Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 69

Læknablaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐAPISTILL 1 5 1 Læknablaðið Hannes Petersen (Lbl 2002; 88: 183) og Tómas Guðbjartsson (Lbl 2002; 88: 471) birtu hófsamar og málefnalegar ritstjórnargreinar sem lýsa áhyggjunt þeirra af framtíð Læknablaðsins sem vísindarits. Bæði þeir og blaðið eiga betra skilið en hvatskeytlega at- hugasemd Sigurbjörns Sveinssonar í þættinum Af sjónarhóli stjórnar LÍ (Lbl 2002; 88: 579); Áhugi okkar á íslenskri tungu og menningu, nýyrðasmíð og fleiru af því tagi má ekki ganga af Lœknablaðinu dauðu. Örn Bjarnason tók svo upp hanskann fyrir ís- lenskustefnu Læknablaðsins (Lbl 2002; 88:887) og er ekki miklu við það að bæta. Nokkrar athugasemdir má þó gera frá sjónarhóli pistiahöfundar. íslenska eda ekki! Margoft hefur komið fram að það er stefna Lækna- blaðsins að birtar greinar séu á góðu íslensku máli, nteð öðrum orðum að íslenskað sé allt sem íslenskað verður. Þessi eindregna stefna hefur að mati undirrit- aðs haft æskileg og hvetjandi áhrif á þróun hins ís- lenska læknamáls. Stefnan leyfir starfsmönnum blaðsins þó ekki annað en að sýna fulla háttvísi í sam- skiptum sínum við greinarhöfunda þegar settar eru fram tillögur um endurbætur. Sömuleiðis er engin ástæða til að forðast að birta erlent fræðiheiti í sviga þegar notað er íslenskt íðorð eða heiti sem ekki er læknum tamt. Undirritaður þykist hafa veitt því athygli að ís- lenskustefna Læknablaðsins hefur smitað yfir í ýmis- legt annað efni sem læknar láta frá sér fara. Þannig eru fyrirlestrar og fræðsluefni nú almennt á betra máli en var fyrir 20 árum. Sömuleiðis er áberandi hvað meira er af íslenskum heitum á glærum og myndum sem læknar nota um leið og þeir flytja fræðileg erindi og fyrirlestra. Enn heyrast að vísu kvartanir um að læknar tali við sjúklinga sína á latínuskotnu fræði- máli. Ef marka má lesendabréf og frásagnir pistlahöf- unda dagblaðanna, er þetta mest áberandi á stofugangi á stóru stofnununum. Læknum til afsökunar má segja að þar er ýmislegt sagt sem ekki er sjúklingum ætlað. Útskýringar og orð lækna sem beint eru ætluð sjúk- lingum þeirra eiga þó að sjálfsögðu að vera á máli sem þeir síðarnefndu eiga kost á að skilja. Orðanefndin Orðanefnd læknafélaganna og einstakir meðlimir hennar hafa unnið mikið starf frá því ákveðið var að hefja söfnun og útgáfu læknisfræðilegra íðorða árið 1977. Orðanefndin var þó ekki formlega stofnuð fyrr en árið 1983. Skipuleg vinna við íðorðasafn lækna stóð yfir í tíu ár, eða frá 1979 til 1989 er síðasta hefti safnsins kom út. Strax var þá hafist handa við að þýða hin alþjóðlegu heiti, Nomina anatomica, Nomina embryologica og Nomina histologica, sem komu út í þremur myndarlegum bókum, Líffæraheiti, Fóstur- fræðiheiti og Vefjafræðiheiti, á vegum Orðabókar- sjóðs læknafélaganna árið 1995. Að því loknu var gerður samningur við Heilbrigðisráðuneytið og tekin fyrir þýðing á Alþjóðlegu sjúkdómaflokkuninni, ICD- 10. Því verkefni tókst að ljúka á einu ári með mikilli vinnu nefndarmanna og aðstoð lækna í mörgum sér- greinum. Þýðingin kom út í stórri bók árið 1996. Að öllum þessum verkefnum loknum kenndi þreytu meðal nefndarmanna og flestir voru fegnir að gefa öðrum hugðarefnum tíma sinn. Undanfarin ár hefur orða- nefndin því lítið starfað og jafnvel er ekki ljóst hvaða læknar teljast meðlimir hennar. Nú er hins vegar komin fram ákveðin hugmynd að rafrænni útgáfu íð- orðasafnsins og til þess að hún geti orðið að veruleika verður að endurlífga nefndina og endurskoða allt safnið í skilgreindum áföngum. Pistlarnir Regluleg ritun íðorðapistla hófst árið 1990 að undir- lagi Arnar Bjarnasonar, þáverandi formanns orða- nefndar og ábyrgðarmanns Læknablaðsins. Frá upp- hafi var ljóst að undirritaður skrifaði sem einstakling- ur, birti sínar eigin skoðanir og hefði frjálst val um efni og efnistök. Á fyrstu árunum var þó stundum birt efni frá nefndinni, ýmist niðurstöður eftir um- fjöllun um ákveðin efni eða beiðni um tillögur að úr- lausnum vegna þeirra viðfangsefna nefndarinnar sem voru í vinnslu. Ritstjórn Læknablaðsins hefur fram til þessa veitt skrifunum fullt brautargengi og gert sér grein fyrir því að pistlarnir eru hvorki fagurbók- menntir né vísindagreinar. Undirritaður hefur þó leitast við að beita fræðilegum vinnubrögðum með því að tilgreina heimildir þegar við á og með því að tilgreina uppruna hinna erlendu orða og útskýra ræki- lega merkingu orða og orðhluta. Aðalmarkmiðið hefur ávallt verið að halda um- ræðu um íslensk læknisfræðiheiti lifandi. Það er bjarg- föst skoðun undirritaðs að læknar eigi að geta talað og ritað á íslensku um fræðigrein sína. Því þarf stöð- ugt að vinna að íslenskun erlendra heita í þeim til- gangi að hafa til taks nothæf íslensk fræðiheiti. Læknis- fræðin og tengdar greinar eru botnlausar uppsprettur nýrra hugmynda og nýrrar þekkingar, sem tjá þarf í skiljanlegum orðum. Fræðimálið verður því að vera í stöðugri þróun, bæði hvað varðar heitin sjálf og einnig skilgreiningar hugtaka. Sent betur fer hefur fjöldi lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna tekið þátt í þessu starfi með því að senda undirrituðum til- lögur að verkefnum og hugmyndir að úrlausnum. Skulu þeim öllum færðar bestu þakkir fyrir. Jóhann Heiðar Jóhannsson johannhj@landspitali.is Læknablaðið 2003/89 69
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.