Fréttablaðið - 12.04.2014, Side 114
12. apríl 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 70
LA
U
G
AR
D
AG
U
R
SU
N
N
U
D
AG
U
R
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2014
Sýningar
12.00 Félag frístundamálara
stendur fyrir ráðstefnu, Myndlist og
markaðsmál, í dag, í LHÍ Þverholti
11 milli klukkan 12.00 og 18.00.
Spennandi og áhugaverðir fyrir-
lestrar, kynning og sala á myndlist
og myndlistarvörum og kaffisala.
Allir velkomnir, aðgangseyrir enginn.
15.00 Í dag klukkan 15.00 verður
opnuð í Gryfju og Arinstofu Lista-
safns ASÍ sýning á verkum Guð-
mundar Thoroddsen, en sýninguna
nefnir hann Hlutir. Guðmundur er
fæddur 1980 og lauk BA-námi í
myndlist frá Listaháskóla Íslands
árið 2003. Hann útskrifaðist með
með MFA-gráðu í myndlist frá
School of Visual Arts í New York
árið 2011 og hefur haldið einka-
sýningar bæði hér á landi og í New
York ásamt samsýningum.
15.00 Í dag klukkan 15.00 verður
opnuð í Listasafni ASÍ sýning á
verkum Önnu Jóelsdóttur, en sýn-
inguna nefnir hún brot, fragment,
fracture, fold, violation. Stórar hálf-
gegnsæjar arkir málaðar á báðar
hliðar, sveigðar og beygðar og mót-
aðar í skúlptúra, málverk á striga
og harmonikkubækur umbreyta
Ásmundarsal í rými, þar sem hug-
myndir, reynsla og saga flæða,
belgjast og brotna á vírum, rekast
á veggi, eru stundum klippt niður
og sett saman aftur, ofin eða heft.
Verkin og myndmálið eiga rætur í
persónulegri reynslu, listasögu, sem
og túlkun á uppbrotinni og tættri
tilveru.
Dansleikir
23.00 Hljómsveitin Sálin hans
Jóns míns hefur haft hægt um sig
það sem af er ári, enda var 25 ára
afmælisárið annasamt í fyrra. En í
kvöld munu Sálverjar koma fram á
Spot í Kópvogi, leika þar við hvern
sinn fingur og flytja sín þekktustu
lög.
23.00 Í kvöld mun hljómsveitin
Vonum framar halda uppi stuðballi
langt fram eftir nóttu á nýjum og
endurbættum Hendrix við Gullin-
brú. Aðgangseyrir er 1.500 krónur,
leikar hefjast um 23.00.
Uppistand
20.00 Uppistandshópurinn
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2014
Félagsvist
14.00 Félagsvist í Breiðfirðingabúð í
dag klukkan 14.00. Allir velkomnir.
Kvikmyndir
15.00 Klukkan 15.00 verður Faðir
Sergius (Otets Sergei), 97 ára gömul
rússnesk kvikmynd, sýnd í MÍR,
Hverfisgötu 105. Myndin var að
hluta til unnin fyrir Októberbylt-
inguna í Rússlandi 1917 en full-
gerð og frumsýnd eftir byltingu.
Kvikmyndin er byggð á einni af
skáldsögum Lévs Tolstoj og leikstjóri
var Jakov Protazanov (1881-1945),
einn af brautryðjendum rússneskrar
kvikmyndagerðar á öndverðri
síðustu öld. Skýringatextar á ensku.
Aðgangur ókeypis.
Kynningar
17.00 Andrea Jónsdóttir leikur og
kynnir lög af hljómplötum á Ob-
La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8 í dag
klukkan 17.00.
Tónlist
20.00 Friðrik Ómar syngur sálma og
saknaðarsöngva í Norðfjarðarkirkju
klukkan 20.30. Húsið er opnað
klukkan 20.00 og er miðasala við
innganginn. Miðaverð 2.500 krónur.
Listamannaspjall
15.00 Gestaspjall í tengslum við
sýninguna Harro á Kjarvalsstöðum í
dag klukkan 15.00. Úlfar Þormóðs-
son rithöfundur ræðir við gesti um
ritskoðun og guðlast í tengslum
við sýninguna á Kjarvalsstöðum.
Aðgangseyrir á sýninguna er krónur
1.300. Frítt fyrir handhafa menn-
ingarkortsins.
Samkoma
19.00 Spilað verður bridge í Breið-
firðingabúð í kvöld klukkan 19.00.
Allir velkomnir.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is
Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.
Láttu Rekstrarland
létta þér lífið
Gerðu ítrustu kröfur um hreinlæti
Við bjóðum mikið úrval hreinsiefna og hreinlætisvara fyrir
stofnanir, hótel og veitingahús. Sérsniðnar lausnir sem mæta
þörfum hvers og eins hvort sem um er að ræða létt þrif eða
sérþrif. Fallegar servíettur, kerti og dúkar ásamt miklu úrvali
af einnota vörum. Allt þetta og miklu meira í Rekstrarlandi.
Hafðu samband við sérfræðinga okkar í Rekstrarlandi
í síma 515 1100 eða hjá útibúum Olís um land allt.
PI
PA
R\
PA
TB
W
A
TB
W
A
T
•••
SÍ
A
S
ÍA
••
14
0
61
1
40
61
99
Skeifunni 11 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100 | www.rekstrarland.is