Læknablaðið - 15.11.2001, Page 81
UMRÆÐA & FRÉTTIR / TÆPITUNGULAUST
„Þá skíptir
Árni
Björnsson
mestu máli að maður græði á því“
í SÍÐASTA HEFTI LÆKNABLAÐSINS ER GETIÐ UM
áhyggjur Vancouverhópsins, sem er óformleg samtök
ritstjóra, svokallaðra sérfræðilega endurskoðaðra
(peer reviewed) læknatímarita, af sívaxandi áhrifum
fjármagnseigenda á rannsóknarstarfsemi í læknavís-
indum, sem geti leitt til þess að rannsóknir beinist
fyrst og fremst að verkefnum sem geta gefið fjár-
magnseigendum ágóða. Jafnframt að stungið sé undir
stól rannsóknarniðurstöðum, sem geti minnkað
ágóða fjármagnseigandans. í þessu hefti blaðsins
mun samkvæmt síðasta tölublaði birtast þýðing á rit-
stjórnargrein sem birtist samtímis í mörgum virtum
vísindaritum, þar sem þetta efni er skoðað. Jafnframt
eru boðaðar nýjar og bættar reglur Vancouverhóps-
ins þegar á næsta ári, um birtingu vísindagreina.
Skora ég á lesendur blaðsins að lesa þessa grein
vandlega.
Fróðlegt er að skoða þróunina varðandi áhrif
auðmagnsins í mynd líftækni- og lyfjafyrirtækja á ís-
lenska vísindasamfélagið. Til þessa hafa íslenskar
vísindarannsóknir verið í svelti og skilningur á grunn-
rannsóknum verið takmarkaður hjá stórfyrirtækjum
og stjórnmálamönnum. Sé tekið mið af stefnuræðu
formanns stærsta stjórnmálaflokks landsins á ný-
loknum landsfundi er skilningurinn ekki bara tak-
markaður, heldur er takmarkaði skilningurinn að
mestu byggður á misskilningi og vanþekkingu,
samanber kveðju hans til Háskóla íslands í ræðunni.
Að sjálfsögðu hljóta íslenskir vísindamenn að leita
eftir fé til rannsókna þar sem það stendur til boða, en
íslenska vísindasamfélagið verður að fylgjast grannt
með því að vísindamennirnir láti ekki nota sig í þágu
hagsmuna sem ekki samrýmast eðlilegum, vísinda-
legum vinnubrögðum.
í ritstjórnargrein í tímaritinu Nature Genetics frá
20. október síðastliðnum er fjallað um tengsl líftækni-
og lyfjafyrirtækja, sem fyrst og fremst eru rekin með
fjárhagslegan ábata að leiðarljósi, við vísindamenn.
Þar er því haldið fram að þessi fyrirtæki hafi tak-
markaðan áhuga á rannsóknum sem ekki gefi eitt-
hvað í aðra hönd. I greininni, sem er skrifuð í tilefni
af því að tímaritið birtir niðurstöður tveggja rann-
sókna á meðfæddum erfðagöllum, segir. „Menn ættu
að gefa því gaum að meðfæddir fæðingargallar eru
oftast „fátæki ættinginn“ í sameindaerfðafræðinni,
vegna þess að þeir hrjá hlutfallslega fleiri í lágstéttum
þjóðfélagsins, þar á meðal ungar, fátækar fjölskyldur.
í þessum hópi er hærri tíðni fæðingargalla, sem rekja
má til lélegrar fæðu, reykinga og áfengisneyslu, þar
sem saman fara erfða- og umhverfisþættir. Það, að
einstaklingsbundnir fæðingargallar eru sjaldgæfir og
að tíðni þeirra tengist lélegum lífskjörum, gerir þessa
sjúkdóma óaðlaðandi fyrir stóru fjárfestingarfyrir-
tækin, sem í auknum mæli eru drifkrafturinn bakvið
kortlagningu gena og efnaframleiðslu því tengda.
Satt að segja er vafasamt að jafnvel upphaflega teng-
ingin við CPX (kynbundnar erfðir skarða) væri
möguleg í skugga erfðafræðirannsókna í hagnaðar-
skyni.“
Því hefur verið haldið mjög á lofti, hvílík lyftistöng
fyrirtækið Islensk erfðagreining, dótturfyrirtæki
deCODE Genetics og lyfjarisans Hoffman la Roche,
hafi verið íslensku vísindasamfélagi og víst hefur það
skapað mikla atvinnu. En sé litið á reglur Vancouver-
hópsins um birtingu vísindagreina er erfitt að koma
auga á hvernig vísindamennirnir sem þar starfa geta
unnið eftir reglum hópsins. Flestir þeirra eru launaðir
starfsmenn eða samstarfsmenn fyrirtækisins og/eða
hluthafar í fyrirtækinu og stærsti bakhjarl þess er
lyfjafyrirtæki sem, eins og slík fyrirtæki, er rekiö með
það að markmiði að færa eigendunum hámarksarð.
Ljóst ætti að vera, að í þessu starfsumhverfi er
ekki auðvell fyrir íslenska vísindamenn að starfa í
samræmi við ströngustu reglur og ekki verður um-
hverfið heilsusamlegra þegar gagnagrunnslögin
ganga í gildi og stjórnmálamönnum tekst að ná yfir-
tökum í stjórn æðstu menntastofnunar landsins, sem
hingað til hefur verið blessunarlega laus við pólitíska
mengun.
En ef íslenskir vísindamenn sætta sig við starfs-
umhverfi þar sem þeir þurfa að vinna með aðra
höndina bundna fyrir aftan bak, vegna þess að sjón-
armið sem ekki samrýmast ströngustu kröfum ráða
ferðinni, verða þeir líka að sætta sig við að vera
„jaðarbyggð" í alþjóðavísindasamfélaginu.
Heimildir
1. Vancouver-hópurinn lýsir áhyggjum af þrýstingi hagsmuna-
aðila á vísindamenn. Læknablaðið 2001; 87: 833 .
2. Sponsorship, Authorship, and Accountabililty [redaktionelt].
Ugeskr Læger 2001; 163: 4983-5 .
3. Murray JC. Time for t. Nature Genetics 2001; 29: 107-9.
Læknablaðið 2001/87 941