Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2002, Síða 50

Læknablaðið - 15.10.2002, Síða 50
UMRÆÐA & FRÉTTIR / A F SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ Heilbrigðisyfirvöld hafa enga stefnu Barátta heimílislækna snýst um réttindi Þórir B. Kolbeinsson Höfundur er formaður Félags íslenskra heimilislækna og á sæti í stjórn Læknafélags íslands. Sjónarmið þau er fram koma í pistlunum Af sjónarhóli stjórnar eru höfundar hverju sinni og ber ekki að taka sem samþykktir stjórnar LÍ. Undanfarna mánuði hefur staðið yfir hörð réttinda- barátta heimilislækna eins og efalaust allir læknar hafa orðið varir við. Pó þessi barátta hafi í raun staðið í mörg ár færðist hún á nýtt stig þegar Heilbrigðis- ráðuneytið reyndi að svipta heilsugæslulækna greiðsl- um fyrir vottorð um síðustu áramót. Tel ég að áfram- haldandi greiðslum fyrir vottorð heilsugæslulækna hafi aðeins verið bjargað í höfn vegna harðra við- bragða heimilislækna með fulltingi Læknafélags ís- lands. Þessi framkoma ráðuneytisins þjappaði heimil- islæknum sem verið höfðu óánægðir enn betur saman og margir sem áður höfðu verið hikandi ákváðu að láta ekki bjóða sér slíka framkomu og sögðu upp. Stærsti hópurinn eru læknar á Suðurnesjum og í Hafnarfirði en fleiri hafa gripið til sömu aðgerða. Fundur í Félagi íslenskra heimilislækna 16. apríl síðastliðinn ályktaði „að breyta verði starfsumhverfi heimilislækna tafarlaust þannig að leyfðir verði gjald- skrársamningar til samræmis við aðra sérfræðinga og þannig skapaður traustur grundvöllur fyrir þróun heimilislækninga á íslandi.“ í framhaldi af þessu áttu sér stað viðræður milli ráðuneytisins og stjórnar FÍH um möguleika á starfsemi heimilislækna byggða á gjaldskrársamningum Tryggingastofnunar ríkisins við aðra sérfræðinga. FÍH gekk frá þeim viðræðum í júní með þann skilning að frekari viðræður væru háðar því að heilbrigðisráðherra ákvæði hvort slík starfsemi yrði heimiluð en því miður hafa ekki borist önnur svör úr ráðuneytinu en óbein skilaboð í fjölmiðlum. Að óbreyttu stefnir því í harðnandi átök og baráttu hjá heimilislæknum. í september 2002 voru kynntar tvær stjórnsýsluút- tektir Ríkisendurskoðunar. Annars vegar úttekt á samningum TR og sérfræðilækna og hins vegar út- tekt á rekstri Heilsugæslunnar í Reykjavík. Báðar skýrslurnar bera keim af því að reynt hefur verið að gera úttekt á starfsumhverfi heimilislækna með aug- um tölfræðinnar en dýpri skilning á starfsemi heil- brigðiskerfisins og lækna vantar og ályktanir eru dregnar á röngum forsendum. I skýrslunni um heilsu- gæsluna eru þó tíunduð ýmis athyglisverð atriði um forsendur og starfsemi frumþjónustu heilbrigðiskerf- isins sem heimilislæknar hafa margoft bent stjórn- völdum á þegar rætt hefur verið um starfsemi heilsu- gæslunnar og heimilislækna en mætt litlum skilningi. Sumar hugmyndir og ábendingar sýna þó skilnings- leysi á eðli samskipta sjúklings og heimilislæknis og því starfi sem heimilislæknir sinna og eru sprottnar af tilraunum til að yfirfæra vísindi viðskipta- og bók- 754 Læknablaðið 2002/88 haldsfræða Ríkisendurskoðunar yfir á heilbrigðis- þjónustuna. Ein þýðingarmesta ábending Ríkisendurskoðun- ar er að „heilbrigðisyfirvöld þurfi að móta skýrari stefnu um verkaskiptingu innan heilbrigðiskerfisins og stöðu og hlutverk heilsugæslunnar innan þess.“ Hérlendis hefur vantað pólitískar skilgreiningar á þeirri starfsemi sem heilsugæslan og frumheilbrigðis- þjónustan í landinu á að annast. Ekki vantar að í gild- andi lagarömmum er verkefnum heilsugæslunnar lýst og á hátíðum ræða ráðamenn fjálglega um störf heilsu- gæslunnar en útfærsla þessara laga og hugmynda hef- ur verið önnur í verki. Nauðsynlegt er að ráðuneytið kveði skýrt á um verkaskiptingu og uppbyggingu frum- þjónustunnar og tryggi fjármagn til þeirrar starfsemi. Til þess að aðrir hlutar heilbrigðiskerfisins geti starf- að eðlilega þarf undirstaðan, frumþjónustan, að vera í lagi. Vandamál heilsugæslunnar eru ekki hin sömu og vandamál heimilislækna þó miklir hagsmunir fari þar saman og er þessu þráfaldlega blandað saman, meira að segja af fagráðuneytinu. Heilsugæslunni er ætlað að veita ákveðna þjónustu og er skipulag og mótun þeirrar þjónustu í höndum stjórnvalda. Heilsugæslu- læknar eru aðeins einn hópur starfsmanna heilsu- gæslunnar og heilsugæsla verður ekki rekin ef þann hóp vantar. Sömu reglur gilda um heilsugæslu ríkisins og önnur fyrirtæki, þau þurfa að ráða til sín starfs- menn og gera starfið eftirsóknarvert bæði kjaralega og faglega og þar hefur heilbrigðisráðuneytinu gjör- samlega mistekist starfsmannapólitíkin. Þannig hefur hvorki tekist að laða að heimilislækna né halda þeim sem fyrir eru. Venjuleg fyrirtæki þurfa að bregðast við þessum vanda með því að skilgreina vandamálið og koma með lausnir í samvinnu við starfsmenn. Því miður hafa viðbrögð þeirra aðila sem ættu að hafa mestan skilning og yfirsýn í heilbrigðismálum ekki gefið vonir um að Heilbrigðisráðuneytið telji sig þurfa að lúta slíkum markaðslögmálum. í útvarpsviðtali við Elsu B. Friðfinnsdóttur að- stoðarmann heilbrigðisráðherra þann 6. september síðastliðinn kom fram ótrúleg vanþekking á störfum og eðli starfs íslenskra heimilislækna og tillögur þær sem stjómendur Heilsugæslunnar í Reykjavík kynntu nú í september í þá veru að allir gætu fengið þjónustu heimilislæknis samdægurs, eru byggðar á loforðum um vinnuframlag lækna sem nú er skortur á. Ekkert tillit er tekið til þess að kjarni vandans er að skortur er á heimilislæknum og núverandi barátta heimilis- L
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.