Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.01.2003, Qupperneq 6

Læknablaðið - 15.01.2003, Qupperneq 6
Beint fyrir er fljótlegri framan nefið á þér lausn gegn mígreni I m IG R AN ÞEGAR TIL KASTANNA KEMUR Imigran nefúði er helmingi fljótvirkari en töflur 1 Imigran GlaxoSmithKline NEFÚÐALYF; N 02 C C 01. R.E. Hver skammtur inniheldur: Sumatriptanum INN, 20 mg, hjálparefni og Aqua purificata ad 0,1 ml. STUNGULYF sc; N 02 C C 01. 1 ml inniheldur: Sumatriptanum INN, súkkínat, 16,8 mg, samsvarandi Sumatriptanum INN 12 mg, Natrii chloridum 7 mg, Aqua ad iniectabilia ad 1 ml. TÖFLUR; N 02 C C 01. Hver tafla inniheldur: Sumatriptanum INN, súkkínat, samsvarandi Sumatriptanum INN 50 mg eða 100 mg. Abendingar: Erfiö mígreniköst, þar sem ekki hefur náöst viöunandi árangur meö öörum lyfjum. Cluster (Hortons) höfuöverkur. Lyfiö á einungis aö nota, þegar greiningin mígreni eöa Cluster- höfuöverkur er vel staöfest. Skammtar; Skammtastæröir handa fullorðnum: Lyfiö á aö gefa viö fyrstu merki um mígrenikast en getur verkaö vel þó þaö sé gefiö síöar. Imigran er ekki ætlaö til varnandi meöferöar. Töflur: Venjulegur upphafsskammtur er ein 50 mg tafla. Sumir sjúklingar geta þó þurft 100 mg. Ef einkennin koma fram á nýjan leik má gefa fleiri skammta þó ekki meira en 300 mg á sólarhring. Töflurnar á að gleypa heilar meö vatni. Stungulyf: Venjulegur upphafsskammtur er 6 mg (ein sprauta) undir húð. Ef ekki fæst fullnægjandi árangur má gefa aöra sprautu (6mg) innan 24 klst., en minnst 1 klst. verður aö líða á milli lyfjagjafa. Takmörkuö reynsla er af gjöf fleiri en fjögurra skammta (24mg) á mánuöi. Nefúöalyf: Venjuleg skammtastærö er 20 mg (einn úöaskammtur) í aöra nösina. Ef einkenni hverfa en koma aftur innan 24 klst. má taka annan skammt en þó fyrst eftir 2 klst. frá töku fyrri skammtsins. Ekki má taka fleiri en tvo skammta á sólarhring. Ef einkenni hverfa ekki eftir fyrsta skammt á ekki aö taka annan skammt viö sama mígrenikastinu. Skammtastæröir handa börnum: Lyfiö er ekki ætlaö börnum. Frábendingar: Kransæöasjúkdómar, alvarlegur háþrýstingur, blóörásartruflanir í útlimum, nýrnabilun, lifrarbilun. Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins. Ekki má nota samtímis lyf, sem innihalda ergótamín. Imigran má ekki gefa fyrr en 24 klst. eftir gjöf ergótamíns og ergótamín má ekki gefa fyrr en 6 klst. eftir gjöf Imigran. Varnaöarorö og varúðarreglur: Við notkun lyfsins geta komiö fram tímabundin einkenni eins og brjóstverkur og þrýstingstilfinning, sem getur oröiö töluverö og leitt upp í háls. Þó þessi einkenni líkist hjartaöng, heyrir til undantekninga aö þau séu af völdum samdráttar í kransæöum. Herpingur i kransæöum getur leitt til hjartsláttartruflanna, blóðþurröar og hjartavöövadreps. Sjúklinga, sem verða fyrir slæmum eða langvarandi einkennum, sem líkjast hjartaöng, ber aö rannsaka meö tilliti til blóöþurrðar. Athugið: Stungulyfið má ekki gefa í æö vegna herpings í kransæöum og mikillar blóöþrýstingshækkunar, sem getur átt sér stað. Vegna takmarkaðrar klínískrar neyslu er ekki mælt með notkun lyfsins handa sjúklingum eldri en 65 ára. Milliverkanir: Ekki má nota samtímis lyf sem innihalda ergótamín. Engar sérstakar milliverkanir hafa fundist viö própranólól, díhýdróergótamín pízótifen eða alkóhól. Meöganga og brjóstagjöf: Ekki er vitaö hvort lyfiö geti skaöaö fóstur en dýratilraunir benda ekki til þess. Ekki er vitaö hvort lyfiö skilst út í móðurmjólk. Akstur og stjórnun vinnuvéla: Vara ber sjúklinga viö stjórnun vélknúinna ökutækja eöa vinnuvéla þar sem bæöi mígreniö og lyfiö geta haft slævandi áhrif. Aukaverkanir: Allt aö 50o/o sjúklinganna fá einhverjar aukaverkanir. Ýmis þessara óþæginda hverfa eftir 30-60 mín. og gætu sum þeirra veriö hluti af migrenikastinu. Algengar (>1%): Oþægindi á stungustaö (stungulyf). Bragö og tímabundin, væg erting eöa sviöi í nefi eöa koki, blóðnasir (nefúöalyf). Þreyta og sljóleiki. Tímabundin blóðþrýstingshækkun og húðroöi. Ógleöi og uppköst. Máttleysi og spenna í vöövum. Náladofi og hitatilfinning. Svimi. Þrýstingstilfinning meö mismunandi staösetningu, oftast fyrir brjósti. Sjaldgæfar (0,1%-1°/o): Hækkun lifrarensíma í blóöi. Mjög sjaldgæfar(<0,1%): Ofnæmislost. Blóöþrýstingsfall, hægataktur, hjartsláttarónot, hraðtaktur. Kláöi, roöi, útbrot, ofsakláöi. Krampar. Sjóntruflanir. Ofskömmtun: Viö ofskömmtun skal fylgjast meö sjúklingi í a.m.k. tíu klst. og veita stuöningsmeðferð eftir þörfum. Ekki er vitaö um áhrif blóö- eöa kviðskilunar á blóöþéttni súmatriptans. Lyfhrif: Súmatriptan virkjar sérhæft serótónínviðtaka af undirflokki 5-HT-|D í heilaæöum. Lyfiö veldur þannig samdrætti í heilaæöum, einkum greinum a. carotis. Víkkun þessara æöa er talin orsök verkjanna viö mígreni. Lyfjahvörf: Verkun lyfsins hefst 10-15 minútum eftir gjöf undir húö, 15 mínútum eftir nefúöa og um 30 mínútum eftir inntöku. Aögengi eftir gjöf undir húð er nánast 100%, en aö meöaltali 14-16% eftir inntöku eða nefúða. Blóöþéttni nær hámarki innan 25 mín. eftir gjöf undir húö, oftast innan 45 mín. eftir inntöku og 60-90 mín. eftir notkun nefúða. Dreifingarrúmmál er 2,7 l/kg. Binding viö plasmaprótein er 20-30%. Lyfiö umbrotnar aö miklu leyti (80o/o) í óvirk umbrotsefni i lifur og skilst út í nýrum. Pakkningar; Nefúöalyf: Einnota nefúöatæki (0,1 ml) x 2; einnota nefúöatæki (0,1 ml) x 6. Stungulyf: einnota dæla 0,5 ml (=6 mg virkt efni) x 2; einnota dæla 0,5 (=6 mg virkt efni) x 2 + lyfjapenni (Glaxopen). Töflur 50 mg: 12 stk. (þynnupakkaö). Töflur 100 mg: 6 stk. (þynnupakkað). Skráning lyfsins í formi stungulyfs er bundin því skilyröi, aö notkunarleiðbeiningar á 'slensku um meðfylgjandi lyfjapenna (Glaxopen) fylgi hverri pakkningu þess. Greiösluþátttaka miöast viö merkingu “E" í lyfjaskrám sem takmarkast viö lyfjaávísun á mest 6 stk. einnota nefúðatæki (0,1 ml) x 6, 2 stk. einnota dælu 0,5 ml (=6 mg virkt efni), 12 töflur á 50 mg og 6 töflur á 100 mg. Imigram nefúöi, verö: 6 stk. kr. 8.339, 2 stk. kr. 3455. Verö samkvæmt lyfjaverðskrá 23.02.2001. D Dahlöf C. Cephalgia, 1999; 19; 9. 769-778. m GlaxoSmithKline Þverholt 14 - simi 530 3700 www.gsk.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.