Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.2002, Side 7

Læknablaðið - 15.10.2002, Side 7
RITS f TJORNARGREINA R Ráðstefnuhald á íslandi Sagt er að læknar hafi ekki efni á að fara ekki á lækna- ráðstefnur. Þessi fullyrð- ing hefur verið rökstudd á þann hátt að með því að sækja ráðstefnur fái lækn- ar tækifæri til að fylgjast með nýjungum í einstök- um sérgreinum og fram- förum í tækjabúnaði til lækninga og rannsókna. Auk þess hafa þeir mögu- leika á að mynda tengsl við erlenda starfsbræður í sérgreininni og jafnvel hefja samstarf við þá. Ráð- stefnur gegna einnig því mikilvæga hlutverki að brjóta upp dagleg störf lækna, fá þá til að sjá lækn- isfræðileg vandamál frá nýjum hliðum og kynda undir vísindalegri hugsun. Síðast en ekki síst örva ráðstefnur lækna til að stunda vísindarannsóknir og kynna niðurstöður sínar. Langflestir íslenskir lækn- ar sækja að minnsta kosti eina til tvær ráðstefnur á ári og tryggja með því að nýjungar í meðferð og greiningu sjúkdóma berist hratt til landsins. Skipulagning alþjóðlegra þinga fyrir lækna er arðsamur stóriðnaður víða um heim og iðulega er hörð samkeppni milli sérgreinafélaga einstakra landa um að fá þau til sín. Þátttakendafjöldi á um 80% læknaráðstefna er undir 1000 manns, en á þeim stærstu getur hann hæglega verið á bilinu 1-30 þúsund. Þær borgir sem eiga að hýsa stærri ráð- stefnur verða að hafa gistiaðstöðu og veitingastaði fyrir allan þann fjölda sem sækir þingið og stóra ráðstefnuhöll með fyrirlestrarsölum og fundarher- bergjum af öllum stærðum og gerðum. Einnig þarf rúmgóða sali undir tækja- og vörusýningar sem eru haldnar samhliða þingunum. Sem dæmi um stórar og glæsilegar ráðstefnuhallir má nefna Moscone Center í San Francisco, Baltimore Convention Center, McCormick Convention Center í Chicago og Intemationale Kongress Zentrum í Berlín. Síðasta áratug hefur alþjóðlegum læknaþingum sem haldin eru hér á landi fjölgað hratt og í sumar voru að minnsta kosti níu þing haldin. Þátttakend- ur á þeim voru á bilinu 100 til 800. Áætlaður fjöldi ferðamanna sem komu tii landsins í beinum tengsl- um við þingin er tæplega 4000. Gera má ráð fyrir að gjaldeyristekjur af sérhverjum ráðstefnugesti sé að jafnaði um það bil 150-250 þúsund krónur og hafa því heildargjaldeyristekjur af læknaþingum síðast- liðið sumar verið tæpur einn milljarður króna. Með þessar tölur í huga er augljóst að opinberum aðil- Höfundur er yfirlæknir klínískrar lífefnafræðideildar Landspítala. um, svo sem nki og sveitarfélögum, ætti að vera um- hugað um að styðja og auðvelda sérgreinafélögum lækna að skipuleggja og halda þing. Helsti styrkleiki íslands sem ráðstefnulands er að mörgum þykir forvitnilegt að sækja landið heim og kynnast einstakri náttúru landsins og menningu þjóðarinnar. Annar styrkleiki er góð sambönd og samgöngur bæði við Evrópu og Norður-Ameríku. Á hinn bóginn eru helstu veikleikar stutt sumur, tak- markað gistirými og aðstöðuleysi til ráðstefnu- og sýningarhalds sem og hár flutningskostnaður varn- ings og tækja á sýningar. Sem stendur er illmögulegt að standa fyrir læknaþingi þar sem fjöldi þátttakenda fer mikið yfir 1000 manns. Stærstu þingin sem hingað til hafa verið haldin hér á landi hafa haft um 1000-1200 þátttakendur. Háskólabíó, Borgarleikhúsið, Hótel Loftleiðir, Hótel Saga og Grand Hótel Reykjavík hafa verið notuð sem ráðstefnuhús, en engin af þessum annars ágætu byggingum eru sérhannaðar með slík þing í huga. Þó að aðstaða til fyrirlestra- halds geti verið til fyrirmyndar í einstaka sölum þá vantar sali sem taka meira en 1000 manns í sæti samhliða aðstöðu til þess að halda stórar tækja- og vörusýningar. íslenska ríkið og Reykjavíkurborg eru um þess- ar mundir að láta hanna og undirbúa byggingu tón- listar- og ráðstefnuhúss við Reykjavíkurhöfn. Mikil umræða hefur farið fram um aðstöðu Sinfóníu- hljómsveitar Islands ásamt því hvort íslenska óper- an eigi að fá inni í húsinu eða ekki. Á hinn bóginn hefur lítið farið fyrir umræðu um þá aðstöðu sem ætluð er til ráðstefnu- og sýningahalds. Teikningar að nýju tónlistar- og ráðstefnuhúsi liggja enn ekki fyrir, en í þeirri hugmyndasamkeppni sem efnt var til á síðasta ári um hönnun hússins var gert ráð fyrir hljómleikasal fyrir 1500 manns, æfingasal fyrir 450 manns, ráðstefnusal fyrir 750 og minni sölum tengd- um ráðstefnusalnum sem verða um 1750 fermetrar alls. Ekki er gert ráð fyrir sérstakri aðstöðu til tækja- og vörusýninga, en gert er ráð fyrir að koma slíkum sýningum fyrir í anddyrinu. Samkvæmt þessum hugmyndum virðist mér að fyrirhugað tón- listar- og ráðstefnuhús við Reykjavíkurhöfn muni að einhverju leyti bæta aðstöðuna til ráðstefnu- halds hér á landi, en sem fyrr verði ekki með nokkru móti hægt að skipuleggja þing þar sem þátt- takendafjöldinn fer yfir 1500 manns. Áfram verður aðstaða til tækja- og vörusýninga samhliða þingun- um léleg og illseljanleg. í ljósi þeirra miklu hags- muna sem tengjast ráðstefnuhaldi á íslandi þykir mér að ríki og borg ættu að endurskoða núverandi hugmyndir um tónlistar- og ráðstefnuhöll. ísleifur Ólafsson Frágangur fræðilegra greina Höfundar sendi tvær gerðir handrita til rilstjómar Læknablaðsins, Hlíðasmára 8,201 Kópavogi. Annað án nafna höfunda, stofnana og án þakka sé um þær að ræða. Greininni fylgi yfirlýsing þess efnis að allir höfundar séu samþykkir lokaformi greinar og þeir afsali sér birtingarrétti til blaðsins. Handriti skal skilað með tvöföldu línubili á A-4 blöðum. Hver hluti skal byrja á nýrri blaðsíðu í eftirtalinni röð: • Titilsíða: höfundar, stofnanir, lykilorð á ensku og íslensku • Ágrip og heiti greinar á ensku • Ágrip á íslensku • Meginmál • Þakkir • Heimildir Töflur og niyndir skulu vera á ensku eða íslensku, að vali höfunda. Tölvuunnar nivndir og gröf komi á rafrænu formi ásamt útprenti. Tölvugögn (data) að baki gröfum fylgi með, ekki er hægt að nýta myndir úr PowerPoinl eða af netinu. Eftir lokaf'rágang berist allar greinar á tölvutæku formi með útprenti. Sjá upplýsingar um frágang fræðilegra greina: http://lb.icemed.is/ Umræðuhluti Skilafrestur efnis í næsta blað er 20. undanfarandi mánaðar nema annað sé tekið fram. Læknablaðið 2002/88 711

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.