Læknablaðið - 15.02.2002, Blaðsíða 63
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BREYTINGAR Á HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU
Eðlilegt að
ferliverkin flytjist út á stofurnar
- Rætt við Guðmund Inga Eyjólfsson á Læknasetrinu í Mjódd
Guðmundur Ingi
Eyjólfsson lœknir.
í UNDANFÖRNUM TÖLUBLÖÐUM HEFUR VERIÐ FJALL-
að nokkuð um þær breytingar sem eru að verða á
heilbrigðisþjónustunni á höfuðborgarsvæðinu. Þær
eru á þá lund að komum til heilsugæslunnar og ferli-
verkum sjúkrahúsa fækkar en veruleg aukning er á
komum á Læknavaktina og ferliverkum sem unnin
eru á stofum sjálfstætt starfandi sérfræðinga úti í bæ.
í síðasta tölublaði var rætt við Svein Magnússon í
heilbrigðisráðuneytinu og Samúel J. Samúelsson
heilsugæslulækni um þessar breytingar en nú erröðin
komin að því að heyra hver viðhorf sérfræðinga eru.
Blaðið leitaði til Guðmundar Inga Eyjólfssonar
sérfræðings í blóðsjúkdómum og eins af stofnendum
og eigendum Læknasetursins í Mjódd. Fyrsta spurn-
ingin var sú hver hann teldi að væri ástæða þessara
breytinga.
Ferliverkum ýtt út af spítölunum
„Fyrir þessu eru ýmsar ástæður. Heilsugæslulæknar
fóru af afkastahvetjandi launakerfi og það er augljós-
lega dragbítur á þjónustu heilsugæslunnar. Þess vegna
eykst aðsóknin að Læknavaktinni svo gríðarlega sem
raun ber vitni. Komur á Læknavaktina eru um 50
þúsund á ári og vitjanir um 8.000. Fyrir 15 árum voru
vitjanir 18-19 þúsund á ári en þá var engin móttaka
opin. Jafnframt þessu kemur fjöldi manns á kvöld-
vakt Barnaþjónustunnar. Báðar þessar móttökur eru
opnar eftir venjulegan vinnutíma fólks og nú þegar
allir eru útivinnandi verður aðsókn á slíkar móttöku-
deildir mikil. Þetta stafar af þjóðfélagslegum breyt-
ingum sem orðið hafa.
Ahrifin af þessu hafa ekki verið eins mikil á sér-
fræðiþjónustuna, hún heldur áfram að vaxa. Reyndar
varð stökk upp á við eftir samningana 1998 þegar
gerð var kostnaðargreining á þeim verkum sem við
vinnum samkvæmt samningum við Tryggingastofnun
ríkisins. Þá var gjaldskráin mikið endurskoðuð,
einkum sú sem skurðlæknar studdust við. Það var
tekið tillit til alls kostnaðar við aðgerðir, ekki bara
launakostnaðar heldur voru öll tilföng sem þarf tekin
með. Þá komu inn nýir liðir sem gerðu það mögulegt
að stunda skurðlækningar í miklu meira mæli á einka-
stofum en verið hafði.
Ferliverk skurðlækna fluttust út af sjúkrahúsunum
en þar gengu bráðaaðgerðir fyrir. Ferliverkin mættu
afgangi. Þess vegna spruttu upp skurðstofur í Álfta-
mýri og Lágmúla og eldri stofur í Glæsibæ og Domus
Medica voru endurreistar. Við þetta bætist að það er
illa séð af öðrum starfsmönnum sjúkrahúsa að lækn-
um sé greitt fyrir hvert viðvik inni á sjúkrahúsunum.
jafnvel þótt samningar um það séu skýrir og opnir og
geri ráð fyrir að læknar greiði til baka fyrir þann tíma
sem fer í þessar aðgerðir. Þess vegna er verið að
þrýsta aðgerðum út af sjúkrahúsunum. Þar er stjórn
spítalans ekki að verki heldur annað starfsfólk hans.“
Tækniþróunin gerbreytir aöstööunni
„Svo má ekki gleyma því að nú er hægt að gera miklu
meira á stofunum en áður var. Tækniþróunin hefur
auðveldað stofunum að tækjavæðast. Ég get nefnt
nokkra sjúkdómaflokka sem áður kröfðust langra
innlagna, svo sem skjaldkirtilssjúkdóma, sykursýki
og gigt. Nú sjást þeir sem þjást af þessum sjúkdómum
varla inni á sjúkrahúsunum, læknar á stofum geta
alveg sinnt þeim. Á móti kemur svo aukning á eldra
fólki, fárveiku fólki, fólki með krabbamein og aðra
alvarlega sjúkdóma sem sjúkrahúsin sinna.
Margir þessara sjúklinga, svo sem þeir sem þurfa á
lyfjameðferð að halda, eru meðhöndlaðir á dagdeild-
um án innlagnar. Það má kalla slíkt ferliverk og raun-
ar gætu sérfræðingar sinnt hluta þeirra á sínum stofum.
Við gætum til dæmis tekið krabbajneinssjúklinga í
lyfjameðferð á Læknasetrinu og erum reyndar að
skoða þann möguleika. Skilin á milli spítalanna og
einkastofa sérfræðinga eru ekki Ijós. Um þau þyrfti að
semja og ákveða hvaða verk eiga að vera inni á sjúkra-
húsunum og hver eru betur komin á stofum úti í bæ.
Sjúkrahúsin hafa aðallega misst út smærri skurð-
aðgerðir á borð við þær sem bæklunarlæknarnir eru
að sinna í Álftamýri. Ég sé ekki fyrir mér að þær fari
til baka úr því menn eru búnir að koma sér upp
aðstöðu til þess að gera þessar aðgerðir utan sjúkra-
húsanna. Það er mikil þörf fyrir þessar aðgerðir og
fólki leiðist að bíða eftir þeim. Það er biðlisti eftir
stærri aðgerðum, svo sem liðskiptaaðgerðum, en við
höfum lagt mikið upp úr því í stofurekstrinum að fólk
þurfi ekki að bíða.“
Eðlileg þróun
Eins og heyra má á Guðmundi Inga er þessi þróun í
fullum gangi. Hann sýnir blaðamanni húsnæði Lækna-
setursins þar sem nú eru um 70 læknar að störfum og
stefnt að því að fjölga þeim upp í 100. En er þetta
eðlileg þróun?
„Já, hún er það. Þetta snýr að ýmsu öðru, svo sem
sjálfstæði lækna. Við höfum starfsleyfi og viljum
starfa og reka eigin fyrirtæki. Þetta er vissulega auka-
vinna en hún er gefandi eins og margt sem maður
gerir sjálfur.
Ég gæti séð fyrir mér að það væri viturlegt fyrir
Læknablaðið 2002/88 151