Læknablaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 55
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ / SÝNDARSJÚKRAHÚS
sinni við lausn vandamála sjúkrahússins og að það
hafi því enga þýðingu að tala við það. Það er svo
kapítuli út af fyrir sig hvernig staða yfirlæknis er í
þessum málum en sú nafnbót virðist vera nafnið
tómt.
Af þessari reynslu dregur undirritaður þá ályktun
að leiðin frá yfirstjóm að starfsmönnum sé of löng,
starfsemi sjúkrahússins of margbreytileg fyrir eina
stjórn og að LSH sé því of stór eining. Lausnin felst
ekki endilega í því að skipta starfseminni upp í tvö
sjúkrahús að nýju eins og gert hefur verið annars
staðar þar sem sameining þótti ekki skila árangri. Eft-
ir sem áður standa þau rök að samfélagið geti ekki
rekið fleiri en einn hátæknispítala í Reykjavík. Það
má hins vegar hugsa sér að vissar einingar verði sjálf-
stæðari og tengist sjúkrahúsinu með þjónustusamn-
ingi eða að gerður verði slíkur samningur við samfé-
lagið (ráðuneyti eða Tryggingastofnun) og formleg
tengsl við sjúkrahúsið þannig laustengd eða afnumin
með öllu.
Það er knýjandi að Læknafélag íslands leggi aftur
vinnu í að skoða uppbyggingu og hugmyndafræði
sjúkrahússreksturs í landinu og taki virkari þátt í
skoðanamyndun með hagsmuni þeirra að leiðarljósi
Nýtt sjúkrahús á Islandi -
Sýndarsjúkrahúsið
Það er ekki á hverjunr degi sem nýtt hátækni-
sjúkrahús er stofnað á íslandi með þjónustu við
alla landsmenn. Nú hefur slíkt sjúkrahús verið sett
á laggirnar, Sýndarsjúkrahúsið (e. Virtual Hospital).
Sjúkrahúsið er staðsett á Landspítalalóðinni við
Hringbraut. Hér er um að ræða kassa sem er 30 x
30 cm að stærð og er speglunarstaður (e. mirror
site) fyrir Sýndarsjúkrahúsið sem staðsett er við
University of Iowa, í Iowa City í Bandaríkjunum.
Þetta er rafrænt gagnasafn um heilbrigðisvísindi
sem stofnað var við háskólann í Iowa árið 1992 í
þeim tilgangi að hjálpa heilbrigðisstarfsmönnum
og sjúklingum að finna upplýsingar við hæfi (1).
Markmiðið með rafrænu gagnasafni Sýndarsjúkra-
hússins er að gera netið að gagnlegum stað til að fá
upplýsingar um læknisfræði og heilsuvernd fyrir
heilbrigðisstarfsmenn og sjúklinga (2). í gagna-
safni Sýndarsjúkrahússins eru hundruð gagnlegra
texta og bæklinga. Nú geta íslendingar sótt allar
upplýsingar innanlands mjög hratt og greiðlega.
Mikið af þeim gögnum sem hægt er að sækja í
Sýndarsjúkrahúsið eru stórar skrár, svo sem kvik-
myndir af aðgerðum og þá kemur sér afar vel
hraðinn sem spegill innanlands veitir. Þá er einnig
til efni á íslensku í Sýndarsjúkrahúsinu, til dæmis
um lungnahlustun (3). Gagnasafn sem þetta getur
nýst sérlega vel til upplýsingar við vinnu á deildum
sjúkrahúsa, heilsugæslustöðvum og á vöktum þegar
finna þarf fróðleik hratt og örugglega. Þetta er sér-
lega hentug námsaðferð fyrir okkur lækna og mjög
hjálplegt tæki til kennslu á sjúkrahúsum, heilsu-
gæslustöðvum og á vöktum til viðbótar hefðbundn-
um kennsluaðferðum (4). Hér var um að ræða eitt
fyrsta vefsvæði sinnar tegundar og hefur síðan ver-
ið í fararbroddi í heiminum (1). Til vitnis um þetta
er að árið 2001 fékk Sýndarsjúkrahúsið verðlaun
sem tímaritið Scientific American veitti þá í fyrsta
sinn og nefnast „SciTech Web Awards 2001“. Að
auki hefur Sýndarsjúkrahúsið unnið til fjölda ann-
arra verðlauna. Anægjulegt er fyrir Landspítalann
að hafa verið valinn einn af speglunarstöðum þess.
Sýndarsjúkrahúsið hýsir mjög mikilvægt kennslu-
efni fyrir íslenska heilbrigðisstarfsmenn og er ástæða
til að hvetja alla til að kynna sér það. Slóðin er
www.vh.org og má síðan velja ísland, eða fara strax
á slóðina http://iceland.vh.org
Heimildir
1. D'Alessandro MP, Galvin JR, D'Alessandro DM, Erkonen
WE, Choi TA. The Virtual Hospital: The Digital Library
Moves from Dream to Reality. Acad Radiol 1999; 6: 78-80.
2. Graber MA, D'Alessandro DM, D'Alessandro MP, Bergus
GR, Levy B, Ostrem SE Usage Analysis of a Primary Care
Medical Resource on the Internet. Comp Biol Med 1998; 28:
581-8.
3. Guðmundsson G, Asmundsson T. Lungnahlustun. The Virtual
Hospital 1999. URL: http://iceland.vh.org/adult/provider/ inter-
nalmedicine/PulmonaryCoreCurric/HyperPneum/
4. Baldursson Ó, Arnar DO. Notkun tölvutækra gagna og marg-
miðlunar við kennslu í klínískri lyflæknisfræði. Læknablaðið
1997; 83: 588-9.
Gunnar
Guðmundsson
Ólafur
Baldursson
Höfundar eru læknar við
Landspítala háskólasjúkrahús.
Læknablaðið 2003/89 55