Fréttablaðið - 12.04.2014, Blaðsíða 118
12. apríl 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 74
Moschino býr til
McDonald’s-æði
Tískurisinn Moschino sýndi fatnað og fylgihluti inn-
blásna af skyndibitakeðjunni McDonald’s í haust- og
vetrarlínu sinni sem selst eins og heitar lummur.
FRÉTTABLAÐ
IÐ
/G
ETTY
ELSKAR AÐ FLIPPA
Söngkonan Katy Perry í
McDonald’s-peysu.
SÍMINN Í FRÖNSKUHULSTRI
Tískugyðjan Anna Dello
Russo elskar Moschino og
McDonald’s. Takið eftir
símahulstrinu.
Á MÓTI SÓL
Skyndibitasól-
gleraugu.
MEÐ PUTTANN
Á TÍSKUPÚLS-
INUM Fyrirsætan
Jourdan Dunn
tekur þátt í æðinu.
BARNABOX Sér-
kennileg taska en
samt á einhvern
hátt skemmtileg.
KÓSÍ Á KVÖLDIN
McDonald’s-bað-
sloppurinn virkar
þægilegur.
LÆTUR EKKI SITT
EFTIR LIGGJA Söng-
konan Rita Ora tekur
þátt í trendinu.
FRÁ TOPPI TIL
TÁAR Þessi fyrir-
sæta gæti verið
starfsmaður
McDonald’s.
Fyrirmyndir eru mikilvægar
í lífinu. Þær hvetja okkur til
dáða; fá okkur til að standa upp
og gera eitthvað. Eitthvað sem
okkur finnst sniðugt, eitthvað
sem við vitum að við þurfum að
gera en höfum ekki gert. Eitt-
hvað sem er mikilvægt, hvort
sem það er stórt eða smátt (og
mundu, margt smátt gerir eitt
stórt). Þegar ég fer að pæla í
fyrirmyndum þá sé ég að þær
geta verið alls konar en eiga
það sameiginlegt að gera og
segja. Það heyrist í þeim og
þær standa með sjálfri/-um sér
og sínum málstað.
Nú skrifa ég reglulega um
kynlíf svo þú hugsar kannski,
hvers lags fyrirmyndir getur
hún verið að tala um? Fyrir-
myndir í mínum huga eru sjálf-
stæðar, einlægar, hreinskilnar
og ekki verra ef þær eru frum-
legar. Það má finna hinar ýmsu
fyrirmyndir í kynfræði og hafa
ansi margir þurfti að ryðja
brautina fyrir umræðu sem er
jafn opin og hún er í dag, en það
er samt ekki það sem ég er með
í huga. Hversdagshetjur sem
fyrirmyndir eru þær sem ég
vil heyra meira í. Þeirra raddir
og hegðun kynnir okkur fyrir
bráðnauðsynlegum fjölbreyti-
leika.
Ég er að hugsa um stelpu sem
er í stórum nærbuxum þegar
allar aðrar eru í g-streng og
konuna sem fjarlægir ekki lík-
amshár en forðast ekki sund-
laugar. Ég er að hugsa um
strákinn sem segist bara vilja
fara í sleik við einhvern sem
hann er skotinn í. Eða mann-
inn sem spyr bólfélagann um
leiðbeiningar og fer eftir þeim.
Venjulegt fólk sem gerir hluti
án þess að pæla sérstaklega
í því. Þessir hlutir geta verið
hversdagslegir og tengst hverju
sem er, hvort sem það er kyn-
líf, heilsa eða útlit. Þér kann að
þykja þetta kjánalegt en fólk
pælir í þessu. Ég fæ gjarnan
spurningar í fræðslunni um
hvort hitt og þetta megi, hvort
bólfélaganum blöskri ekki hár
á „röngum“ stöðum og hvort
stærra sé alltaf betra. Það
vantar venjulegt fólk til að tala
um venjulega hluti, kannski
á óvenjulegan hátt. Það vant-
ar fleiri raddir sem brjóta
upp staðnaðar hugmyndir um
hvernig lífið raunverulega sé,
eða það eigi að vera.
Fyrirmyndirnar mínar vita
ekki endilega af því að þær séu
fyrirmyndir og það sama gildir
um þínar fyrirmyndir. Ein-
hvers staðar er einhver sem
horfir til þín og lofar sjálfri/-
um sér að taka skrefið, þorir að
vera hún/hann sjálf/ur, þótt það
þýði að vera „öðruvísi“.
Hvað eru fyrirmyndir?
KYNLÍF TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
Þú færð
20% afslátt
Í LYFJU SMÁR ALIND AF
AÐEINS UM HELGINA!
OG
FÖGNUM
NÝRRI OG
BÆTTRI
LYFJU Í SM
ÁRALIND
MEÐ NÝJU
M
VÖRUMER
KJUM
20%
KYNN
INGAR
-
AFSLÁ
TTUR