Fréttablaðið - 12.04.2014, Blaðsíða 63
| ATVINNA |
Afgreiðsla í apóteki
Lyfjaver ehf óskar eftir starfsmanni til afgreiðslustarfa
í apóteki. Viðkomandi þarf að hafa góða þjónustu-
lund og hreint sakavottorð. Lágmarksaldur er 20 ár.
Reynsla af sambærilegum störfum æskileg. Umsóknir
ásamt ferilskrá skulu sendar á netfangið alli@lyfjaver.is
fyrir 22. apríl n.k.
Við Stóru-Vogaskóla vantar kennara í
náttúrufræði, smíði, textílmennt
og í almenna kennslu á yngsta stigi.
Einnig vantar sérkennara.
Menntunarkröfur: kennsluréttindi.
Nánari upplýsingar veita:
Svava Bogadóttir, skólastjóri og Hálfdan Þorsteinsson
aðstoðarskólastjóri í síma 440-6250. Einnig er hægt að
senda fyrirspurnir og umsóknir á: skoli@vogar.is
www.storuvogaskoli.is
Heilsuleikskólinn Suðurvellir
Við óskum eftir að ráða leikskólakennara til
starfa næsta haust.
Nánari upplýsingar veita:
María Hermannsdóttir leikskólastjóri og
Oddný Baldvinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í
síma 440-6240. Einnig er hægt að senda
fyrirspurnir á leikskoli@vogar.is
Laun samkvæmt kjarasamningi Kennarasambands
Íslands og Launanefndar Sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 27.apríl 2014.
Laun samkvæmt kjarasamningi Kennarasambands
Íslands og Launanefndar Sveitarfélaga.
Sveitarfélagið Vogar
www.stjornumalun.is
Málarar
Vegna fjölda verkefna sem framundan eru
óskar Stjörnumálun ehf ef tir málurum í vinnu,
bæði er í boði framtíðarstörf og sumarstörf.
ATH: Aðeins kemur til greina að ráða menn
með reynslu í málaraiðn.
Umsóknir skulu berast á ivar@stjornumalun.is,
einnig er hægt að hringja i 869-5302
Umsjón með störfunum hefur Lind
Einarsdóttir hjá Talent Ráðningum,
lind@talent.is
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir
að sækja um störfin á heimasíðu Talent
Ráðninga, www.talent.is
Krefjandi störf í boði við skemmtilega uppbyggingu
Arctic Fish er móðurfélag eldisfyrirtækisins Dýrfisk hf og fullvinnslufyrirtækisins Arctic Odda á Flateyri.
Dýrfiskur hf festi nýverið kaup á kynbótaeldisstöðvum að Fiskalóni og Bakka í Ölfusi en félagið er með seiða-
eldisstöð sína í Tálknafirði og stærsta sjókvíaeldið í Dýrafirði. Frekari stækkanir eru í burðarliðnum bæði í land- og
sjóeldi. Arctic Oddi á Flateyri hefur á undanförnum árum byggt upp sérhæfða vinnslu eldisafurða en er auk þess í
vinnslu hefðbundins sjávarafla. Fyrirtækin eru í dag með yfir 50 starfsmenn og leita nú eftir að fá fleiri starfsmenn
í vaxandi rekstur félaganna.
Rekstrarstjóri Dýrfisks hf.
Leitum að starfsmanni með reynslu og þekkingu á bókhaldi, rekstrar-
greiningum, áætlanagerð og verkefnastjórnun. Kostur ef viðkomandi
hefur grunn í fiskeldi og/eða fiskiðnaði.
Starfsstöð rekstrarstjóra er á skrifstofu Arctic Fish í Sjávarklasanum í
Reykjavík en viðkomandi þarf líka að geta unnið á öðrum starfsstöðum
félagsins.
Stöðvarstjóri kynbótaeldis
Leitum að starfsmanni með reynslu og þekkingu á fiskeldi og þá
sérstaklega kynbótum og seiðaeldi.
Starfsstöð stöðvarstjóra er að Fiskalóni og Bakka í Ölfusi en viðkomandi
starfar líka náið með starfsfólki annarra starfsstöðva Arctic Fish.
Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl nk.
Starfsmaður í kynbótaeldi
Leitum að starfsmanni með reynslu og/eða
þekkingu á fiskeldi.
Starfsstöð starfsmannsins er að Fiskalóni og
Bakka í Ölfusi.
Starfsmaður í seiðaeldi
Leitum að starfsmanni með reynslu og/eða
þekkingu á fiskeldi.
Starfsstöð starfsmannsins er í Botni í Tálknafirði.
Linnetsstígur 1 | 220 Hafnarfjörður | talent@talent.is | Sími 552-1600
Netaverkstæði Fjarðanets í Neskaupstað byggir fyrst og
fremst á þjónustu við uppsjávarflotann, framleiðslu, viðhaldi
og viðgerðum á loðnunótum, síldarnótum og flottrollum.
Ásamt framleiðslu á fiskitrollum og þjónustu við fiskeldi.
Starfið felur í sér vinnu á netaverkstæði ásamt ábyrgð á
rekstri verkstæðisins; skipulagning framleiðslu og þjónustu,
gerð teikninga, tilboða, pantana og samskipti við viðskiptavini
og birgja. Starfið felur einnig í sér yfirumsjón með netaverk-
stæði Fjarðanets á Fáskrúðsfirði.
Viðkomandi vinnur í nánu samstarfi við aðra verkstjóra
Fjarðanets og Hampiðjuna.
Við leitum að lærðum netagerðarmanni eða manni með
langa reynslu af veiðarfæragerð. Við leitum að, sjálfstæðum,
jákvæðum, og þjónustuliprum einstaklingi sem á gott með
mannleg samskipti. Æskilegt er að viðkomandi hafi góða
almenna tölvukunnáttu.
Nánari upplýsingar gefur Jón Einar Marteinsson í síma
4 700 802 eða 856 0802. Umsóknir ásamt starfsferilskrá
skulu sendar, fyrir 30. apríl til Fjarðanets hf, Strandgötu 1,
740 Neskaupstað eða í tölvupósti á joneinar@fjardanet.is
Fjarðanet hf rekur alhliða veiðarfæraþjónustu í Neskaupstað, Akureyri, Ísafirði og Fáskrúðsfirði. Í Neskaupstað og á Ísafirði
rekur Fjarðanet einnig Gúmmíbátaþjónustu. Fjarðanet er eina sérhæfða fyrirtækið í þjónustu við fiskeldi á Íslandi með
rekstri á þvottastöð og framleiðslu og sölu á fiskeldispokum og tengdum búnaði. Fjarðanet er hluti af Hampiðjan Group.
Yfirverkstjóri / Rekstrarstjóri
Fjarðanet óskar að ráða yfirverkstjóra/rekstrarstjóra
yfir netaverkstæði sitt á Neskaupstað
LAUGARDAGUR 12. apríl 2014 7