Læknablaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 76
RÁÐSTEFNUR / ÞING
Ársþing
Skurðlæknafélags íslands og
Svæfinga- og gjörgæslulækna-
félags íslands
veröur haldið á Grand hóteli Reykjavík 8. og 9. maí 2003. Á þinginu verða m.a. flutt frjáls erindi
og kynnt veggspjöld. Nánari dagskrá þingsins verður auglýst síðar.
Ágrip erinda skulu berast fyrir 15. mars til Margrétar Aðalsteinsdóttur hjá Fræðslustofnun
lækna, með tölvupósti eða á disklingi, sjá upplýsingar hér að neðan.
Þau ágrip sem vísindanefnd félaganna samþykkir til flutnings á þinginu verða birt í Læknablað-
inu. Vísindanefnd áskilur sér rétt til að hafna innsendum ágripum og einnig rétt til að hafna
ágripum til flutnings en samþykkja þau í formi veggspjalds. Höfundar geti þess hvort þeir óska
eftir aö flytja erindi eða sýna veggspjald. Ágrip skulu skrifuð á íslensku. Hámarkslengd ágripa
er 1800 letureiningar (characters). Nafn flytjanda skal feitletrað.
Við ritun ágripa skulu eftirtalin atriði koma fram í þeirri röð sem hér segir:
• Titill ágrips, nöfn og vinnustaður höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir, niðurstöður
og ályktanir.
Nánari upplýsingar um þingið veita: Helgi H. Sigurðsson, Landspítala Fossvogi og Sveinn Geir
Einarsson, St. Jósefsspítala Hafnarfirði.
Ritari þingsins er Margrét Aðalsteinsdóttir hjá Fræðslustofnun lækna, Hlíðasmára 8, 201 Kópa-
vogi, sími: 564 4100, bréfasími: 564 4106, netfang: magga@icemed.is
AstraZeneca dagur
1. mars 2003
Að venju verður hinn árlegi fræðslu- og fagnaðardagur heimilislækna haldinn á Hótel Loftleiðum fyrsta laugardag í
mars. Öldrunarlæknar eru sem fyrr einnig hjartanlega velkomnir.
AstraZeneca dagurinn er sem áður skipulagður af FÍH og AstraZeneca.
Yfirskrift dagsins er Heilsuvernd - Vonir og vonbrigði.
Dagskráin hefst kl. 9:00 með tveggja klukkustunda almennum fundi þar sem fjallað verður um heilsuvernd í
víðasta skilningi. Að því loknu verður boðið upp á tvíþætta samhliða dagskrá fram að almennum fundi milli
kl. 16:00 og 17:00.
Nánari dagskrá mun verða send læknum sérstaklega.
Fræðslunefnd FÍH AstraZeneca
76 Læknablaðið 2003/89