Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.2002, Side 54

Læknablaðið - 15.02.2002, Side 54
Sertral (sertralín) Öruggt og árangursríkt lyf viö þunglyndi, þráhyggju- og áráttusýki Hver tafla inniheldur: Sertralín hýdróklóríð, samsvarandi sertralín 50 mg. Töflurnar innihalda laktósu. Ábendingar: Þunglyndi. Þráhyggju- og áráttusýki (obsessive-compulsive disorder). Felmtursköst (ofsahræðsla (panic disorder)). með eða án víðáttufælni (agoraphobia). Skammtar og lyfjagjöf: Skammtastærðir handa fullorðnum: Við þunglyndi og þráhyggju- og áráttusýki: Upphafsskammtur er 50 mg á dag, tekið í einum skammti. Ef þörf krefur. má auka þennan skammt um 50 mg á dag, í þrepum á nokkrum vikum, í allt að 200 mg á dag. Sé þörf á langtímanotkun lyfsins er venjulegur viðhaldsskammtur 50 mg á dag. Við felmtursköstum (ofsahræðslu) með eða án víöáttufælni: Upphafsskammtur er 25 mg á dag. Skammtur er aukinn í 50 mg á dag eftir eina viku. Ef þörf krefur má auka þennan skammt um 50 mg á dag. í þrepum á nokkrum vikum. Hámarksskammtur sem mælt er með er 200 mg á dag. Skammtastæröir handa öldruðum eru þær sömu og að framan er getið. Árangur meðferðar getur komið fram innan 7 daga, en oftast þarf 2-4 vikna meðferð áður en full verkun næst. Sertralín er að mestu leyti umbrotið í lifur. Minni eða færri skammta skal geía af lyfinu ef sjúklingur er með minnkaða lifrarstarfsemi. lyfið er tekið einu sinni á dag, annað hvort að morgni eða að kvöldi. Töflurnar má taka ýmist með eða án matar. Skammtastæröir handa bömum: lyfið er ekki ætlað börnum. Frábendinoar: Samtímis notkun MAO-hemils. Sérstök varnaöarorö og varúöarrefllur vifl notkun: Ekki skal gefa sjúklingum sertralín, sem notað hafa MAO-hemlandi lyf, fyrr en 2 vikum eftir að slikri meðferð hefur verið hætt. Á sama hátt skal ekki gefa MAO-hemlandi lyf fyrr en 2 vikum eftir að sertralín meðferð hefur verið hætt Eins og hjá öðrum þunglyndislyfjum hefur verið skráð örvun á maníu og hypómaníu hjá nokkrum sjúklingum. Flogaveiki getur hugsanlega versnað við notkun lyfsins og því skal gæta varúðar við gjöf sertalíns hjá sjúklingum með flogaveiki. Meðferð með sertralíni skal hætt ef sjúklingar fá krampaköst. Sertralín er að mestu leyti umbrotið í lifur. Hjá sjúklingum með takmarkaða lifrarstarfsemi minnkar útskilnaðarhraði lyfsins, minni eða færri skammta skal þá gefa af lyfinu. Vegna aukinnar hættu á sjálfsvígstilraunum samfara þunglyndi skal hafa náið eftirtit með sjúklingum í upphafi meðferðar. Gæta ber varúðar við notkun lyfsins hjá sjúklingum, sem eru með sykursýki og meðhöndlaðir með insúlíni eða sykursýkilyfjum af súlfónýlúreaflokki. Milliverkanir viö önnur lyl og aflrar milliverkanir: Samtímis gjöf MAO-hemlandi lyfja getur valdið skyndilegum háþrýstingi og oförvunarástandi. Gæta þer varúðar við samtímis gjöf sertralíns og annarra lyfja sem verka á miðtaugkerfið. Neysla áfengis er ekki ráðlögð meðan á sertralín meðferð stendur. Samtímis notkun litíums getur aukið tíðni aukaverkana sertralíns, einkum ógleði, skjálfta og kvíða. Þar til frekari upplýsingar liggja fyrir ætti ekki að nota serótónín virk lyf eins og tryptófan, súmatriptan eða fenflúramín samtímis sertralíni. vegna hugsanlegrar hættu á milliverkunum. Þar sem sertralín er bundið plasmapróteinum, skal hafa í huga möguleikann á að sertralín milliverki við önnur próteinbundin lyf (td. warfann og digitoxín). Samtímis gjöf sertralins og címetidíns getur valdið aukningu í blóðstyrk sertralíns. Meflganga og brjóstaojöf: Oýratilraunir benda ekki til að lyfiö hafi áhrif á frjósemi eða hafi fósturskemmandi áhrif, en mjög háir skammtar hafa leitt bl aukinnar dánartíðni nýfæddra dýra. Engar tilraunir hafa verið gerðar á barnshafandi konum. Ber því að forðast notkun lyfsins á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Engar upplýsingar liggja fynr um hvort lyfið skilst út í brjóstamjólk, þess vegna ættu konur með barn á brjósti ekki að nota lyfið. Áhrif á hælni til aksturs og notkunar véla: Lyfið getur haft áhrif á viðbragðsflýti og ber að hafa það í huga við akstur og stjórnun véla. Sjúklingar sem aka bifreiðum eða stjórna öðrum vélknúnum tækjum skal ekki gefið sertralín samtímis bensódíazepínafbrigðum eða öðrum róandi lyfjum. Aukaverkanir: Algengasta aukaverkun lyfsins er ógleði, u.þ.b. 20%. Algengar (>1%): Almennar: Aukin svitamyndun. svimi, syfja, höfuðverkur, óróleiki, þyngdartap, lystarleysi (anorexia). Taugakerfi: Vóðvaskjálfti, truflun á sáðláti. Meltingarfæri: Ógleði, munnþurrkur. niðurgangur, melbngaróþægindi. Sjaldgæfar (0,1-1%); Geörænar: Kvíði Mjög sjaldgæfar (< 0,1): Efnaskipti: Lækkun natríums í sermi (hyponatremi). Taugakerfi: Rugl, kynlífsóþægindi hjá konum. náladofi, dofi, ofsjónir, árásarhneigð. æsingur. óróleiki. Olskömmtun: Einkenni eins og týst er varðandi aukaverkamr. Meflhöndlun: Einkennameðferð. Lyfhrif: Sertralin hindrar upptöku serótóníns (5-HT) á sértækan hátt í taugum. sem leiðir til aukningar á áhrifum 5-HT. Lyfið hefur aðeins mjög væg áhrif á endurupptöku í taugar af noradrenalíni og dópamíni. I lækningalegum skömmtum hemur sertralín endurupptöku serótóníns í blóðflögum. Sertralín hefur engin örvandi, róandi eða andkólínvirk áhrif og hefur ekki eitrunaráhrif á hjarta í dýratilraunum. í rannsóknum á sjálfboðaliðum hafði sertralín hvorki róandi áhrif né áhrif á hughreyfilegt atferli. í samræmi við hina sértæku hömlun á 5-HT upptöku eykur sertralín ekkl katekólamínvirkni. Sertralín hefur ekki sækni í múskarín (kólínvirka), serótónínvirka. dópamínvirka, adrenvirka. histamínvfrka. GABA eða benzódíazepín viðtaka. Ólikt þrihringlaga geðdeyfðariyfjum. hefur þyngdaraukning ekki sést eftir meðferð með lyfinu. Ekki hefur komið í Ijós, að sjúklingar verði likamlega aða andlega háðir lyfinu. Ljrfjahvörf: Sertralín hefur skammtaháð lyfjahvórf á skammtabilinu 50 - 200 mg á dag. Eftir 50 - 200 mg á dag í 14 daga sést hámarksblóðþéttni hjá mönnum 4,5 - B.4 klst. eftir gjöf. Stöðugri blóðþéttni er náð eftir daglega gjöf sertralíns í eina viku. Lyfið er nánast allt próteinbundið (um 98%). Rannsóknir á dýrum hafa sýnt að lyfið hefur mjög stórt dreifingarrúmmál. Sertralin umbrotnar mikið í fyrstu umferð í lifur. Sertralín og aðalumbrotsefni þess. N-desmetýlsertralín (sem virðist að mestu óvirkt) umbrotna að mestu leyti í líkamanum og umbrotsefnin skiljast út með saur og þvagi. Aðeins lítið magn af sertralínl skilst óbreytt út með þvagi. Helmingunartími í útskilnaðarfasa er u.þ.b. 26 klst.. Lyfjahvörf lyfsins eru eins hjá eldri og yngri sjúklingum. Inntaka sertralíns með mat hefur ekki marktæk áhrif á aðgengi lyfsins. Útljt: Hvítar, filmuhúðaðar töflur. ílangar, kúptar (stærð: 10 x 5 mm), með deilistriki. Pakkningar og verð (Lyfjaverðskrá 1. nóvember) Sertral 50 mg, 28 stk 3.377 kr Sertral 50 mg. 98 stk. 10.704 kr Omega Farma www.omeqa.is

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.