Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2002, Page 29

Læknablaðið - 15.10.2002, Page 29
FRÆÐIGREINAR / LITFIKLAÆXLI Háþrýstingur með kalíumbresti: óvenjuleg sýnd litfíklaæxlis. Sjúkratilfelli Sjúkratilfelli Gísli Björn Bergmann1 Margrét Oddsdóttir2 Rafn Benediktsson13 Bergmann GB Oddsdóttir M Benediktsson R Hypertension with hypokalemia: unusual presentation of pheochromocytoma - case report Læknablaðið 2002; 88: 733-6 Key words: pheochromo- cyloma, hypertension, hypokalemia, adrenaline, noradrenaline. Þrjátíu og sjö ára gömul kona leitaði endurtekið til heimilislæknis á rúmu hálfu ári. Færslur í sjúkraskrá hennar frá þeim tíma einkennast af kvörtunum um höfuðverki, svima og brjóstverki. Þessi einkenni voru í fyrstu talin upprunnin í stoðkerfi og fékk hún meðal annars ávísað bólgueyðandi lyíjum (NSAID). Grein- ingin obs. pericarditis er nefnd. Blóðþrýstingur reynd- ist hækkaður á bilinu 140-200/70-110 mmHg þrátt fyrir að lyfjameðferð væri hafin með amlodipine 5 mg daglega (fimm árum áður hafði blóðþrýstingur í þungun mælst 125/75 mmHg). Endurteknar mælingar án lyfja staðfestu kalíumbrest í sermi (s-K'3,2 & 3,3 & 3,4 mmól/1) sem brugðist var við með ávísun á kalíum klóríð 750 mg tvisvar á dag. Hjartarafrit og lungna- mynd voru eðlileg. Aldósterón var mælt í sermi í tvígang og talið eðlilegt (646 og 650 pmol/1). Þessu næst voru katekólamín í þvagi mæld (tafla I) og í fyrra skiptið án lyfja var um að ræða noradrenalín hækkun sem nam 2,4 sinnum efri vikmörkum en í seinna skiptið (nýhafin meðferð með amlodipine) nam nor- adrenalín hækkunin 5,3 földum efri vikmörkum. Heilsufarssaga var annars ómarkverð og konan neytti hvorki áfengis né reykti. Ættarsaga var jákvæð með tilliti til hjartasjúkdóma og háþrýstings. Tafla 1. Katekólamín í þvagi. Þvagmælingar (24 klukkustundir) Heima í héraöi Mæling 1 Mæling 2 Á sjúkrahúsi Mæling 3 Vikmörk Þvagmagn (ml) 1250 1500 2520 - Noradrenalín (nmol) 965 2126 2293 100-400 Adrenalín (nmol) 25 131 28 5-80 Dópamín (nmol) 1463 1242 1902 760-2400 Þessu næst var konan lögð inn á sjúkrahús til frek- ari rannsókna. Við innlögn hafði hún verið lyfjalaus í fjórar vikur og greindi hún frá að minnsta kosti árs- sögu um tíða höfuðverki og mæði á stundum. Við kerfakönnun gekkst hún við svimaköstum, brjóst- verkjum og doða í höndum auk sjóntruflana sem erf- itt var að henda reiður á. Hún greindi einnig frá ný- legu mjög slæmu hjartsláttarkasti („þungur og ákaf- ur“). Konan neitaði lakkrísneyslu. Líkamsskoðun var ómarkverð ef frá er talinn háþrýstingur; 24 klst blóð- þrýstingsmæling var framkvæmd og sýndi hún dæmi- gerða dægursveiflu (mynd 1). Styrkur salta í sermi reyndist nú eðlilegur og blóðpróf staðfestu afleitt (secondary) aldósterónheilkenni. Þannig var plasma- renín eftir rúmlegu yfir nótt 47 mEin/1 (vikmörk 8,8- 36) og plasma aldósterón 1050 pmól/1 (vikmörk 38- 490). Sólarhringsútskilnaður á natríum í þvagi var 77 mmól/1 og kalíumútskilnaður var 47 mmól/1. Þvag- 'Læknadeild Háskóla íslands, -’Skurölækningadeild Landspítala Hringbraut, ’LyflækningadeiId Landspítala Fossvogi. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Rafn Benediktsson, lyflækningadeild (E7) Landspítala Fossvogi, 108 Reykjavík. Sími: 543 1000, rafn @efnaskipti. com Lykilorð: litfíklaœxli, háþrýstingur, kalíumbrestur, adrenalín, noradrenalín. söfnun staðfesti hækkun á noradrenalíni (nú 5,7 sinn- um efri vikmörk) en adrenalín var eðlilegt (tafla I). Tölvusneiðmynd leiddi í ljós 3,4 sm fyrirferð í hægri nýrnahettu. Ákvörðun var tekin um að fjarlægja æxlið. Til undirbúnings heima í héraði var konan fyrst með- höndluð með doxazosin forðatöflum í hækkandi skömmtum en síðan bætt við atenolol. Samkvæmt skýrslum heilsugæslulæknis var blóðþrýstingur 105- 110/70 mmHg á doxazosin lOmgxl og atenolol 25mgx2. Hægri nýrnahettan var síðan fjarlægð með aðstoð kviðsjár og reyndist fyrirferðin vera við neðri pól hægri nýrnahettunnar. Vel gekk að fjarlægja nýrnahettuna og engir fylgikvillar komu upp í eða eftir aðgerð þó blóðþrýstingur hafi verið í lægra lagi. Meinafræðirannsókn staðfesti að æxlið var utan hinnar eiginlegu nýrnahettu, hafði hýði og var vel æðanært. Smásjárskoðun sýndi útlit og vefjagerð ein- kennandi fyrir litfíklaæxli (myndir 2 og 3). Nýrna- hettan sjálf reyndist án sjúklegra breytinga. Eftir að- gerð hefur hún haft eðlilegan blóðþrýsting án lyfja- meðferðar, einkenni eru horfin og katekólamín í þvagi hafa mælst innan vikmarka (noradrenalín 227 nmol/1 og adrenalín 32 nmól/1). Umræða Háþrýstingur með kalíumbresti Renín-aldósterón kerfið stjórnar salt- og vökvabú- skap líkamans (mynd 4). Eðlilegt er því að beina sjónum að því í tilfellum eins og þessu sem hér er lýst. Upp í huga flestra kemur þá líklegast heilkenni kennt við Conn sem orsakast af góðkynja aldósterón-fram- leiðandi æxli í nýrnahettu. Stjórnlaus offramleiðsla og seyting á aldósteróni (prímer aldosteronismus) kemur einnig fyrir í hnökrastækkun á nýrnahettu- berki (bilateral nodular adrenal hyperplasia) og í sjaldgæfum arfgengum kvilla þar sem ACTH yfirtek- ur stjórn saltsteramyndunar vegna genaumröðunar í stýriröð ensímsins aldosterone synthase (Glucocorti- coid Suppressible Hyperaldosteronism). (1) Flestir en þó ekki allir telja saltsteraofgnótt mjög sjaldgæfa orsök háþrýstings (0,5-2,0%) (1,2). Hins vegar er nú viðtekið að kalíumbrestur þarf ekki alltaf að vera til staðar í þessum tilfellum þó hulunni sé auðveldlega svipt af brestinum með þvagræsilyfjum. Það er hins vegar deginum ljósara að fæstir þeirra sem hafa kal- íumbrest vegna til dæmis þíasíðnotkunar hafa stjórn- lausa offramleiðslu saltstera. I stuttu máli er líklegt að sem oftar séu mörkin milli hins eðlilega og sjúk- dóms óskýr, og um að ræða samfellt róf: Eðlilegt —» Læknablaðið 2002/88 733

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.