Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2002, Page 63

Læknablaðið - 15.02.2002, Page 63
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BREYTINGAR Á HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU Eðlilegt að ferliverkin flytjist út á stofurnar - Rætt við Guðmund Inga Eyjólfsson á Læknasetrinu í Mjódd Guðmundur Ingi Eyjólfsson lœknir. í UNDANFÖRNUM TÖLUBLÖÐUM HEFUR VERIÐ FJALL- að nokkuð um þær breytingar sem eru að verða á heilbrigðisþjónustunni á höfuðborgarsvæðinu. Þær eru á þá lund að komum til heilsugæslunnar og ferli- verkum sjúkrahúsa fækkar en veruleg aukning er á komum á Læknavaktina og ferliverkum sem unnin eru á stofum sjálfstætt starfandi sérfræðinga úti í bæ. í síðasta tölublaði var rætt við Svein Magnússon í heilbrigðisráðuneytinu og Samúel J. Samúelsson heilsugæslulækni um þessar breytingar en nú erröðin komin að því að heyra hver viðhorf sérfræðinga eru. Blaðið leitaði til Guðmundar Inga Eyjólfssonar sérfræðings í blóðsjúkdómum og eins af stofnendum og eigendum Læknasetursins í Mjódd. Fyrsta spurn- ingin var sú hver hann teldi að væri ástæða þessara breytinga. Ferliverkum ýtt út af spítölunum „Fyrir þessu eru ýmsar ástæður. Heilsugæslulæknar fóru af afkastahvetjandi launakerfi og það er augljós- lega dragbítur á þjónustu heilsugæslunnar. Þess vegna eykst aðsóknin að Læknavaktinni svo gríðarlega sem raun ber vitni. Komur á Læknavaktina eru um 50 þúsund á ári og vitjanir um 8.000. Fyrir 15 árum voru vitjanir 18-19 þúsund á ári en þá var engin móttaka opin. Jafnframt þessu kemur fjöldi manns á kvöld- vakt Barnaþjónustunnar. Báðar þessar móttökur eru opnar eftir venjulegan vinnutíma fólks og nú þegar allir eru útivinnandi verður aðsókn á slíkar móttöku- deildir mikil. Þetta stafar af þjóðfélagslegum breyt- ingum sem orðið hafa. Ahrifin af þessu hafa ekki verið eins mikil á sér- fræðiþjónustuna, hún heldur áfram að vaxa. Reyndar varð stökk upp á við eftir samningana 1998 þegar gerð var kostnaðargreining á þeim verkum sem við vinnum samkvæmt samningum við Tryggingastofnun ríkisins. Þá var gjaldskráin mikið endurskoðuð, einkum sú sem skurðlæknar studdust við. Það var tekið tillit til alls kostnaðar við aðgerðir, ekki bara launakostnaðar heldur voru öll tilföng sem þarf tekin með. Þá komu inn nýir liðir sem gerðu það mögulegt að stunda skurðlækningar í miklu meira mæli á einka- stofum en verið hafði. Ferliverk skurðlækna fluttust út af sjúkrahúsunum en þar gengu bráðaaðgerðir fyrir. Ferliverkin mættu afgangi. Þess vegna spruttu upp skurðstofur í Álfta- mýri og Lágmúla og eldri stofur í Glæsibæ og Domus Medica voru endurreistar. Við þetta bætist að það er illa séð af öðrum starfsmönnum sjúkrahúsa að lækn- um sé greitt fyrir hvert viðvik inni á sjúkrahúsunum. jafnvel þótt samningar um það séu skýrir og opnir og geri ráð fyrir að læknar greiði til baka fyrir þann tíma sem fer í þessar aðgerðir. Þess vegna er verið að þrýsta aðgerðum út af sjúkrahúsunum. Þar er stjórn spítalans ekki að verki heldur annað starfsfólk hans.“ Tækniþróunin gerbreytir aöstööunni „Svo má ekki gleyma því að nú er hægt að gera miklu meira á stofunum en áður var. Tækniþróunin hefur auðveldað stofunum að tækjavæðast. Ég get nefnt nokkra sjúkdómaflokka sem áður kröfðust langra innlagna, svo sem skjaldkirtilssjúkdóma, sykursýki og gigt. Nú sjást þeir sem þjást af þessum sjúkdómum varla inni á sjúkrahúsunum, læknar á stofum geta alveg sinnt þeim. Á móti kemur svo aukning á eldra fólki, fárveiku fólki, fólki með krabbamein og aðra alvarlega sjúkdóma sem sjúkrahúsin sinna. Margir þessara sjúklinga, svo sem þeir sem þurfa á lyfjameðferð að halda, eru meðhöndlaðir á dagdeild- um án innlagnar. Það má kalla slíkt ferliverk og raun- ar gætu sérfræðingar sinnt hluta þeirra á sínum stofum. Við gætum til dæmis tekið krabbajneinssjúklinga í lyfjameðferð á Læknasetrinu og erum reyndar að skoða þann möguleika. Skilin á milli spítalanna og einkastofa sérfræðinga eru ekki Ijós. Um þau þyrfti að semja og ákveða hvaða verk eiga að vera inni á sjúkra- húsunum og hver eru betur komin á stofum úti í bæ. Sjúkrahúsin hafa aðallega misst út smærri skurð- aðgerðir á borð við þær sem bæklunarlæknarnir eru að sinna í Álftamýri. Ég sé ekki fyrir mér að þær fari til baka úr því menn eru búnir að koma sér upp aðstöðu til þess að gera þessar aðgerðir utan sjúkra- húsanna. Það er mikil þörf fyrir þessar aðgerðir og fólki leiðist að bíða eftir þeim. Það er biðlisti eftir stærri aðgerðum, svo sem liðskiptaaðgerðum, en við höfum lagt mikið upp úr því í stofurekstrinum að fólk þurfi ekki að bíða.“ Eðlileg þróun Eins og heyra má á Guðmundi Inga er þessi þróun í fullum gangi. Hann sýnir blaðamanni húsnæði Lækna- setursins þar sem nú eru um 70 læknar að störfum og stefnt að því að fjölga þeim upp í 100. En er þetta eðlileg þróun? „Já, hún er það. Þetta snýr að ýmsu öðru, svo sem sjálfstæði lækna. Við höfum starfsleyfi og viljum starfa og reka eigin fyrirtæki. Þetta er vissulega auka- vinna en hún er gefandi eins og margt sem maður gerir sjálfur. Ég gæti séð fyrir mér að það væri viturlegt fyrir Læknablaðið 2002/88 151

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.