Læknablaðið - 15.11.2001, Side 61
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AÐALFUNDUR LÍ
5.
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn dagana 12.
og 13. október 2001 í Kópavogi heimilar áframhald-
andi fjárstuðning til Læknafélags Akureyrar við upp-
byggingu lækningaminjasafns í Gudmanns minde á
Akureyri allt að kr. 1.000.000 árið 2002 enda komi
sama upphæð á móti til verkefnisins með frjálsum
framlögum frá öðrum. Þó er það skilyrði sett að þessi
fjárveiting leiði ekki til hækkunar árgjalda félags-
manna. Greiðslan verði innt af hendi í árslok, þegar
uppgjör ársins liggur fyrir.
Aðalfundurinn skorar á Akureyrarbæ að gera
nauðsynlegar ráðstafanir til að hægt verði að endur-
byggja húsið ásamt viðbyggingu í upprunanlegri
mynd.
6.
Mikill skortur er á heimilislæknum á Stór-Reykja-
víkursvæðinu. Grípa þarf til róttækra úrræða til að
bæta starfskjör þeirra. Aðalfundur Læknafélags Is-
lands haldinn í Kópavogi 12.-13. október 2001 skorar
á heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið að gera
vandaða athugun á þörf fyrir sérfræðinga í heimilis-
lækningum á þessu svæði og jafnframt að gera þjón-
ustuna fjölbreyttari með því að veita einkareknum
læknastofum brautargengi.
7.
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn í Hlíða-
smára 8, Kópavogi dagana 12. og 13. október 2001
samþykkir að greiða málflutningskostnað allt að kr.
1.200.000 vegna málareksturs Félags íslenskra heim-
ilislækna gegn Tryggingastofnun ríkisins fyrir Hér-
aðsdómi Reykjavíkur um rétt sérfræðinga í heimilis-
lækningum um samningsgerð sambærilega öðrum
hliðstæðum samningum sem Tryggingastofnun ríkis-
ins hefur gert við sérfræðinga í lækningum á grund-
velli b-liðar, 1. mgr. 36. gr laga nr. 117/1993 um al-
mannatryggingar.
8.
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn dagana 12.
og 13. október 2001 að Hlíðasmára 8 í Kópavogi felur
sljórn Læknafélags íslands að skipa starfshóp sem
geri tillögu um það hvemig símenntun lækna skuli
skráð, fjármögnuð og framkvæmd. Hliðsjón skal
höfð af þeirri þróun sem á sér stað annars staðar. Til-
lögur starfshópsins verði kynntar félagsmönnum
ekki síðar en á næsta aðalfundi.
9.
Starfsemi sérfræðinga á einkareknum læknastofum
hefur vaxið og dafnað á undanförnum árum í takti
við breytingar á meðferðarúrræðum utan spítala.
Þessi starfsemi er nú einn af hornsteinum heilbrigðis-
þjónustunnar. Aðalfundur Læknafélags Islands hald-
inn í Reykjavík 12.-13. október 2001 hvetur heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytið til samvinnu við
lækna um frekari stefnumótun á þessu sviði heil-
brigðiskerfisins áður en kemur til fyrirhugaðra breyt-
inga á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um
almannatryggingar.
10.
Aðalfundur Læknafélags fslands haldinn í Kópavogi
dagana 12.-13. október 2001 samþykkir að árgjöld
unglækna í Læknafélagi íslands verði frá og með ára-
mótum 2001/2002 25% árgjalds eins og það er ákveð-
ið á aðalfundi hverju sinni á útskriftarári læknis, 50%
næsta árið á eftir og 50% þar næsta árið. Eftir það
skal árgjald greitt að fullu.
11.
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn í Kópavogi
12. og 13. október 2001, skorar á fjármálaráðherra að
koma til móts við kröfur sjúkraliða um kjör, þannig
að ljúka megi samningagerð og frekari truflun verði
ekki á starfsemi heilbrigðisþjónustunnar.
Samningur við
Fosshótel gildir út árið
Stjórn orlofsnefndar vill benda félagsmönnum LÍ á að
samkomulagið við Fosshótel, sem kynnt var í upplýs-
ingabæklingi orlofsnefndar síðastliðið vor, stendur út
árið. Tilboðið var afar hagstætt, eða kr. 6.100 fyrir nótt-
ina í tveggja manna herbergi.
Eftirtalin Fosshótel eru opin allt árið:
Fosshótel Borgarbraut 8, Stykkishólmi
Fosshótel Valaskjálf, Egilsstöðum
Fosshótel Búðareyri 6, Reyðarfirði
Fosshótel Lind Rauðarárstíg 18,
Reykjavík
sími 435 0005
sími 471 1000
sími 474 1600
sími 562 3335
Hægt er að bóka gistingu á hverju hóteli fyrir sig en
sameiginlegt símanúmer fyrir bókanir er 562 3355;
netfang: bokun@fosshotel.is
Orlofsnefnd LÍ
Læknablaðið 2001/87 921