Fréttablaðið - 12.04.2014, Page 45

Fréttablaðið - 12.04.2014, Page 45
Margt smátt ... – 5 og það er augljóst að þessi reynsla hefur markað djúp spor í huga hennar. „Mér fannst ég skríða inn í kirkjuna eftir hjálp. Það var erfitt að segja að ég ætti ekki fyrir nauðþurftum og að ég vissi ekki hvað ég gæti gert í stöðunni. Mér fannst ég gjörsamlega varnarlaus. Konan sem tók á móti mér nálgaðist mig hins vegar á hárréttan hátt og það finnst mér eftir á að hyggja skipta öllu máli. Hún talaði nefnilega við mig sem jafningja. Fyrir henni var það bara verkefni að vinna með mér að því að bæta ástandið.“ Ellen segir það skipta sköpum að nálgast fólk sem býr við kröpp kjör þannig að það upplifi ekki að aðrir aumki sig yfir það. „Mig langaði ekki að vera í þessum aðstæðum en ég vissi ekki hvernig ég gat komist út úr þeim. Konan sem ég hitti í kirkjunni rétti mér hjálpar- hönd án ölmusuviðhorfs og ég komst af stað aftur. Hún benti mér á ýmis úrræði sem eru til í samfélaginu og ég fékk aðstoð til að halda jól. Ég gat meira að segja keypt jólagjafir handa börnunum. Ég fékk leigða íbúðina sem við búum í núna og ég fór aftur í íslensku í háskólanum í janúar 2O12.“ „Fátækt fólk er alls konar“ Eftir áramótin 2O11–2O12 fór allt að ganga betur hjá Ellen. Hún fékk verkefni sem grafískur hönnuður og stundaði íslenskunámið af kappi. „Svo hringdi þessi sama kona í kirkjunni í mig og sagði mér að það væri starfandi hópur fólks sem upplifði fátækt. Hún spurði mig hvort ég væri til í að taka þátt í starfinu og ég var mjög spennt fyrir því. Mér fannst ég geta nýtt reynslu mína frá Bandaríkjunum þar sem ég hafði jú verið að vinna með fólki í þessari stöðu. Ég hugsaði líka með mér að kannski væri bara kominn tími til fyrir mig að taka þátt í svona verkefni sem fátæka manneskjan þannig að ég sagðist vilja vera með og hjálpa ef ég gæti.“ Ellen hefur í framhaldinu tekið að sér að myndlýsa og brjóta um bók fyrir íslenska tengslanetið og er nú að vinna að heimasíðu þess í sjálfboðavinnu. Hópurinn sem Ellen talar um starfar á Íslandi en er í sambandi við hópa fátæks fólks í öðrum löndum Evrópu. Tengslanetið heitir European Anti Poverty Network eða EAPN upp á ensku og hefur það að markmiði að finna saman leiðir út úr fátækt og að stuðla á því að hver geti lært af öðrum. „Um vorið 2O12 fór ég svo á ráðstefnu EAPN tengsla- netsins sem var haldin í Brussel í Belgíu og þá fannst mér ég virkilega vera komin af stað aftur. Við ræddum um aðstæður okkar og hvaða samfélagslegu úrræði virka vel og hvaða síður vel. Það er merkilegt að við eigum svo margt sameiginlegt. Bilið á milli framfærslu- kostnaðar og greiðslugetu fólks sem nýtur bóta virðist til dæmis það sama í prósentum talið hér á Íslandi, á Írlandi og á Spáni. Á ráðstefnunni töluðum við um að við lítum kannski ekki eins út og tölum ekki sama tungumál en við upplifum sömu söguna aftur og aftur,“ segir Ellen sem er orðið heitt í hamsi. „Við töluðum líka um eigin fordóma í garð fátæks fólks. Það er nefnilega þannig að fátækt fólk er oft stimplað sem aumingjar eða sem fíkniefnaneytendur en auðvitað er það ekki alltaf raunveruleikinn. Vissulega getur fólk verið fátækt vegna áfengis- og fíkniefnaneyslu sem það ræður ekki við en slys og veikindi gera ekki boð á undan sér og fólk verður oft efnalítið af þeim sökum líka. Ég hitti fólk á ráðstefn- unni sem hafði verið í vinnu en misst hana og ekki fundið leiðina út úr fátæktinni aftur. Það hafði hugsað alveg eins og ég að þetta myndi aldrei koma fyrir sig. En það getur verið stutt á milli þess að vera sjálf- stæður í góðri stöðu og svo að vera það ekki,“ segir Ellen og útskýrir að svo virðist sem innflytjendur hvar sem er í heiminum og af ólíkum ástæðum lendi oft í fátæktargildru í nýju landi. Aftur á fulla ferð Ellen segir að það hafi breytt öllu til hins betra fyrir sig að taka skrefið og biðja um aðstoð. Hún segist smám saman hafa fundið aukinn styrk með því að vinna að einhverju sem ekki snérist bara um hana sjálfa heldur um þetta sammannlega eins og hún útskýrir. „Einmitt þegar maður er sem verst settur er svo gott að geta lagt sitt af mörkum eins og til dæmis í gegnum starf EAPN tengslanetsins. Mér fannst svo gott að standa upp og aðhafast eitthvað. Mér fannst ég allt í einu muna hver ég er og hvað ég get.“ Á síðasta ári sagði Ellen í hálfkæringi við vin sinn sem var að leita að sundþjálfara fyrir börn að hún vildi gjarnan hjálpa ef hún bara væri nú nógu góð í íslensku. Vinur hennar tók hana hins vegar á orðinu og tveimur vikum seinna var Ellen boðið að taka að sér 5O% starf sem sundþjálfari í Reykjanesbæ. „Þetta er svo gaman og krakkarnir eru svo góðir íslenskukennarar,“ segir Ellen en fyrir utan þjálfunina hefur hún líka hannað liðsbúninga krakkanna. „Á morgun er ég svo að byrja í öðru 5O% starfi sem hentar mjög vel með þjálfuninni og svo held ég að sjálfsögðu áfram að taka að mér verkefni sem grafískur hönnuður.“ Ellen er sem sé komin á fulla ferð aftur. „Já nú er ég aftur orðin sú kona sem ég þekki. Auðvitað er alltaf eitthvað að koma upp á en þá er bara að halda áfram. Ég lít satt best að segja ekki þannig á að ég hafi verið eða sé fátæk þótt ég sé efnalítil því að ég á það sem skiptir svo miklu máli: þrjú yndisleg börn, frábæran vinahóp og frændgarð. Ég er þar að auki vel gefin og heilsuhraust. Ég ætla að vera áfram á Íslandi og hugsa vel um börnin mín. Ég er bjartsýn, það er best,“ segir þessi jákvæða kona að lokum og hlær. Tengslanetið European Anti-Poverty Network (EAPN) er vettvangur Evrópubúa sem búa við kröpp kjör. Markmið þess er að hafa áhrif á stefnumótun Evrópu- sambandsins og þar með þjóðríkja í Evrópu þannig að það dragi úr fátækt og félagslegri einangrun í álfunni. Tilgangur Íslandsdeildar EAPN er: • Að berjast gegn fátækt og félagslegri einangrun • Að hvetja til árangursríka aðgerða til að uppræta fátækt • Að sjónarmið fátækra heyrist á opinberum vettvangi • Að taka þátt í og hafa áhrif á opinbera umræðu um fátækt Innan Íslandsdeildar EAPN er starfandi hópur fólks sem vill styrkja stöðu sína með því að tengjast öðrum í Evrópu sem búa við fátækt. Ef þú hefur áhuga á að starfa með hópnum sem á ensku heitir People Experiencing Poverty getur þú haft samband við Vilborgu Oddsdóttur félagsráðgjafa Hjálparstarfs kirkjunnar með því að senda tölvupóst á vilborg@help.is eða við Ástu Dís Guðjónsdóttur sem er í forsvari fyrir hópinn á netfangið astadis@internet.is. Vefsíðu evrópska tengslanetsins er að finna á www.eapn.eu/en. Farsældarskýrslan var skrifuð í anda hugsjónar og aðferðafræði EAPN. Hana er hægt að nálgast á www.help.is Hvað er EAPN? „Við höfum val. Við getum valið að láta aðstæður stjórna ferðinni, lagst upp í rúm og dregið sængina upp fyrir haus eða við getum aðhafst eitt hvað í málunum, til dæmis með því að taka þátt í tengslaneti fátækra og láta rödd okkar heyrast.“ Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is gefurðu vi num o g æt tingjum frumlega og skemmtilega gjöf. Um leið styrkir þú bá gst da da fjölskyldu um til dæmis geit, hænu, brunn, m atjurtagarð, menntun eða aðrar nauðsynjar. Gefðu gjöf sem gefur! Gefðu gjöf sem gefur Gjafir til verkefna heima og erlendis. www.gjofsemgefur.is PI PA R\ T PI PA R\ T PI PA R\ T PI PA R\ T PI PA R\ T PI PA R\ T PI PA R\ T PI PA R\ T PI PA R\ T PA R\ T PI PA R\ T PI PA R\ T PI PA R\ T PA R\ T PI PA R\ T PI PA R\ T A R\ T PI PA R\ T PA R\ T PI PA R\ T PI PA R\ T R\ T PI PA R\ TT R\ T R\ T R\ T PI PA R\ T PA R\ T PI PA R\ T PI PA R\ T PI PA R\\ IP A R\\R\R\\\ PI PA R\\ PI PA R\\ PI PA R PI PA RRRR PI PA R APAIP APAPAAAIP APAAAAAAAAAAAAIP AAAAAPA PI P PI A BW A BW A BW A A BW A A A AA A AA BW A BW A BW A BW AA BW AAA W A W A BW A W A BW A BW A W A BW A BWWBWBWWWWWBWWWWWWBW SÍ A SÍ A SÍ A SÍ AÍSÍ AÍSÍ A S ÍASÍ AÍASÍ A SÍ AÍAASÍ A SÍ A SÍ A SÍ A A Í S ÍA AA SÍ A SÍ A SÍ A SÍ A SÍ A SÍ AA SÍ AÍSÍ AAÍÍAÍÍASÍ AÍÍÍÍÍÍÍSÍS 92 36 6 92 36 6 92 6 3623 66 92 36 6 36 6 92 36 6 92 36 6 92 36 6 92 36 6 92 36 6 92 36 6 92 36 6 92 36 6 92 36 666 23 66 92 36 6 92 36 6 92 36 6 23 6636 6 92 36 6 92 36 66 36 6 92 36 66 92 36 666 23 66666 23 66 23 6663623 6 92 36366 92 366 92 333 92 33 92 33333 92 3 9292922929292929229299999
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.