Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2002, Blaðsíða 43

Læknablaðið - 15.02.2002, Blaðsíða 43
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ERLENT SAMSTARF / SKRIFRÆÐ gæzlu í hveiju umdæmi fór dæmið að verða flóknara. Þá þarf og að gera læknum sem eru lengi frá störfum, til dæmis vegna veikinda eða barnsburðar, kleift að endurmennta sig svo þeir geti hafið störf á ný. Mér er ekki ljóst hve margir læknar hér á landi eru í hlutastarfi eða óska eftir því að vera í hluta- starfi. Heldur ekki hvort þeim sem það vilja sé gert það nægilega auðvelt. Eins og flestir vita urðu ungir læknar af minni kynslóð oft að fórna fjölskyldunni til að sýna sig og sanna í starfi. Vinnan gekk fyrir, við stóðum vaktir og mættum til vinnu hvort sem við vorum karlar eða konur og hvort sem frísk eða veik börn voru heima. Makar og ættingjar urðu að hlaupa undir bagga eða þá aðkeypt hjálp. Ungt fólk sem er að hefja sitt lífsstarf nú virðist líka vera áhugasamt um fagið en leggur gjarnan meiri áherzlu á að sinna fjölskyldu sinni. Sá er raunveruleikinn í þróuðum samfélögum nútímans og við honum þarf að bregðast af skynsemi. Ekki má bregða fæti fyrir unga lækna sem vilja stofna fjölskyldur og eiga sér líf eins og annað fólk. Skrífræði og fag í heilbrigðisþjónustu Margir hafa áhyggjur af vaxandi skrifræði í heilbrigðisþjónustu þegar það er á kostnað fag- mennskunnar. Nokkur dæmi um hvernig getur farið ef svo fer fram, verða nefnd hér. I. Snemma á árinu 1985 uppgötvuðu menn aðferð til þess að skima eftir HIV-smiti í blóði blóðgjafa. Landlæknisembættið rak mjög á eftir að þessari aðferð væri beitt á íslandi (1985). Skimun hafði í för með sér aukinn kostnað og þess vegna þurfti að beita mjög ákveðnum faglegum rökum til fjár- mögnunar á verkefninu. Haustið 1985 var hafin skimun á blóðgjöfum. Ber að nefna Harald Briem og Olaf heitinn Jensson sem stóðu vel að þessu. Athyglisvert er að í nokkrum V-Evrópulöndum brugðust menn seint við og tóku ekki upp heildar- skimun fyrr en seinna. Margir sjúklingar fengu því srnitað blóð við aðgerðir eða vegna sjúkdóms (of- blæði) og veiktust af HlV-veiru. Hörð réttarhöld fylgdu í kjölfarið og margir yfirmenn í heilbrigðis- geiranum misstu stöðu sína eða voru dæmdir. Nær undantekningarlaust kom í ljós að ekki hafði verið farið að ráðum faglærðra lækna, enda læknar með fagkunnáttu sjaldséðir í áhrifastöðum ráðuneyta. í bókinni Bad blood eftir J. Reitman frá 1996 er skýrt og skilmerkilega lýst hörmulegum afleiðing- um HlV-faraldursins í Bandaríkjunum. Illa var haldið á mátinu varðandi val á blóðgjöfum og skimun á HlV-veiru meðal blóðgjafa. Afleiðingin var sú að vitað er um allt að 15.000 manns er sýkt- ust af smituðu blóði, þar á meðal 60% af ofblæði- sjúklingum. Mörg réttarhöld voru haldin og þar kom í ljós að Rauði krossinn sem rekur blóðbanka þar í landi hafið ekki varað blóðbanka við í tíma og þar með ekki sinnt eftirlitsskyldu sinni. Enn- fremur kom fram að pólitísk stjórn RK hafði ekki sinnt aðvörun margra faglækna en meðal annars beitt skimunaraðferð sem ekki var nógu trygg. Af- leiðingin varð sú að mörgum sjúklingum voru dæmdar bætur, oft þrjár milljónir dollara eða hærri upphæðir. Mikið er rætt um mistök Elizabeth Dole, konu forsetaframbjóðandans Bob Dole, en hún var lengi forseti RK í Bandaríkjunum. Er hún tekin sem gott dæmi um leikmann er kemst í áhrifastöðu í heilbrigðisgeiranum, en nýtir sér ekki fagkunnáttu lækna. Frú Dole hvarf úr forsæti RK. Ólafur Ólafsson Miklar framfarir hafa náðst í meðferð kransæðasjúk- linga. Bandaríkjamenn eru þar í fararbroddi en fs- lendingar, Svíar, Hollendingar og fleiri vestrænar þjóðir fylgja fast á eftir. Danmörk sker sig úr þessum hópi og er neðarlega í flokki í Evrópu þó að þeir hafi fyrstir Norðurlandaþjóða stofnað forvarnarráð. Ráð- iö gerir tillögur um aðgerðir til heilbrigðisráðherra en er að mestu skipað pólitíkusum og skrifborðslækn- um. Danir hafa að öðru leyti verið meðal þekktustu þjóða varðandi gæði heilbrigðisþjónustunnar. En tímar og siðir breytast. Spurningar hafa vaknað hvers vegna svo er komið fyrir Dönum. Helsta skýringin er að dregið hafi mjög úr áhrifamætti lækna á nýþróun Iæknisfræðinnar, þar á meðal forvarnir og aðgerðir. Lokaorð Það hefur alvarlegar atleiðingar í för með sér ef stjórnmálamenn eða stjórnskipuð ráð í heilbrigðis- geiranum nýta sér ekki ráð fagaðila. Þá er hætta á að menn kunni ekki að meta rétt eða nýta framfarir er verða í læknisfræði. Höfundur er fyrrverandi landlæknir. Læknablaðið 2002/88 131
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.