós fyrir allnokkru. Fornleifauppgröftur í Reykjavík síðustu áratugi og einna helst núna síðustu 5-10 árin hefur fært okkur heim sanninn um nokk- uð aðra Reykjavík en þann panilklædda sögualdarbæ Ingólfs Arnarsonar sem ég sá fyrir mér á mínum æskudögum. Ekki aðeins hófst byggð í Reykjavík fyrr en útreikn- ingar Landnámu gefa til kynna, heldur reis byggðin líka nær örugglega kringum verstöð sem kann að hafa verið haldið úti í Reykja- vík á sumrin, jafnvel í marga áratugi áður en fólk fór að setjast að allt árið og stunda einhvern landbúnað að ráði. Ein kenning- in er sú að í Reykjavík hafi verið bækistöð rostungaveiðimanna en rostungar hafa þá búið í stórhópum við Faxaflóa. Og kannski var hér líka umskipunarhöfn rostungaveiði- manna sem dvöldu á veiðislóð á Grænlandi. Rostungstennur voru á níundu öld rándýr munaðarvarningur í Evrópu af því ný fram- rás múslima í Miðausturlöndum hafði lokað verslunarleiðum með fílabein. 150 manna þorp Um síðustu helgi sat ég nokkra fyrirlestra í húsnæði landnámssýningarinnar við Aðal- stræti, en á þeirri sýningu má sjá prýðilega mynd af því hvernig menn ímynda sér núna að fyrsta byggðin í Reykja- vík hafi litið út. Allt er reynd- ar á hverfanda hveli í þessum fræðum þar sem mjög sterkar vísbendingar eru nú komnar fram í dagsljósið fyrir því að byggðin ekki aðeins í Reykja- vík heldur á Íslandi öllu sé töluvert eldri en rannsóknir höfðu áður gefið tilefni til að trúa, en burtséð frá tímasetning- um, þá komu athyglisverðar upplýs- ingar fram í erindi Völu Garðarsdótt- ur fornleifafræðings. Nýjustu rannsóknir benda nefnilega til þess að í Reykjavík hafi á landnámsöld (hvort sem það var einhverj- um áratugum fyrr eða síðar) verið allt að 150 manna þorp. Svo mikið þéttbýli var ekki til á Íslandi öldum saman, nema kannski í kringum biskupsstólana þegar allra best lét. En í þessu þorpi í Reykjavík á landnáms- öld hafi alls ekki verið stundaður landbún- aður framan af, nema í mýflugumynd kannski, heldur hafi íbúarnir flutt með sér bæði rádýr og villisvín á fæti, sem þeir hafi síðan haft sér til matar. Þetta hafði ég að minnsta kosti aldrei heyrt áður, að hér hafi verið lifandi rádýr á þessum tíma. Beinaleifar í öskuhaugum hinnar fyrstu Reykjavíkur sýna hins vegar fram á það. Væntanlega hafa íbú- arnir sleppt rádýrunum lausum á kjarrið, sem þá var hvarvetna á nesinu góða, og svo slátrað þeim sér til matar þegar á þurfti að halda. Ekki er um það að ræða að menn hafi komið með kjöt af dýrunum með- ferðis þegar þeir komu hingað á vertíð, því þá hefðu menn aðeins komið með útvalin stykki, en beinin eru af heilum skepnum. Og svínin voru ekki alisvín, heldur fúllbefarin villisvín með vígtönnum og öllu saman. Hvar eru rádýrin? Niðurstöðurnar um sjávarþorpið Reykjavík eru kannski ekki alveg óumdeildar ennþá en þó virðist ljóst að landnámsbýli bónda- karlsins Ingólfs Arnarsonar er alveg úr sögunni. Og sú spurning, sem ég glímdi við í bláu Novunni þegar við renndum í bæinn að austan, hefur reynst á algjörum misskiln- ingi byggð. Það var ekkert leyndardómsfullt við að byggð skyldi byrja í Reykjavík né að þar skyldi á endanum vaxa upp höfuðborg. Reykjavík er einfaldlega rétti staðurinn til að halda uppi samskiptum við útlönd. Spurn- ingin sem ég hefði átt að spyrja var hins vegar þessi: Hvað gerðist á þeim rúmu 300 árum sem liðu frá því að rádýr gengu laus í Reykjavík og þangað til bændahöfðingjar tólftu aldar fóru að láta skrifa Landnámu og enginn mundi lengur af hverju menn höfðu á sínum tíma „byggt útnes þetta“? Og svo er önnur spurning: Af hverju gátu nú ekki nokkur rádýr sloppið burt og lifað af í blíðu veðurfari landnámsaldar svo hér hefði mátt verða til rammíslenskur stofn rádýra? Nýjustu rannsóknir benda nefnilega til þess að í Reykjavík hafi á land- námsöld (hvort sem það var einhverjum áratugum fyrr eða síðar) verið allt að 150 manna þorp. Svo mikið þéttbýli var ekki til á Íslandi öldum saman, nema kannski í kringum biskupsstól- ana þegar allra best lét. ÍSLENSKT RÁDÝR HINN HEFÐBUNDNI INGÓLFUR VILLIGÖLTUR Nærandi nammigott Enginn viðbættur sykur!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.