Læknablaðið - 15.11.2001, Side 60
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AÐALFUNDUR LÍ
Að afloknum skýrsluflutningi og umræðum um
hann skiptu fundarmenn sér í hópa sem ræddu fram-
komnar tillögur til ályktana og lagabreytinga. Um
kvöldið var svo farið í heimsókn í Nesstofu þar sem
fundarmenn nutu veitinga í boði félagsins.
Á laugardagsmorgni hófust fundarhöld á mál-
þingi sem nánari grein er gerð fyrir á öðrum stað í
blaðinu. Umræður voru reyndar svo líflegar að mál-
þingið stóð hálfri annarri klukkustund lengur en
áætlað var. Eftir hádegi tóku menn til við að afgreiða
lagabreytingar en undir þeim dagskrárlið voru þrjú
mál á dagskrá. Eitt þeirra snerist um að staðfesta
aðild Læknafélags Vestmannaeyja að LI, annað um
breytingu á nafni Orlofsheimilasjóðs í Orlofssjóð LI
en sú þriðja um að fella brott ákvæði um Gerðardóm
LÍ en til hans hefur verið hægt að áfrýja niðurstöðum
Siðanefndar LI. Einnig voru samþykktar nýjar reglur
um Siðanefnd. Pessi breyting var kynnt á formanna-
ráðstefnu LI síðastliðið vor en hún felur í sér að regl-
ur og verklag Siðanefndar er fært til samræmis við
þróun sem orðið hefur á stjórnsýslulöggjöf í landinu.
Voru allar þessar lagabreytingar samþykktar án
mikillar umræðu.
Var þá komið að ályktunum og voru menn hinir
spökustu í umræðum um þær. Það sem sætir kannski
mestum tíðindum er eins og áður segir að endir var
bundinn með formlegum hætti á deilur LI og Is-
lenskrar erfðagreiningar ehf. Pað gerðist þannig að
fundurinn samþykkti með samhljóða atkvæðum að
staðfesta samkomulag það sem stjórn félagsins gerði
við Islenska erfðagreiningu og undirritað var með
fyrirvara 27. ágúst síðastliðinn og birt var í septem-
berhefti Læknablaðsins (Læknablaðið 2001; 87:731).
Tveir nýir stjórnarmenn
Loks var gengið til stjórnarkjörs en tveir stjórnar-
manna, Eyþór Björgvinsson gjaldkeri og Helgi H.
Sigurðsson meðstjórnandi, óskuðu ekki eftir endur-
kjöri. í þeirra stað voru kjörin þau Birna Jónsdóttir
gjaldkeri og Páll H. Möller meðstjórnandi. Stjórn
félagsins er því þannig skipuð starfsárið 2001-2002:
Sigurbjörn Sveinsson formaður
Jón G. Snædal varaformaður
Hulda Hjartardóttir ritari
Birna Jónsdóttir gjaldkeri
Páll Helgi Möller
Sigurftur Kr. Pétursson
Þórir Björn kolbcinsson fulltrúi FÍH
Sigurður Björnsson fulltrúi SÍL
Jón M. Kristjánsson fulltrúi FUL
Endurskoðandi félagsins er eftir sem áður Einar
H. Jónniundsson en til vara Þengill Oddsson.
-ÞH
Ályktanir aðalfundar
Læknafélags
íslands 2001
1.
Aðalfundur Læknafélags íslands, haldinn í Kópavogi
dagana 12. og 13. október 2001, staðfestir sameigin-
lega yfirlýsingu stjórnar Læknafélags Islands og Is-
lenskrar erfðagreiningar um gagnagrunn á heilbrigð-
issviði, sem formaður Læknafélags Islands undirrit-
aði f.h. stjórnar LÍ hinn 27. ágúst s.L, með fyrirvara
um staðfestingu aðalfundar félagsins.
3.
Aðalfundur Læknafélags Islands haldinn 12. og 13.
október 2001 í Kópavogi lýsir áhyggjum sínum yfir
þeim glundroða og ómarkvissu uppbyggingu sem ein-
kennt hefur sameiningarferli sjúkrahúsanna í Reykja-
vík.
Fundurinn átelur stjórnvöld fyrir að hafa staðið
slælega að sameiningu sjúkrahúsanna. Það er með
öllu óásættanlegt að við sameiningu sjúkrahúsanna
hafi ekki legið fyrir ákvörðun um framtíðarstaðsetn-
ingu og að í fjárlögum skuli ekki hafa verið gert ráð
fyrir útgjöldum til að standa straum af umtalsverðum
stofnkostnaði sem óhjákvæmilega hlýst af sameining-
unni. Þetta hefur haft í för með sér óvissu hjá starfs-
fólki og öryggisleysi hjá sjúklingum og stórlega grafið
undan virðingu starfsmanna fyrir vinnustaðnum.
Aðalfundurinn lýsir yfir óánægju sinni með hve
yfirstjórn Landspítala háskólasjúkrahúss hefur haft
forystumenn lækna á sjúkrahúsinu takmarkað með í
ráðum varðandi grundvallarstefnumótun og fram-
kvæmd sameiningarinnar. Aðalfundurinn hvetur for-
ystumenn lækna til að styrkja innra stjórnskipulag
sviða og skora og auka áhrif lækna í allri ákvarðana-
töku varðandi sameininguna. Ennfremur hvetur
aðalfundurinn lækna til að taka meiri þátt í uppbygg-
ingu hins sameinaða sjúkrahúss og axla þá ábyrgð
sem hver og einn hlýtur að bera í þessu þýðingar-
mikla máli.
4.
Á aðalfundi Læknafélags Islands sem haldinn var í
Kópavogi dagana 12. og 13. október2001 skýrði heil-
brigðisráðherra frá stjórnarfrumvarpi um breytingar
á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um al-
mannatryggingar.
Fundurinn krefst þess að fullt samráð verði haft
við samtök lækna áður en þetta veigamikla mál
verður afgreitt frá Alþingi.
920 Læknablaðið 2001/87
J