Læknablaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 36
FRÆÐIGREINAR / HÆTTA AF LIRFUM BLÓÐAGÐA
Mynd 1. Útbrot eftir sund-
lirfur Trichobilharzia blóð-
agða á barni sem vaðið
hafði berfœtt í tjörn Fjöl-
skyldugarðsins í Reykjavík
t ágúst 1997. Tugir sund-
lirfa boruðu sig í gegnum
húðina á fótum. Kláðabóla
myndast eftir hverja lirfu
sem smýgur í gegnum
húðina.
Ljósm.: Jens Magnússon.
Mynd 3. Tvö egg Tricho-
bilharzia fuglablóðögðu,
sem fundist hefur á lirfu-
stigi í vaðtjörn Fjölskyldu-
garðsins í Reykjavík, í slím-
himnu í nefholi andarunga,
þrem vikum eftir smitun.
Neðra eggið er nokkurn
veginn skorið eftir endi-
löngu þannig að oddhvass-
ir endarnir eru áberandi.
HE litun.
Ljósm.: Karl Skírnisson.
móti í slímhimnu nefholsins og því kallaðar nasa-
blóðögður (1,2,4-6).
Haustið 1997 fundust lirfur fuglablóðagða í fyrsta
sinn á Islandi (7). Lirfurnar voru þá í miklum mæli í
vaðtjörn Fjölskyldugarðsins í Reykjavík og höfðu vald-
ið útbrotum á fjölda barna sem þar höfðu verið að
leik (mynd 1). Síðan hafa margvíslegar rannsóknir
farið fram á tegundinni sem hér á í hlut (7-14). Lirf-
unni (mynd 2) var lýst fyrir vísindin þar sem hún
reyndist á ýmsan hátt vera frábrugðin þeim tegund-
um sem áður hafði verið lýst (8).
Markmið greinarinnar er tvíþætt. I fyrsta lagi að
gefa almennt yfirlit um þekkingu á líffræði fuglablóð-
Mynd 2. Sundlirfa Tnchob'úh'dr/.vd fuglablóðögðunnar
sem fundist hefur í vaðtjörn Fjölskyldugarðsins í Reykja-
víkfrá 1997 (A). Framhluti lirfunnar (B) er að mestu fyllt-
ur kirtlum sem seyta próteinkljúfandi efnum og opnast
þeir á framendanum. Tveir dökkir augnblettir eru áber-
andi og sogskál (vísar til vinstri) getur haldið lirfunni
fastri. Halinn er langur og endar í sundblöðkum.
Ljósm.: Karl Skírnisson.
agða og í öðru lagi að segja stuttlega frá rannsóknum
á íslenskum fuglablóðögðum, meðal annars nýjum
niðurstöðum sem sýnt hafa að sundlirfur úr sniglum
sem safnað var í vaðtjöm Fjölskyldugarðsins í Reykja-
vík haustið 2001 reyndust vera nasablóðögður. Pess-
ar niðurstöður eru ræddar í ljósi nýrrar þekkingar á
skaðsemi fuglablóðagða í spendýrum (þar með talið
mönnum) sem leitt hefur til þess að fólk er varað við
því að útsetja sig fyrir fuglablóðögðulirfum.
Um líffræði fuglablóðagða
Lífsferill
Kvendýr iðrablóðagða verpa eggjum sínum inni í blá-
æðum við afturhluta meltingarvegar fugla en egg nasa-
blóðagða (mynd 3) finnast í slímhimnu nefholsins því
þar lifa fullorðnu ögðurnar annaðhvort í slímhimn-
unni eða inni í æðum (1,2,4-6). Eggin eru með gadda
sem auðvelda þeim að ijúfa sér leið í gegnum vefi.
Strax eftir að eggi hefur verið verpt hefjast frumuskipti
og lirfa tekur að þroskast. Hjá nasablóðögðum lýkur
lirfuþroskanum yfirleitt strax í nefholi fuglsins og þeg-
ar eggið rofnar skríður þar út bifhærð lirfa (miraci-
dium). Syndir hún út í vatnið þegar fuglinn aflar sér
740 Læknablaðið 2002/88