Læknablaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 55
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AÐALFUNDUR LÍ
Rætt við Sigurbjörn Sveínsson formann LÍ um
aðalfund félagsins
í septemberblaði Læknablaðsins birtust tillögur
stjórnar Læknafélags Islands til breytinga á lögum
félagsins. Eins og sjá mátti er um verulegar breyting-
ar að ræða og þar sem aðalfundur félagsins verður
haldinn dagana 11. og 12. október þótti við hæfi að
taka formanninn, Sigurbjörn Sveinsson, tali og spyrja
hverju þessar miklu breytingar á lögunum sættu.
„I samningunum í vetur leið kom fram gagnrýni á
störf samninganefndar og skipulag LÍ. Fullyrt var að
læknahópamir væru orðnir svo sérhæfðir og sundur-
leitir að ekki væri hægt að semja í einu lagi fyrir þá
alla. Þess vegna gæti nefndin ekki beitt sér af alefli í
þágu allra sjúkrahúslækna.
Sumar þessara radda eru ekki nýjar. Hugmyndir
skurðlækna hafa verið nokkur ár í farvatninu og ung-
um læknum á öllum tímum hafa fundist hagsmunir
þeirra sniðgengnir. „Við erum alltaf seld,“ er fullyrð-
ing sem hljómar kunnuglega í eyrum lækna sem
komnir eru langt yfir miðjan aldur eins og ég!
Stjórn LÍ tók vel í að ræða breytingar á skipulagi
félagsins strax og skurðlæknar settu fram hugmyndir
sínar um síðustu áramót. Tillögur hennar eru afrakst-
ur mikillar umræðu stjórnar við skurðlækna, for-
menn sérgreinafélaga, á formannaráðstefnu og fund-
um sem formaður hefur haldið með læknum á Akur-
eyri og á Norðurlöndum."
Brjóst og forysta í baráttunni
- Áttu von á því að þessar breytingar, ef samþykktar
verða, megni að halda saman félaginu og stöðva mið-
flóttann sem virtist vera að bresta á í vetur?
„Það er í sjálfu sér ekki markmiðið að halda
saman félaginu. Stéttarfélög eru bara tæki fyrir þá
sem í þeim eru og öll félög þurfa endurnýjunar við.
Þessar tillögur eru settar fram í því skyni að félag
lækna geti verið eins gott brjóst og forysta og kostur
er í baráttunni fyrir bættum hag.
Tillögur stjórnar eru tvíþættar. I fyrsta lagi eru
gerðar tillögur um allmiklar breytingar á orðalagi og
í samræmingarskyni. Lagabæturnar eru hins vegar
fyrst og fremst fólgnar í skipulagi stéttarfélagsins. í
stað þess að aðildarfélög LI séu svæðafélög lækna þá
verður félagið safn svæðafélaga og þeirra félaga sem
kjósa að fara með samningsrétt félaga sinna og hafa
fengið umboð þeirra til þess. Það verður í hendi sér-
greinafélaganna og lækna sem í þeim eru að taka
ákvörðun um það hvemig aðild þeirra að LI er hátt-
að.“
- Því er oft haldið fram að LÍ sé félag sem gæti
margra og ólíkra hagsmuna, það er fagfélag og stétt-
arfélag launamanna, auk þess sem þar eru stjórnend-
ur og læknar sem hafa stöðu atvinnurekenda. Verður
auðveldara að sameina hagsmunabaráttuna eftir
lagabreytingarnar?
„Því er erfitt að svara. Hins vegar eru tillögurnar
ekki settar fram til þess eins að auðvelda okkur lífið.
Ég er ekki einu sinni viss um að þetta sé heppilegt
fyrir stéttina eða fyrir stefnumótun í heilbrigðismál-
um. En lýðræðissjónarmið krefjast þess að komið sé
til móts við þá sem gagnrýnt hafa LÍ og þótt breyting-
arnar séu meirihluta félaga ef til vill ekki geðfelldar
er nauðsynlegt að kúga ekki minnihlutann í þessu
máli.“
Læknalög felld úr gildi?
- Hvað um önnur mál sem aðalfundur mun fjalla
um?
„Ég hafði gert mér vonir um að ég gæti farið með
friði á þessum þriðja aðalfundi mínum en mér sýnist
lítil von til þess. Enn berast fregnir um að í fagráðu-
neyti okkar sé í smíðum frumvarp til laga sem sé
læknum ógeðfellt. Þar á ég við frumvarp til laga um
heilbrigðisstarfsmenn sem leysa læknalög af hólmi.
Um starfsemi lækna hafa gilt sérlög frá því snemma á
síðustu öld og þau hafa verið til góðs fyrir almenning,
heilbrigðisstjórnina og lækna. Þau hafa verið endur-
bætt reglulega og staðist tímans tönn. Þau undirstrika
sérstöðu lækna í heilbrigðisþjónustunni sem er þeim
nauðsynleg svo þeir geti haft forystu um greiningu og
meðferð sjúkdómanna eins og til er ætlast. í lögunum
er kveðið skýrt á um ábyrgð lækna og skyldur og um
takmarkanir á heimild annarra og ólærðra til að gefa
sig að lækningum. Telji Alþingi nauðsynlegt að bæta
lagaumhverfi annarra heilbrigðisstétta er óþarft að
gera það á kostnað lækna.
Það verður óhjákvæmilegt að minnast á þetta
frumvarp á aðalfundinum þótt skemmtilegra hefði
verið að taka að minnsta kosti einu sinni á móti ráð-
herra við afslappaðri aðstæður.
Samhliða aðalfundinum verður að vanda efnt til
málþings þar sem kynntar verða reglur sem Medical
Council í Bretlandi setti nýlega um réttindi og skyld-
ur lækna, rætt um kynningu lækna á sjálfum sér í
breyttri tækni og um símenntun sem er ofarlega á
baugi hjá evrópskum læknum um þessar mundir.
Aðalfundurinn er mér tilhlökkunarefni. Það er
spennandi að hitta kollegana, takast á um málin og
ráða fram úr þeim í mikilli spekt eins og jafnan hefur
verið gert innan Læknafélags íslands,41 segir Sigur-
björn Sveinsson formaður. Þröstur Haraldsson
Læknablaðið 2002/88 759