Fréttablaðið - 12.04.2014, Blaðsíða 102
12. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 58
KROSSGÁTA
LÁRÉTT
1. Stéttin við dyrnar, þar sem völduð skenkja (10)
8. Hvatvís brýtur lög en er þó saklaus (5)
11. Nudd og grjón fyrir gæludýr (7)
12. Fæðan fyrir hörkutólin er óttalegur sam-
tíningur (10)
13. Typpi er vinsælt núna en varla miklu lengur
(9)
14. Hvort er tvíhljóði í kjöti eða gólfefni? (12)
15. Bið litaða um lofgjörð (9)
18. Leita kúluspilsins og fisksins (9)
21. Klaga greind fyrir takmarkaða þekkingu (9)
24. Skrefin skipt (6)
26. Einkenni helstu manna (9)
27. Röddin svona fín en svo kemur bara tuð um
gjallandi málm (7)
29. Vil að þú ögrir þessum sauði og berir undir
æðra vald (6)
31. Brunaköll og fagnaðarlæti (9)
32. Lést á eftir sólselju, sussubía (7)
33. Sveiaði mér og reyndi að þagga niðrí þér (6)
35. Leita að matarspili í hungursneyð (11)
39. Heyri böndin tvö spila sem eitt (11)
42. Fæ far eftir genginn vin, þvílíkt bull (3)
44. Slagar þá heill her í hús þótt óvelkominn sé
(11)
46. Lágvaxin, prúð og hógvær (8)
47. Læt lag (3)
48. Fljót sunnanað (7)
49. Mjúk álpast á mákana (8)
50. Veik og dauð og móðan mikla streymir tær (7)
51. Berðu á Örn svo hold hans verði bleikara (7)
52. Spyr að ákveðinni lengd (8)
53. Ugg setti að einum er ég missti marks (7)
LÓÐRÉTT
1. Sá góði telur óheilbrigðar óttast það sem ekkert er (10)
2. Halda fast í fornan fjandskap (8)
3. Heyri gras flauta þegar þessi er reykt (8)
4. Land heybrókanna lýtur öðrum kóngi en sínum (9)
5. Sein man óðaönn þótt hún riðlist (7)
6. Ekki var varfærninni um að kenna, þvert á móti (7)
7. Saga af sögu (7)
8. Sonur duftsins er í rusli (8)
9. Sendi skaflakvígu út í skæðadrífu (8)
10. Ætli eir rifjist upp fyrir þér þegar þessir hlutir birtast?
16. Kerúbakusk er bölvað eitur (8)
17. Flæmdi froður á granir til að auðvelda skerðingu (8)
19. Innbyrði arsen fyrir nefndirnar og valdalausa pótintát-
ana (9)
20. Meðalbrúnir einnar sem meðtekið hefur læknisdóm-
inn (9)
22. Sníkjukrabbi á smáum fiski (7)
23. Varð ber að bílífi í allt of litlum fagnaði (7)
25. Getur mikill rumur bjargað flugvél í vandræðum? (6)
28. Ætli ég skutli ekki ofnotuðum krossgátukóngi til
Kurosawa (5)
30. Blóðsugur eru einsog guðir: Snarruglaðar (5)
34. Brýni smærri með límheila (9)
36. Mun Ingi tóra innan um óæðri og ringlaða menn? (8)
37. Ægir skreið upp í hjá Öldu (8)
38. Var í Þokkabót og þar að auki með ábreiðu (8)
39. Hátt á fjöllum hrakinn mjög og helju nærri/feginn varð
er fékk ég gist/fjallaskála, unaðsvist (7)
40. Taldi látin henta í eldhúsverk (7)
41. Ætli blekki skaffi nóg af rokk-krafti? (7)
42. Að líta borg englanna er ekki fyrir níska (7)
43. Húðsepi og hugur manns auka orkuforða líkamans (7)
45. Launár leiðir til spírunar (6)
VEGLEG VERÐLAUN
LAUSNARORÐ
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtast lönd sem lúta vafasömum
lögmálum. Sendið lausnarorðið í síðasta lagi 16. apríl næstkomandi á krossgata@
frettabladid.is merkt „12. apríl“.
Vikulega er dregið er úr inn-
sendum lausnarorðum og fær
vinningshafi eintak af bókinni
Og fjöllin endurómuðu eftir
Khaled Hosseini frá Forlaginu.
Vinningshafi síðustu viku var
Guðrún Þórðardóttir, Reykjavík.
Lausnarorð síðustu viku var
H V A L F J A R Ð A R G Ö N G
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
11
12
13
14
15 16 17
18 19 20
21 22 23 24 25
26
27 28 29 30
31
32 33 34
35 36 37 38
39 40 41 42 43
44 45
46 47
48
49 50
51
52 53
F L E K U M S H B A B A S I L
E Ö J E P P A S L Ó Ð A R N O
T Y G G J Ó R R E S Á N A U Ð
N U S E A L T E K I Ð R M
K I N N A L I T U R T I Ó H U
L A E T E F A B L A N D I N N
T Ö F R A G R A S T N Ý S D
G H I P A R Í S A R T Í S K U
G R J Ó T N Á M I G Ð T A R
E L S L Í K U N U M S S
E G N I N G A A R R E M M U N A
L N L U B B A R Y Ð I U
M U N N V Í Ð O E I G N A S T Ö Ð U
Ý Á M G R E Y G L S U
G O T I N U G K D A G L J Ó M A
R T S T R A U J A R E Ú K
Ú R H R A K O A A S N A K J Ö T
T Ú Ó F Ó T V Í S G D A
U M F J A L L A Í I I Ó S Æ Ð
R A I L E K A L I Ð U M I
HJÚKRUNARFRÆÐIDEILD
Spennandi framhaldsnám
í hjúkrunarfræði og ljósmóðurfræði
www.hjukrun.hi.is
Hefur þú lokið BS námi í hjúkrunarfræði og vilt bæta við þig þekkingu?
Fjöldi námsleiða og kjörsviða á framhaldsstigi verða í boði
við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands skólaárið 2014–15:
» MS – Klínísk námsleið:
– Hjúkrun langveikra, eldri borgara og heimahjúkrun
– Barnahjúkrun
– Heilsugæsluhjúkrun
– Svæfingahjúkrun
(Undirstaða: Diplómanám í svæfingahjúkrun)
– Skurðhjúkrun
(Undirstaða: Diplómanám í skurðhjúkrun)
– Önnur klínísk sérhæfing
(Hægt að móta með ýmsum hætti)
» MS – Hjúkrunarstjórnun
» MS – Rannsóknanámsleið
– áhersla á rannsóknir
» MS í ljósmóðurfræði
(Undirstaða: Kandídatspróf í ljósmóðurfræði)
» Ljósmóðurfræði til kandídatsprófs
» Þverfræðilegt diplómanám í kynfræði
Allar nánari upplýsingar um nám og inntökuskilyrði á www.hjukrun.hi.is
og hjá verkefnastjóra framhaldsnáms í síma 525 5204.
Umsóknarfrestur um framhaldsnám við Hjúkrunarfræðideild HÍ er til 15. apríl 2014
Verið velkomin í öflugan
hóp nemenda við deildina!
PlayStation-tölvan frá Sony hefur tröllriðið öllu og er án nokkurs vafa ein
vinsælasta leikjatölva heimsins. Fyrsta tölvan var kynnt til sögunnar í
desembermánuði árið 1994 og vakti mikla athygli. Talið er að hún hafi selst
í um 25.000 eintökum hér á landi. Hún var einráð á markaðnum, var einföld
vél og sló í gegn. Á Íslandi var engin almennileg samkeppni við vélina.
PlayStation 2 kom til sögunnar árið 2000 og varð ótrúlega vinsæl. Hún
hefur selst í um 47.000 eintökum hér á landi. Hún var fyrsta PlayStation-
vélin til þess að spila DVD-diska sem var mikil bylting á þeim tíma. Þá var
hún svört og nýtískuleg í útliti.
PlayStation 3 kom út árið 2006 og vakti mikla lukku því hún gat spilað
PS2-leiki og PS3-leiki. Hún hefur selst í um 35.000 eintökum hér á landi.
Hún var með hörðum disk, USB-tengjum og minniskortalesara þannig að
það var hægt að horfa og skoða ýmislegt í gegnum tölvuna. Þá er hún einnig
fyrsta PlayStation-vélin sem gat tengst netinu. Hún var byltingarkennd
vegna þess að hún gat spilað Blu-Ray-diska og var eitt fyrsta tækið sem
studdi Blu-Ray og var svolítið á undan sinni samtíð. Þá var hægt að horfa á
bíómyndir með tilkomu harða disksins og hún var einnig fyrsta PlayStation-
vélin með þráðlausum fjarstýringum.
PlayStation 4 kom á markað 2013 en á Íslandi í janúar síðastliðnum. Hún
hefur selst í um 3.000 eintökum hér á landi. Talsverður grafískur munur var
á fyrri tölvunni og PS4 með tilkomu örgjörva. Eitt það merkilegasta við hana
er að þú getur spilað leikina strax, þ.e.a.s. þú getur sótt leiki í PlayStation
store og hafið spilun strax. Þú getur deilt myndböndunum af leikjaspilun til
vina þinna, ef þú t.d. skorar flott mark í fótboltaleiknum FIFA.
Stýripinninn er kominn með snertiflöt, þannig að hægt er að nota hann í
leikjum líkt og í spjaldtölvum og snjallsímum. Þá er hægt að kaupa mynda-
vél sem þú tengir við tölvuna og þá geturðu spilað leiki með hreyfingum.
Bæði PS3 og PS4 styðja þrívíddartækni. PS4 er mjög netvædd, þú spilar leiki
í gegnum netið og með tilkomu vélarinnar er í raun verið að minnka vægi
tölvuleikja á diskum út af netvæðingunni.
Þá er hægt að tengja PS Vita, sem er lófaleikjatölva, við PS4 og hægt að
spila í gegnum hana og því hægt að spila út um allt hús og sjónvarpið því
ekki þarft.
FRÓÐLEIKURINN PLAYSTATION-LEIKJATÖLVAN
hefur á undanförnum árum farið sigurför um heiminn
PlayStation-ævintýrið mikla